Morgunn - 01.06.1973, Page 48
46
MORGCJNN
VINUM MlNUM FJÖLGAR ÖÐUM, OG HÉR Á ÉG
AÐ VINNA VERK MlN
Dulspeki hefur löngum skipað háan sess í hugskoti Islend-
inga. Aðstæðumar hafa frá aldaöðli verið hinar ákjósanleg-
ustu til þessara hugleiðinga og hefur margþættur fróðleikur í
minnum manna og einrdg skráður, varðveitzt.
I dag, þegar svo framorðið er, og tækni og vísindi á svo
háu stigi, er því ennþá þannig farið, að í öngum okkar leitum
við á náðir hins óþekkta, öllu æðra, er á bjátar og i fá hús leng-
ur að venda. Við eigum bágt og enginn getur læknað okkur.
Fólkið heftn- rambað milli lækna, reynt náttúrulækningar og
hugslökun árangurslaust.
En viti menn: Þeir eiga kost á hvalreka; miðill er í bænum,
sem alla læknar! Og nú er lagt af stað. öllu á að kippa í lag.
Fólkið fer á fund hans, verður fyrir djúpum áhrifum og
margt af því læknast. En þeir eru líka margir, sem ekki fá
það, sem þeir ætlast til, og bera þá miðlinum misjafnar sögur.
Sjúkdómurinn sækir í sama farið, kraftaverkið gerðist ekki.
Fæstum dettur í hug að leita neinna orsaka hjá sjálfum sér.
Hvað veldur kraftaverkunum?
Eigið hugarfar á stóran þátt í kraftaverkunum, en því vilja
margir gleyma. Það er eins og fólk álíti að með heimsókn til
miðils, sé það búið að gegnumgangast plástrun fyrir lífstíð, og
nú á ekkert að geta grandað því framar.
Ef hugleitt er, hvað meinsemdum veldur, eru sumar þeirra
af þeim toga spunnar, að það geta verið smá handtök, sem við
vinnum rangt, sem okkur eru að angra, þótt margt sé alvar-
legt og flókið. Ef við aðeins temjum okkur smá skynsemi dag-
lega, getinn við losað okkur við alls kyns kvilla, og fengið þá
þjónustu út úr líkama okkar, sem hann er til skipaður.
Joan Reid, sem verið hefur hér undanfarið, hefur reynzt
mörgum vel. Ef fólk hefur hennar ráð, getur það haldið áfram
að lagfæra lasna limi, taugar og vöðva, og hlýtur velliðan fyrir.
Hún er fyrst og fremst góð manneskja.