Morgunn - 01.06.1973, Síða 37
SÁLRÆNIR HÆFILEIKAR FRUMSTÆÐRA MANNA 35
Þessi árangur vakti stórfurðu vísindamannanna. Ef þetta
var eingöngu tilviljun, þá gæti slíkt útkoma einungis náðst
einu sinni með þvi að reyna við þetta mörgum milljón sinn-
um. Hinir yfirskilvitlegu hæfileikar þessara innfæddu manna
eru þannig afar merkilegir og freista til rannsókna á öðrum
sálrænum eiginleikum þeirra.
Stórathyglisverðir hæfileikar á sviðum yfirskilvitlegrar
skynjunar hafa einnig komið í ljós hjá afrískum töframönnum
og svokölluðum diviners, en svo nefnast menn sem (stund-
um með aðstoð viðarsprota) geta fundið hvar vatn, olía og
málmar finnast í jörðu: Eru þessir hæfileikar jafnvel algengir
meðal þessa fólks. Dr. A. C. Hardy prófessor við Oxford-há-
skóla, víðkunnur visindamaður, hefur komizt svo að orði um
þetta: „Enginn maður, sem rannsakað hefur fordómalaust vitn-
isburðinn um hugsanaflutning meðal þessa frumstæða fólks
getur með nokkurri sanngirni hafnað þessum sönnunum án
þess að vera sekur um skort á heiðarleik í hugsun.“
Meðal Poro-þjóðflokksins inn á meginlandi Afríku er algengt
að nota eins konar leitarsprota. Eitt sinn gerðist það, þegar lög-
reglan stóð uppi ráðalaus vegna mikilla rána á plantekrubú-
görðum, sem ómögulegt virtist að upplýsa, að hún leitaði til
töfralæknis innfæddra á þeim slóðum. Siðan var imi tvö hundr-
uð grunuðum mönnum raðað upp í skógarrjóðri; voru þetta
vikapiltar, viðarhöggsmenn og ýmsir úr nærliggjandi þorpum.
Þá birtist töfralæknirinn og aðstoðarmaður hans og bar sá síð-
amefndi stóra leðursvipu.
Þegar þeir gengu nú meðfram allri röðinni og virtu fyrir sér
sérhvem mann, þá héngu svipuólamar niður af skaftinu. Allt
í einu fóm ólamar að iða ofsalega fram og aftur eins og lif-
andi snákar. Eins og hún byggi yfir eigin lífi, lamdi svipan ól-
unum leiftursnöggt um herðar og höfuð miðaldra þorpsbúa,
sem stóð fyrir framan þá í röðinni. Maðurinn sem rak upp
sársaukaöskur játaði þegar á sig glæpinn.
Slík fyrirbæri em stundum flokkuð undir það, sem á erlend-
um málum er kallað „motor-automatism", sem er einhvers
konar vélræn ósjálfráð viðbrögð í vöðvunum, sem talin em or-