Morgunn - 01.06.1973, Side 33
ÆVAR R. KVARAN:
SÁLRÆNIR HÆFILEIKAR
FRUMSTÆÐRA MANNA
Vísindamenn hafa raimsakað hina athyghsverðu sálrænu
hæfileika, sem birzt hafa hjá frumstæðum þjóðflokkum víða
um heim. Niðurstöður þessara ramisókna hafa leitt í ljós mik-
ilvægar sannanir fyrir því, að fyrirbæri, svo sem venjuleg
skyggni, hugsanaflutningur og hlutskyggni meðal þessa fólks
eru engar órasögur, heldur staðreyndir, sem gerast á degi
hverjum. (Hlutskyggni nefnist það, þegar viðkomandi getm:
með þvi að handleika hlut komizt að ýmsu viðvíkjandi fyrri
eigendum hans og atburðum tengdum homxm).
Nú er svo komið, að ýmsir landar eru orðnir andfætlingar
okkar, hafa flutzt hinum megin á hnöttinn til Ástraliu i leit að
betra lífi líklega, þótt sumir virðist hafa orðið fyrir verulegum
vonbrigðum með bústaðaskiptin og vilji nú komast aftra- heim,
eins og kunnugt er orðið. Við vitum raimar lítið um þessa
merkilegu heimsálfu, sem nefnd hefra verið svo oft upp á síð-
kastið í sambandi við flutning nokkurra fslendinga þangað.
Það væri því eigi úr vegi að gera frumbyggja Ástraliu hér að
umtalsefni, það er að segja hina fraðulegu sálrænu hæfileika
þeirra.
Visindamenn hafa með ýtarlegum rannsóknum gengið úr
skugga um það, að hinir villtu frumbyggjar Ástraliu geta til
dæmis flutt hugsanir án nokkurra tæknilegra hjálpartækja,
svo og tilfinningar og hugmyndir til vina og ættingja í mörg
hundruð kílómetra fjarlægð. Hæfileikar þessir hafa meðal
annars verið notaðir til þess að sýna í einstökum atriðum
hvemig glæpir hafi verið framdir, að elta uppi glæpamenn,
finna týndan búpening og glataða dýrmæta mraii.