Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939 - 01.01.1939, Blaðsíða 21

Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939 - 01.01.1939, Blaðsíða 21
Haraldsson í kúluvarpi og Jón Magnús- son í stangarstökki. — Enn vann K.R. DrengjamótiS glæsilega, og var Ingvar Ólafsson okkar besti maður. Hann vann 6 íþróttagreinar. — Magnús Guðbjörns- son vann nú Hafnarfjarðarhlaupið í 5. í sinni röð, en tapaði Álafosshlaup- inu að þessu sinni. Og Maraþonhlaup þreytti hann i 3. sinn og setli þar nú glæsilegt met, á 2 klst. 53 min. 6. sek. K.R. vann enn Víðavangs- 1929 hlaupið, og tók Silla og Valda- bikarinn í fyrsta sinn; átti nú K.R. sex fyrstu mennina. Jón Þórðar- son varð fyrstur i mark, en næstir urðu Þorsteinn Jósepsson og Jakob Sigurðs- son, og mátti varla i milli sjá. — K.R. vann nú aftur Drengjahlaupið, eftir 2ja ára ósigur. Ólafur Guðmundsson hlaut 2. verðlaun og Hans Hjartarson þau 3, báðir úr K.R. — Á íþróttamótinu 17. júní setti Haukur Einarsson úr K.R. nýtt ísl. met í 5000 m. göngu, á 27: 25.0. Meðal annars kepptu þar stúlkur úr K.R. í fyrsta sinni, 2 sveitir i boð- hlaupi 5x80 m., en þar sem enginn treystist til að reyna við þær, urðu þær náttúrlega nr. 1 og 2. — Þrir KR-ingar urðu meistarar þetta sumar: Ingvar Ólafsson (í langstökki), Sigurð- ur Ólafsson (í þristökki) og Magnús Guðbjörnsson (í 10.000 m. hlaupi). Mót þetta var mjög dauft. — Drengjamótið fór á sömu leið og áður: K.R. sigraði glæsilega. Ingvar Ólafsson setti þrjú ný drengjamet á mótinu, og hlaut alls 24 stig, og er það met á þessu móti. Fékk Ingvar bikar fyrir þessa ágætu frammistöðu. — Magnús Guðbjörnsson Ingvar Ólafsson. vann Hafnarfjarðarhlaupið í 6. sinn og vann bikar nr. 2 til eignar, en i Ála- fosshlaupinu varð hann annar. Merkisárið 1930 kom. K.R. 1930 vann Viðavangshlaupið glæsi- lega, í fimta sinn í röð. Magn- ús Guðbjörnsson hlaut 2. verðl. og Sig- urður Runólfsson 3. verðl. — Drengja- hlaupið fór líka svo vel, sem frekast varð á kosið. K.R. vann nefnilega bik- ar nr. 2 til eignar, og átti alla verð- launamennina. Það voru Stefán Gísla- son, Ólafur Guðmundsson og Iiákon Jónsson. — Á Alþingishátíðarmótinu, sem um leið var meistaramót, skaraði Ingvar Ólafsson fram úr af KR-mönn- um. Varð liann meistari í spjótkasti, Sigurður Ólafsson í þristökki og Hauk- ur Einarssön i 5000 m. göngu. Ágæt- ir voru einnig Ólafur Guðmundsson og Magnús Guðbjörnsson, og Iíeiðbjört Pétursdóttir tók 1. verðl. í 80 metra lilaupi stiilkna. — Drengjamótinu tap- aði K.R. nú í fyrsta sinni. Ármann vann. Hákon Jónsson stóð sig best af KR-ingunum. — Magnús Guðbjörnsson vann Hafnarfjarðarhlaupið í 7. sinn i röð, en Haukur Einarsson lilaut þriðju verðl. í Álafosshlaupinu varð Magnús 3. Þá hljóp Magnús aftur frá Þingvöll- um og hafði nú Ilauk í fylgd með sér. Var Magnús liðlega 4 klst. á leiðinni. K.R. vann Víðavangshlaupið i 1931 0. sinn í röð. Oddgeir Sveins- son