Morgunn - 01.06.1973, Qupperneq 43
VIÐTOL VIÐ JOAN REID
41
— Þegar ég hjálpa fólki, fer ég fyrst að tala við Guð á minn
hátt og spyr, hvort hann vilji hjálpa mér með sjúklinginn. Allt,
sem gert verður, verði gert í hans nafni. Þar með fæ ég aðstoð
frá Honum til að hjálpa sjúklingnum.
— Hvenær lögðuð þér út á þessa braut?
— Ég byrjaði að starfa að lækningum árið 1957.
— Eruð þér skyggn?
— Ég sé í huganum hjálparmami.
— Hvernig hófst ferill yðar?
— Érá því ég var barn hef ég alltaf liaft áhuga á þessum
efnum, og ef einhver talaði um annað líf, vildi ég alltaf hlusta.
— Af hverju fóruð þér að hjálpa öðrum?
— Ég átti við erfiðleika að stríða í einkalífinu, og vegna
þeirra leitaði ég til Dr. Steabben í Baker Street i London, sem
sá hjálparmátt minn. Hjá honum starfaði ég í átta ár. Það eru
nú komin tvö ár síðan hann andaðist. Starfi hans var þannig
háttað, að á mánudögum voru lækningasamkomur, en á föstu-
dögum almennir fundir (circles).
— Fólk kom víða að til lækninga, og mörgum var veitt
aðstoð.
— Nokkrum árum fyrir fráfall dr. Steabbens þurfti að rífa
húsið, sem hann starfaði í. Það var honum mikið áfall. Hann
flutti þá til Brighton, þar sem liann hjálpaði fólki enn um sinn,
sendi bæði fjarstöddum hjálp og hjálpaði heima hjá sér. Eigin-
kona lians heldur áfram starfi hans.
Rétt fyrir andlátið sagði hann við mig: „Þú verður þekkt
fyrir lækningar þinar.“ Nokkru síðar var ég beðin að koma til
Islands. Hér er ég nú í f jórða sinn.
— Hvernig starfið þér?
— Ég starfa með Guðs hjálp. Af kærleika. Sjúklingarnir
sjálfh’ trúa mér og það styrkir mig líka ómetanlega. Það er
Indíánahöfðingi, lækmr, sem starfar í gegnum mig. Ég vinn
mikið með höndunum. Lagfæri bein, sem úr skorðum hafa
gengið. Nudda dálitið, ef með þarf. Fer um fólkið höndum til að
lækna það. Sumir skyggnir, sem hafa séð mig vinna, segja að
ég vinni með þrennum höndum.