Morgunn - 01.06.1973, Síða 34
32
MORGUNN
Frumbyggjar Ástralíu eru taldir meðal frumstæðustu þjóða
hnattarins. Búa þeir langt inni í skógum og runnlendi við
svipuð lífsskilyrði og menn á steinöld. Hörð lifsbarátta öldum
saman virðist hafa skerpt skilningarvit þeirra og aukið þeim
andlega krafta. Þannig geta þeir greint smáhluti í mikilli
fjarlægð, jafnvel þoku. Þeir greina hljóð, sem svokaltlað sið-
menntað fólk heyrir alls ekki. Með þefskynjun einni saman
geta þeir einnig greint dýr frá mönnum, þótt utan sjónmáls
séu. —
Lögreglan í Queensland hefur fært sér þessa dularfullu
hæfileika hinna innfæddu í nyt og ræður þá sem leitarmenn
og njósnara. Er árangur þeirra iðulega mjög furðuiegur. Þann-
ig getur slíkur maður af slóðinni einni saman fundið hvort sá
sem þar hefur farið er hress eða þreyttur, drukkinn eða ótta-
sleginn, hvort hann ber byrði eða er laus og liðugur. Sé byrðin
borin í hendi, getur leitarmaður sagt í hvorri hendi hún er
borin. Iðulega hefur slíkur maður gefið lögreglunni nákvæma
lýsingu á óþekktum flóttamanni, útliti hans og sérkenmnn.
Þannig fullyrti einn leitarmaður, að maðurinn sem hann var
að leita að, væri kiðfættur. Þetta reyndist hárrétt. Annar vissi,
að flóttamaðurinn sem hann var að elta hefði rekið stóru tána
í stein og væri þvi haltur. Hinn innfæddi leitarmaður virðist
einbeita sér af gífurlegu hugarafli, og er þvi jafnan þögull,
þegar hann er að athuga kringumstæður. Er einbeiting hans
svo mikil, að hann virðist ekki vita neitt um annað sem gerist
kringum hann. Allt annað en það, sem hann einbeitir sér að,
hverfur honum.
Dr. A. P. Elskin, mannfræðingur frá Sidney-háskólanum,
varð blátt áfram furðu lostinn yfir sálrænum hæfileikum þess-
ara manna. Þegar hann ferðaðist milli þorpa í rannsóknarferð-
um sinum, virtust þorpsbúar jafnan vita um komu hans löngu
áður en hann og fylgdarlið hans nálgaðist. Þorpsbúar vissu
hvar hann hafði verið áður og hvert erindi hans var. Þó leiddi
rannsókn í ljós, að koma hans hafði hvorki verið tilkynnt af
sendiboða með reykmerkjum, trumbum né öðrum skiljan-
legum hætti. Aðspurðir um þetta einkennilega fyrirbrigði