Morgunn - 01.06.1973, Side 55
ALTARISTAFLAN
53
fyrst. Þeir athuguðu hana gaumgæfilega frá öllum hliðum,
rýndu á hana í gegnum hönd sér og kváðu svo upp dóminn:
,,Guð minn góður, þetta gétur ekki gengið. Þetta er söguleg
fölsirn. Hér sýnir málarinn Krist sem unghng, en Jóhannes
skirara sem öldung. Biblían segir, að aldursmunm' þeirra hafi
aðeins verið sex mánuðir. Það getur ekki gengið að hafa þessa
mynd í guðshúsi.“
Aumingja konumar mðu bæði skelfdar og hryggar, þegar
þær heyrðu þennan úrskurð prestanna. En hér var ekki um
annað að gera en fjarlægja altaristöfluna hið bráðasta og kaupa
svo nýja altaristöflu. Eina bótin, að ekki höfðu verið greiddar
nema 300 krónur fyrir þessa, eða helmingnr þess, er upp var
sett. Var nú leitað til Jónasar Kristjánssonar læknis á Sauðár-
króki, og hann útvegaði konunum nýja altaristöflu eftir Guð-
mund frá Miðdal. En fyrri altaristaflan var tekin úr umgjörð-
inni og reist upp við illa málaðan og illa þurran kirkjuvegg til
þess að hlífa söngfólkinu, svo það fengi ekki málningarklessur
í föt sín. —
Eins og áður er sagt voru þeir Ölafur læknir og Kjarval góðir
vinir, en við Ölafur vorum bræðra- og systrasynir og mjög
samrýndir. Og ég held að ég hafi erft vináttu Kjarvals eftir
nafna minn, því að lengi hefur verið góð vinátta með okkur.
Einhverju sinni er ég hitti Kjarval, barst talið að altaristöflunni
á Ríp. Sagði ég þá í gamni, að ekki væri von að Hegranesbúar
hefðu viljað hafa töfluna, þar sem Jóhannes skírari væri eins og
fornmaður, en Kristur eins og drengur. Kjarval hlustaði á með
athygli, en sagði svo:
„Það er ekki verið að skíra Krist, það er verið að skíra smal-
ann. Skrifaðu fyrir mig á töfluna: Vígsla þjóðarinnar.“
Nokkrum árxmi seinna kom ég til kirkju á Ríp og sá þá
hvernig farið var með altaristöfluna. Varð ég bæði sár og
hryggur og sagði svo allir viðstaddir máttu heyra, að hér væri
illa farið með góðan grip, og þeir tímar gætu komið, að þessi
altaristafla yrði meira virði en kirkjan sjálf.
Nú liðu nokkur ár og á því tímabili kom einhver, sem vildi
kaupa töfluna og borga 50 krónur fyrir hana. Sóknamefndin