Morgunn - 01.12.1947, Síða 71
A víð og dreif.
Eftir ritstj.
Athyglisverðasta fregn, sem lengi hefir borizt um út-
breiðslu spíritismans í Bretlandi, er fregnin af skoðana-
könnun þeirri, sem fram fór þar í landi á liðnum vetri,
um afstöðu þjóðarinnar til spíritismans.
Skoðana- Það er að verða algengt víða um heim,
Tcönnun að leitað sé eftir skoðunum þjóðanna á
vissum málum á þann hátt, að stórblöð
eða almennar fréttastofnanir sendi fyrirspurnir til fólks, sem
af handahófi er valið úr öllum stéttum þjóðfélagsins. Svör-
in eru síðan álitin vera spegilmynd af ríkjandi skoðunum
þjóðarinnar, og sýnir reynslan, að niðurstöðurnar af þess-
um skoðanakönnunum gefa merkilega nákvæma mynd af
af þjóðarviljanum. Á liðnum vetri var slík skoðanakönnun
um afstöðu brezku þjóðarinnar til spíritismans látin fara
fram, og tveim hundruðum manna, sem af handahófi voru
valdir úr öllum stéttum Breta, sendar slíkar fyrirspurnir.
Það voru ekki spíritistarnir, sem stóðu fyrir þessari skoð-
anakönnun, heldur brezka stofnunin Mass-Observation’s
National Board of Observers, og hún birti opinberlega þá
niðurstöðu af skoðanakönnuninni, að ástæða væri til að
ætla að 15 milljónir manna í Bretlandi aðhylltust spírit-
ismann, eða því sem næst þriðjungur allrar heimaþjóðar-
innar brezku. Fréttastofnunin sagði ennfremur frá því,
að. af öllum þeim, sem svörin sendu, hefði aðeins rúmlega
einn af hundraði neitað möguleikanum fyrir því, að yfir-
venjuleg fyrirbrigði gætu gerzt. f þessu sambandi bendir
fréttastofnunin á þá staðreynd, að margt bendi til hinnar