hlaut 1. verðlaun. — En Ármann vann Drengjahlaupið. Halldór Ólafsson iir K.R. hlaut 2. verðlaun. — Á 17. júni-mótinu kepptu margir KR- ingar, og á meistaramótið, sem haldið var í Vestmannaeyjum að nokkru leyti, sendi K.R. 8 menn, en alls hlaut K.R. 7 meistara, en þeir voru þessir: Ólafur Guðmundsson (i 800 og 1500 m.), Ing- var Ólafsson (i þrístökki og grinda- hlaupi), Garðar S. Gíslason, sem nú var aftur kominn heim til föðurhúsanna (í langstökki), Trausti Haraldsson (í kúluvarpi) og Stefán Gíslason (i 400 m.). — K.R. tapaði aftur Drengjamót- inu. Nokkur huggun var þó i því, að eiga besta mann mótsins, Georg L. Sveinsson; vann hann 3 greinar og setti nýtt drengjamet i 80 m. hlaupi. Féklc Georg silfurbikar i verðlaun. — Magnús Guðbjörnsson vann Hafnar- fiarðarhlaupið í 8. sinn, og sigraði nú einnig í Álafosshlaupinu. Var nú hlaup- ið í fyrsta sinn upd eftir frá Revkja- vík, og er það nokkru erfiðara. Hauk- ur Einarsson og Haraldur Maftbiasson hlutu 2. og 3. verðl. — Þá lilióp Magn- ús þetta sumar i fimta sinn frá Kömb- Ólafur Guðmundsson. um. — Ingvar Ólafsson setti þetta ár nýtl ísl. met í grindahlaupi (18.4 sek.), utan móts og einsamall. Vorið 1932 höfðu bæst við ný- 1932 ir keppinautar í Viðavangs- hlaupið. K.R. vann með glans, og þó fékk enginn KR-ingur verðlaun. Ólafur Guðmundsson varð fyrstur af KR-ingum og varð 4. i mark. — K.R. vann Drengjahlaupið einnig, og hlaut Teitur Guðjónsson úr K.R. 3. verðlaun. — Þetta sumar var Allsherjarmót hald- ið eftir 4 ára hvíld, og hélt K.R. bæði tign sinni og bikarnum. Ólafur Guð- mundsson sigraði í tveim íþróttagrein- um, en Ingvar Ólafsson, Þorgeir Jóns- son og Haukur Einarsson liver í einni. — Á meistaramótinu hlaut K.R. 8 meist- ara. Hinir ungu kappar K.R., Ólafur og Ingvar, tóku þar bróðurpartinn. Ing- var varð fjórfaldur meistari (i 100 og 200 m. hlaupi, 110 m. grindahlaupi og langstökki), og Ólafur þrefaldur (í 400, 800 og 1500 m. lilaupi). Auk þess varð félagið meistari i 4x100 m. boðlilaupi á 47.3 sek., og sló loks hið 10 ára gamla met Ármanns (48.8). Það voru hinir ungu kappar, Ólafur og Ingvar, sem þarna voru að verki, ásamt þeim Róbert Schmidt og Sigurði Ólafssyni. Ingvar hljóp grindahlaupið undir meti, en fékk það ekki viðurkent. Nýr far- andbikar var veittur á þessu móti, fyr- ir fræknleik, drengskap og prúðmensku, og hlaut Ólafur bikarinn. — Drengia- mótið tapaðist i þriðja sinn í röð; Ár- mann vann. Þó varð Georg L. Sveins- son úr K.R. mesti „stigamaður" mótsins, ásamt öðrum. Á þes'su móti keppti i fyrsta sinn Kristján Vattnes. og hlaut tvenn verðlaun. — Þetta ár hélt K.R. fyrsta innanfélagsmót sitt fvrir full- orðna og setti Tngvar bnr nvft met I 110 m. grindahlaupi á 18.0 sek. — t Álafosshlaupinu sigraði nú Oddgeir 19

x

Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939
https://timarit.is/publication/660

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.