Morgunn - 01.06.1939, Blaðsíða 118
112
M ORGUNN
Vér neituðum að birta auglýsingu hans, þareð hún
myndi hafa leitt til þess, að læknisleyfið yrði tekið af
honum. Þess í stað sögðum vér frá starfsemi hans og
hvöttum lækna, sem eru andatrúar, til að ná sambandi
við hann með aðstoð vorri og senda honum krabba-
meinssjúklinga.
Þetta gerðist í nóvember síðastliðnum og í næstm
mánuði á eptir byrjaði hann tilraunir sínar á karlmann-
inum. Þrem mánuðum síðar var hann heilbrigður.
Lækning hins sjúklingsins hófst í janúar á þessu ári,
en hennar lækning stóð að eins yfir í tvo mánuði. Hún
þyngdist jafnt og þétt, og líðan hennar er yfirleitt góð-
Þegar sjúkdómurinn er tiltölulega nýr, er talið að
nægilegt sé að gefa sprautur um þriggja mánaða tíma.
Þegar sjúkdómurinn er kominn á hærra stig, er sam.i
aðferðin endurtekin. Sumir af sjúklingum þessa læknis
undirgangast nú þessa meðferð í annað sinn og á þeim
sjást batamerki. Þó höfðu rétttrúarlæknar talið einn
sjúklinginn alveg ólæknandi.
En þær tvær læknisaðgerðir, sem höfðu batann í för
með sér, sýna gildi þessarar aðgerðar og að radium þarf
ekki að vera skilyrðið fyrir lækningunni.
Það er framtíðardraumur læknisins og konu hans, að
læknisstofnanir verði reistar um allt landið, þar sem
hægt sé að rannsaka börn, sem grunuð eru um að fá
krabbameinstilhneigingu í arf og jafnframt sé þá hægt
að gera þau ónæm fyrir veikinni með sprautum.
Læknirinn heldur því fram, að þeir tveir sjúklingar,
sem náðu bata, muni aldrei fá krabbamein aftur, því að
því hafi algerlega verið rýmt burt úr líkama þeirra.
Harley Street-sérfræðingurinn, sem fullvissaði sig um
að sjúkdómurinn hefði verið og bati náðst, notar nú
þessa læknisaðgerð við sína sjúklinga.
Á meðan þessi merkilejía. nýjung er að gerast, er það í frásögur
færandi, að parlamentið- hefur nýlegá sett lög til að fyrirbyggja