Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939 - 01.01.1939, Blaðsíða 8

Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939 - 01.01.1939, Blaðsíða 8
komist, þegar talað er um að „forstopp- arinn“ mundi stöðva sóknina, þótt hér sé vitanlega átt við einn af framvörð- unum. En nú eru menn loksins alveg hættir að tala um „gullið“ á leikvell- inum — og er það víst vegna krepp- unnar!!! Það er skiljanlegt, að áhorfendur hrasi um nýyrði knattspyrnumálsins, þegar alvanir leikmenn hrasa um þau, og það jafnoft og þeir hrasa (detta) á leikvelli. Þetta er ótækt. Öllum knatt- spyrnumönnum ber skylda til þess að tala fagurt knattspyrnumál; en öllum íslendingum ætti að vera það metnað- armál að vernda móðurmálið, vera mál- hreinsunarmenn. Og það er sannfæring min, að því réttara knattspyrnumál, sem vér tölum, því fallegar og betur verði knattspyrna leikin hér á landi, vegna hinna rétlu hugtaka knattspyrnu- málsins. Á leikvvellinum shrdlu Rræö shrds af mínum bestu leikbræðrum, samlierj- um og vinum í áratugi; og þaðan hef ég margar af bestu endurminning- unum. Ekki verða þær metnar til fjár, hinar mörgu gleði- og samverustund- ir meðal góðra leikbræðra, né sú holl- usta, sem líkamsiðkunum fylgir. Þess vegna hefur það hina mestu þýðingu fyrir uppvaxandi kynslóð, að velja sér góð og farsæl hugðarstörf. Vér, sem íþróttir iðkum og unnum, viljum að æskulýður landsins temji sér líkams- iþróttir, því vér vitum, af eigin raun, að þær þroska menn bæði andlega og likamlega, og veita farsæld í störfum. Að Iokuni óska ég K.R. hjartanlega til hamingju með 40 ára afmælið, um leið og ég þakka félaginu þjóðþrifa- starfið, og fyrir þann þroska, sem það hcfur veitt mér undanfarna áratugi. Glæsisbikarinn. Forstjórar Efnalaugarinnar Glæsis, Oddur Jónasson og Tngimundur Jóns- son, hafa gefið K.R. vandaðan silfur- bikar, smíðaðan á gullsmíðavinnustofii Árna B. Björnssonar. Hefur K.R. ráð- stafað honum til að keppa um á vor- móti fyrir T. flokk (áður B-Iið). Njóta öll knattspyrnufélögin því mjög góðs af þessari rausnarlegu gjöf, því að slik- an grip hefir vantað hér mjög tilfinn- anlega um lengri tima, svo að mótin gætu verið tvö i þessum flokki, eins og hinum. Oddur lék i kappliði TTT. flokks K.R. 1918. Stjórn K.R. þakkar gefendunum mjög vel fyrir þessa veglegu gjöf, 6 Guðmundur Ólafsson: Hvers virði er 40 ára starf K.R.? Margir Reykvikingar, sem íþróttum unna, munu hugleiða það nú, á 40 ára afmæli K.R., hvers virði starf þess fé- lags hefir verið fyrir Reykjavík. En þó að menn brjóti heilann um það, verður aldrei hægt að sýna það með tölum, eða á annan raunverulegan hátt. Allir munu þó vera sammála um það, að starfsemi K.R. hér í höfuðstaðnum hefur átt sinn drjúga þátt í þvi, að efla likamlega og andlega hreysti Reykvík- inga. Fyrir 40 árum var hér mjög dauf- ur áhugi fyrir öllum íþróttum. Þó voru þá til einstaka ungir, tápmiklir menn, sem löngun báru í brjósti til íþrótta- iðkana. Þessir menn báru gæfu til að stofna Knattspyrnufélag Reykjavikur. Félag, sem hefur dafnað og eflst ár frá ári frá stofnun þess, og nú siðustu 10—15 árin borið ægishjálm yfir iill önnur íþróttafélög þessa lands. Þessir ungu menn, sem stofnuðu K.R., höfðu ])að fyrir markmið, að iðka knattspyrnu, eins og nafn félagsins ber með sér. Það má segja, að þeir liafi hitt naglann á höfuðið. Frá ])ví að þeir byrjuðu að iðka þessa skemtilegu og áhrifamiklu iþrótt, hefur hún farið sigurför um alt land, og er nú orðin sú íþrótt, sem flestir landsmenn iðka, enda þykir hún svo skemtileg, að til dæmis hér í Reykjavík kemur á völl- inn, þegar von er á vel leiknum knatt- spyrnukappleik, alt að þvi fjórði hver bæjarbúi. Þau áhrif, sem þessi iþrótt hefur haft á islenskt íþróttalif alment, eru ómet- anleg, en þeir, sem vel hafa fylgst með iþróttalífi okkar, munu ekki vera í vafa um, hve knattspyrnan hefur greinilega skipað þar forustuna. Knattspyrnan er sú íþróttin, sem aðr- ar íþróttir hefur vakið hér á landi; æskan byrjar fyrst að fá íþróttaáhuga, liegar hún kynnist knattspyrnu, sem leiðir hann svo til íþróttaiðkana á ýms- um sviðum. Það má þvi fullyrða það, að með stofnun K.R. er að minsta kosti reykvískt íþróttalíf vakið. Knattspyrnan var hér eðlilega á byrj- unarstigi lengi framan af. En eftir að K.R. komst af unglingsárunum, fór henni brátt að fara fram, og nú er knattspyrnan komin hér á það stig, að við megum vel við una, eftir ástæðum og þeirri aðstöðu, sem við höfum i veðráttu- og vallarskilyrðum. K.R. hefur sí og æ fært út kvíarnar, bætt við sig nýjum og nýjum íþrótta- greinum, og er nú orðið fjölþætt- asta íþróttafélag landsins. Sigursælt hefur og félagið verið, svo að önnur íþróttafélög hafa þar ckki tærnar, sem það hefur hælana. Til dæmis voru á siðastliðnu ári hér í bæ tólf kappmót á milli hinna ýmsu íþróttafélaga hér i bænum og utan af landi. Af þessúm tólf mótum vanu K.R. átta mót. (Fé- lagakeppni er það þegar flokkar félaga keppa og verðlaunin ganga til félags- ins). Þá hefur sigur liinna einstöku keppenda i K.R. ekki verið minni, sbr. alla ])á íslandsmeistara, sem það á i hinum ýmsu iþróttagreinum. Miklir sigrar og miklir dugnaðar- menn á sviði íþróttanna eru ágætir á vissan hátt, en það á aldrei og má aldrei vera aðalatriðið í iþrótlastarf- seminni, að vinna verðlaunagripi eða verðlaunapeninga. Þjálfun líkamans á að vera til Jiess að viðhalda og efla hreysti hans, skapa viðsýni og frjáls- lyndi, og síðast en ekki síst, til að skapa félagslyndi, virðingu og kær- lcika til allra, sem þeir umgangast. KR-ingar eiga mörg og mikil verk- efni eftir óunnin. Fyrsta og aðalstarf þeirra i framtíðinni á að vera það, að skapa allsherjar áhuga ungs fólks fyr- ir i])róttum, að innræta ungum mönn- um heilbrigt og holt liferni, og skapa drengskap — sannan drengskap, í is- lensku íþróttalífi.

x

Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939
https://timarit.is/publication/660

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.