Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939 - 01.01.1939, Blaðsíða 30
Regína Magnúsdóttir.
sundraunir í sundlaugunum við Reykja-
vik: 1) 1000 m. bringusund. 2) 200 m.
baksund. 3) 200 m. bringusund í öll-
um fötum. 4) Afklæddist á sundi. 5)
19 metra kafsund. G) kafaði eftir hlut
á 2Vn m. dýpi. 7) 50 m. sund, frjáls
aðferð. 8) 50 m. björgun. 9) 25 m.
sund í öllum fötum. 10) 25 m. björg-
un í öllum fötum. 11) Leysiaðferðir i
vatni. 12) Lífgun.
Öll sundraunin var leyst af hendi á
46 min. 4G.6 sek.
1934 fór meistaramótið fram á Ak-
ureyri og fóru þangað tveir KR-ingar,
þeir Haukur Einarsson og Sigurður
Runólfsson og stóðu sig ágætlega.
1935 fór sundmeistaramótið fram á
Álafossi og hlutu Guðbrandur Þorkels-
son og Pétur Éiríksson þar verðlaun.
Sumarið 1936 vann Pétur Eiríksson
það frækilega afrek, að synda úr
Drangey til lands, á 5 klst. 19 mín. og
þótti það vel gert af 19 ára, óhörðn-
uðum unglingi. Aðeins tveir menn aðr-
ir hafa leyst þessa sundraun af hcndi,
svo vitað sé, þeir Grettir Ásnmndsson
og Erlingur Pálsson.
Á sundmeistaramótinu, sem haldið
var að Álafossi þetta suraar, tóku
KR-ingar þátt í ýmsum sundum og t,óku
nokkrir þeirra verðlaun.
Á fyrsta sundmótinu í Sundhöllinni,
3. júní 1937, voru 12 þátttakendur frá
K.R. og tóku Guðbrandur Þorkelsson,
SVanberg Iiaraldsson og Björg Þor-
steinsdóttir verðlaun.
Um miðjan júlimánuð synti Pétur
Eiríksson frá Viðey að steinbryggjunm
i Reykjavik á 1. klst. og 30 min.
I sundmeistaramóti l.S.l. 1937 voru
þátttakendur frá K.R. aðeins 5, og tók
Guðbrandur Þorkelsson verðlaun i 100
og 400 m. frjáls aðferð.
1938 var sundmót 15. og 17. mars. 13
þátttakendur voru frá K.R. Björg Þor-
steinsdóttir lilaut 2. verðlaun i 400 m.
bringusundi, og i 100 m. bringusundi
fyrir stúlkur innan 16 ára tóku Hulda
Bergsdóttir, Hólmfriður Kristjánsdótt-
ir og Ragnheiður Eide öll yerðlaunin.
Á sundmeistaramóti Í.S.Í. 1938 voru
12 þátttakendur frá K.R. Guðbrandur
hlaut þar 3. verðl. í 100 m. baksundi
og í boðsundi 4x50 m. hlaut sveit K.R.
meistaratitilinn.
Þann 19. júni synti Guðjón Guðlaugs-
son úr Engey að steinbryggjunni í
Reykjavík. Tími hans var 1 klst. 15 mín.
Ennfremur synti Guðjón i júlímánuði
yfir Skerjafjörð að Lyngholti og það-
að inn að Arnarnesi. Þessi vegalengd
er um 4300 metrar. Tími hans var 1
klst. 47 mín. 50.2 sek. Hann synti ó-
smurður, og er það lengsta sund, sem
hér hefir verið þreytt þannig, svo að
vitað sé.
Þann 2. ágúst var háð kappsund yfir
Eiðið fyrir innan Reykjavik, og er það
um 550 m. Keppendur voru 3 KR-ing-
ar, þeir Pétur Eiríksson, Guðjón Guð-
laugsson og Gunnar Þórðarson, og var
Pétur fyrstur. Þann 13. ágúst synti
Pétur Eiriksson yfir Oddeyarál í Eyja-
firði á 18 mín. 33 sek. og er það nýtt
met. Hið eldra var 20 mín., sett af
Hauk Einarssyni 1935.
í sundmótinu 4. des. voru 6 þátttak-
endur frá K.R. Verðlaun hlutu Ingi-
björg Marteinsdóttir, Rafn Sigurvins-
son og Guðbrandur Þorkelsson.
Eins og lesendur sjá af framanrit-
uðu er og hefir ágætis sundfólk ver-
ið í K.R. Það má óhætt segja það, að
ekki hefur verið unnið að því sem
skyldi innan félagsins, að efla sund-
íþróttina og tel ég það fyrst of fremst
vera því að kenna, að sundinu var
sleppt úr Allslierjarmótinu. Hefði það
ekki verið gert, hefði verið óhjákvæmi-
Icgt fyrir félagið að leggja meiri rækl
við sundið, eins og aðrar íþróttagrein-
ar, því úrslit mótsins voru oft undir
því komin.
En þrált fyrir alt eigum við altaf á-
gætís sundmenn og konur, og ííesla
þolsundsmennina.
Um leið og minst er á sundið meðal
KR-inga, þá kemst maður ekki hjá þvi
að minnast hins ágæta íþróttamanns
og brautryðjanda sundíþróttarinnar i
K.R., Kristjáns L. Gestssonar, sem hef-
ir altaf og er ennþá sívakandi, og boð-
inn og húinn til að gera alt til efl-
inar sundíþróttinni, og leyfi ég mér
fyrir hönd allra IíR-inga, sem sund
iðka, að þakka þér, Kristján, af alhug,
fyrir alt, sem þú hefur unnið fyrir
okkur, og eg vona, að við eigum eft-
ir að njóta aðstoðar þinnar í mörg ár
enn. Lifðu heill!
KR-ingar! Þið, sem eruð í sundnefnd,
eg treysti ykkur öllum til þess að vinna
að því, ásamt stjórn félagsins og kenn-
ara, að hvetja þá, sem þegar eru í
sundflokknum, og aðra, sem líklegir
eru til þess að ná verulegum árangri
í sundi, að sækja vel æfingar. Því að-
eins er hægt að búast við góðum ár-
angri og sýna! það í verki, ’að við
viljum heill K.R.
Félagið hefur nú ráðið til sin nýjan
sundkennara, Jón Inga Guðmundsson,
sem er liinn áhugasamasti kennari og
vinnur hann nú, ásamt stjórn félags-
ins að því að skipuleggja sundflokkinn.
Jón Pálsson liefur nú hælt sundkenslu
hjá K.R. og leyfi ég mér fyrir hönd
Magnús Magnússon
frá Kirkjubóli.
28