Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939 - 01.01.1939, Blaðsíða 25

Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939 - 01.01.1939, Blaðsíða 25
Vorið 1924 brá ég mér úr einveru sveitakyrðarinnar og til Reykjavikur. Ég var sextán vetra og fór sérstaklega í þeim tilgangi aS sjá fallegar stúlkur — mér fanst þær of fáar í sveitinni. En nóg um það. Þetta skeði i apríl- mánuSi — seint i honum. Mér varS sunnudag einn gengiS niður i bæ og rakst á mannþyrpingu mikla. Ég fór þá til einhvers í hópnum og spurði, hver hefði verið drepinn. „Drepinn!“ át maðurinn eftir mér. „Já, hvers vegna er svona margt fólk hérna á götunni, ef ekki hefur borið slys að höndum.“ En alt i einu rann upp fyrir mér nýtt ljós. „Það er kannske lika vinnukonufridagur i dag?“ spurði ég hálf-feiminn. Maðurinn hló. „Nei, það er Drengja- hlaupið, sem á að fara fram,“ sagði hann. Svo hvarf hann inn í mannþyrp- inguna og ég sá hann ekki meir. En af þvi að ég hafði ekkerl að gera annað en slæpast, ákvað ég að horfa á þennan skrípaleik, sem hét: Drengjahlaupið. Það var hópur — stór hópur drengja, sem hljóp. Hann hét Óskar Þórðarson, sá sein sigraði — nú er hann læknir. Annar í röðinni varð Ásmundur Ás- mundsson, báðir úr K.R. Þetta var flokkalilaup, og við að þorfa á það, óx áhugi minn fyrir því. Mér var frá fornu fari illa við lv.R. og átti þá eina ósk, að það tapaði hlaupinu. En K.R. vann og það var mér bölvanlega við. Svo fór ég heim í sveitina aftur og hlaupið gleymdist. Ég varð 17 ára. Um haustið skaut ég rjúpur og stundaði mikið göngur. Ég var þolinn að ganga, fæturnir sterk- ir og lungun heil. Um veturinn losnaði kálfur út úr fjósinu heima, hann hljóp út alt tún mcð halann upp í loftið — og ég á eftir. Eftir langan eltingar- leik náði ég kusa, teymdi hann heim i fjós og þar batt ég hann. Daginn eft- ir fékk ég þá „ideu“ í höfuðið, að ég gæti alveg eins elt menn, eins og smá- tarfa úr fjósum. Viku seinna skrifaði ég kunningja mínum í Reykjavík og bað hann að láta innrita mig i eitt- hvert gott íþróttafélag, sem keppti í Drengjahlaupinu; mér væri sama hvaða félag það væri annað en K.R. Aðeins í það vildi ég ekki ganga. Mér var illa við það. Hálfum mánuði síðar fékk ég svar. Maðurinn sagðist vilja mér alt hið besta, og þess vegna vildi hann ekki skrifa mig inn í neitt annað félag en einmitt K.R. Þetta svar var mér ógur- leg vonbrigði. Ég hætti við öll hlaup, mokaði fjós og las reyfara. Alt i einu datt mér í liug, að ég væri nú alls enginn hlaupari, þó ég hefði náð kálf- skrattanum. Það gat hver sem var. Ef ég keppti, yrði ég sennilega síðastur — langsíðastur, og yrði mér til ævar- andi skammar. Og einmitt þá fanst mér heillaráð, að ganga i K.R. Mér fanst jiað blátt áfram nautn, að geta orðið því til skammar. Ég skrifaði kunningja mínum um hæl, sagðist myndi ganga í K.R. og ætlaði að koma til Reykja- víkur mánuði fyrir hlaupið. Á tilteknum tíma kom ég til Reykja- víkur, saklaus, liuglaus og feiminn eins og túnsóley eða heimasæta í sveit. Ég liafði ekki minstu einurð á að hitta formanninn í Iv.R., en það var Krist- ján L. Gestsson. Ég hélt að jiað yrði mjög hræðilegt, líkt og að láta lækni taka úr sér tönn, eða taka inn laxer- olíu. Samt herti ég upp hugann, labb- aði niður i Iiaraldarbúð og spurði eft- ir manni, sein liéti Kristján L. Gestsson. Hann var viðstaddur, kom til mín, heilsaði mér injög alúðlega og spurði livað ég vildi. Ég sagðist licita Þorsteinn Jósepsson. Kristjáni fanst það skritið erindi, og spurði hvort það væri ekkert annað, sem mér þóknaðist. Ég var kominn að þvi að segja nei og fara. Samt herti ég mig upp, sagð- ist vera kominn til að ganga i K.R. og mig langaði til að lilaupa Drengja- hlaupið. Þá kannaðist Kristján strax við mig, varð ennþá alúðlegri en áður og bauð mig hjartanlega velkominn. Þetta fanst mér óskiljanleg alúð af KR-ing. Ég hélt þeir væru upp til hópa eintómir tartarar, og svo var sá fyrsti, sem ég hitti, alúðin og prúðmenskan sjálf. Kanske var þetta alt saman lygi, sem ég hafði heyrt um þá! Ég byrj- aði að draga mitt eigið álit og mina eigin sannfæringu í efa. Kristján sagði mér að koma morg- uninn eftir niður i Ilaraldarbúð. Það var á sunnudegi, og þá átti ég að taka þátt i fyrstu æfingunni. Mikið kveið ég fyrir. Morgundagurinn rann upp. Það var bjartur og hlýr vordagur með sunn- anvind og sólskin. En mér var ilt í maganum af kvíða. „Þér var nær“, hugsaði ég með sjálf- um mér. „Gast verið heima og stund- að kýrnar — gast hlaupið í kapp við óþekka kusa, ef þú endilega vildir hlaupa“. í millitiðinni var ég kominn niður i Haraldarbúð og þar tók Krist- ján Gestsson á móti mér. Hann tók mér forkunnarvel. Fyrs't kynti hann mér ýmsar hlaupahetjur fo- lagsins. Þar var Ásmundur Ásmunds- son, sem var annar í Drengjahlaupinu árið áður og sem nú fylgdu mestar vonir félagsins í komandi Drengja- hlaupi — en svo voru fullorðnu hetj- urnar þar líka samankomnar. Ég tók sérstaklega eftir Magnúsi Guðbjörns- syni — ég leit upp til hans eins og músarindill lilýtur að líta upp til hrafns. Svona mikla persónu liafði ég aldrei séð. Mér fanst ég sjálfur upp- hefjast til muna við það, að vera i návist þessa manns, Ég gat hreykt mér af því að hafa séð Magnús Guðbjörns- son, og meira að segja tekið í liend- ina á honum. Ég hefði ekki viljað býtta á því og að kyssa tána á páfanum, þó mér hefðu staðið þau skifti til boða. Ég var kyntur hverjum á fætur öðr- um, og við hvert nýtt andlit óx maga- verkurinn. Mér fanst hver og einn ver.a andstæðingur minn, sem ætlaði að kúska mig, að pína mig og pynta. Þetta átti að ske eftir fimm minútur. Við klæddum okkur úr i hvelli. Ég gnísti tönnum, fæturnir nötruðu undir mér eins og puntstrá i roki. Svo kom augnablikið. Fullorðnu hlaupararnir 23

x

Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939
https://timarit.is/publication/660

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.