Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939 - 01.01.1939, Blaðsíða 23

Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939 - 01.01.1939, Blaðsíða 23
Kristján Vattnes. og Kristján i spjótkasti. Þeir stóðu sig báðir vonum framar og voru félagi sinu til sóma. — Meistaramótið var haldið viku eftir heimkomu Ólympíufaranna og hlaut K.R. 10 meistarastig. Kristján vann 4, Ólafur Guðmundsson 3, Sveinn 1 og Sverrir 1. Og K.R. vann 4x100 m. boðhlaup og setti nýtt isl. met (46.8). — K.R. tók aftur Drengjamótið. Har- aldur Guðmundsson sigraði i 3 íþrótta- greinum og var besti maður K.R. -— í bæjakeppninni við Vestmannaeyinga tóku þátt 7 KR-ingar. Ólafur Guð- mundsson sigraði þar í 400 m. hlaupi, Georg L. Sveinsson í langstökki, og Sverrir í 1500 og 5000 m. hlaupum. — f bæjakeppni drengja við sama bæ, er fram fór í Reykjavík, kepptu 5 KR-ing- ar. Halldór Nikulásson sigraði í 80 m. hlaupi, Jóhann Bernhard i langstökki, Gísli Ólafsson i hástökki og Anton B. Björnsson í kringlukasti. — Á innan- félagsmótinu sigraði Sveinn í fjórum greinum, en Kristján og Ólafur í 3. Halldór Nikulásson var skarpastur hjá eldri drengjunum, en Anton Björnsson hjá þeim yngri, og sigraði hann i öll- um íþróttagreinunum. — Sigurður Sig- urðsson úr Vestmannaeyjum hlaut Af- reksbikar K.R. fyrir að stökkva 1.80 metra í hástökki. K.R. sigraði aftur i Viðavangs- 1937 hlaupinu 1937, eftir þriggja ára ósigur. Hlaupið var nú fyrir 3 manna sveitir, en áður fyrir 5. Sigur- inn var glæsilegur. Sverrir var aftur fyrstur og þriðji maður var Pétur Jó- hannsson úr K.R. — Drengjahlaupið vanst einnig af K.R. Óli B. Jónsson hlaut 3. verðlaun. — í 17. júni-mótinu unnu KR-garparnir Sveinn, Kristján, Ólafur og Sverrir marga sigra, og boð- hlaupssveitin setti nýtt met í 1000 m. boðhlaupi: 2:11.6. — í undirbúnings- keppni undir bæjarkeppnina setti Krist- ján nýtt met í kúluvarpi (13.43) og Sveinn í 400 m. hlaupi (52.8). í sam- bandi við bæjakeppnina fékk K.R. hing- að 5 sænska íþróttamenn til að keppa við. Á mótinu setti Kristján ný met i spjótkasti (58.78) og kúluvarpi (13.48). Sigraði Kristján þá Svíann Hj. Gréen, sem er með bestu mönnum Svía. Sveinn setti met í 200 m. hlaupi (23.3). Þá setti boðhlaupssveit K.R. ný met i báðum boðhlaupunum, 4x100 m. á 46.0 og 1000 m. á 2:07.0. Aðeins tveir Svíanna fóru héðan ósigraðir. — Á meistaramótinu hlaut K.R. tólf meistarastig. Kristján varð fjórfaldur meistari og setti met í kringlukasti (41.09 m.) og fimtarþraut (2697 stig). Sveinn varð þrefaldur meistari og setti met í 400 m. hlaupi (52.7). Ólafur varð tvöfaldur meistari og setti met i 100 m. grindahl. (17.0). Haukur Einarsson varð göngumeistari og setti met í 10.000 m. göngu, 52: 48.2. Auk þess sigraði K.R. i báðum boð- hlaupunum og setti met i báðum, á 45.0 og 2:05.4. Þetta var sannkallað sigur- mót fyrir K.R. — K.R. tapaði Drengja- mótinu að þessu sinni. Jóhann Bern- hard og Anton B. Björnsson stóðu sig þó ágætlega. Þrír KR-ingar kepptu i bæjakeppni drengja i Eyjum og unnu þar fleiri stig í 9 greinum en 7 Ár- menningar i 10 greinum. Voru það þeir Jóhann, Anton og Halldór Nikulásson. Þeir sýndu ágæta KR-takta. — Á inn- anfélagsmótinu sigraði Sveinn i 6 grein- um og setti met i 200 m. hlaupi (23.2). Iíristján sigraði einnig í 6 greinum og setti met í tugþraut (5007 stig). Sverrir sigraði i 3 greinum. — Eldri drengirn- ir sýndu einnig ágæta hæfileika. Jó- hann sigraði i 6 greinum og setti nýtt drengjamet i langstökki, og Anton í 5. Og hjá yngri drengjunum var Gunnar Huseby bestur. — Á þessu ári hnekkti K.R. 2 gömlum boðhlaupsmetum, í 4x400 (3:44.2) og 1500 m. boðhlaupi (3: 34.4), utan móts. — Sveinn Ingvars- son hlaut Afreksbikar K.R. þetta sum- ar fyrir að hlaupa 100 m. á 11 sek. Sumarið 1938 ætti að vera öll- 1938 um enn i fersku minni, en þó skulu mótin lauslega rifjuð upp. — Víðvangshlaupið vanst aftur glæsilega, og Sverrir sigraði í þriðja sinn. — Drengjahlaupið fór þó enn betur. K.R. vann bikarinn til eignar, og þeir Guðbjörn Árnason, Garðar Þormar og Gunnar Þórðarson tóku öll verðlaunin. Er það i annað sinn, sem K.R. hrifsar alt til sín i þessu hlaupi. — Á 17. júni-mótinu sigraði Kristján i spjótkasti og vann besta afrek móts- ins (58.52 m.). Sveinn sigraði i 100 m. hlaupi, og Helga Helgadóttir i 80 m. hlaupi fyrir stúlkur. — K.R. vann enn einu sinni Allsherjarmótið, með yfir- burðum og heldur þvi sæmdarheitinu „Besta íþróttafélag landsins". Sveinn sigraði í 4 greinum og setti met i öll- um spretthlaupunum (10.9-23.1-52.6). Þeir Kristján, Sverrir, Haukur Ein- arsson, Helgi Guðmundsson og Jóhann Bernhard urðu lílca sigurvegarar. Sverrir Jóhannesson. 21

x

Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939
https://timarit.is/publication/660

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.