Morgunn


Morgunn - 01.06.1973, Page 57

Morgunn - 01.06.1973, Page 57
ALTAIUSTAFLAIST 55 hefði verið geymt þar. En frúin var óþreytandi í þvi að reyna að hafa upp á málverkinu og lét leita alls staðar, hátt og lágt, frá efstu loftiun niður í kjallara. En hvergi fannst málverkið. Stóð í þessu leitarbasli í rúm tvö ár. — En meðan á þessu stóð var ég eitt sinn sem oftar á miðils- fundi hjá Hafsteini Bjömssyni. Þar koma ætið til min faðír minn og Skúli prófessor og em svo „sterkir“, að ég get spurt og spjallað við þá góða stund. Að þessu sinni náði ég tali af Skúla og sagði honum farir minar ekki sléttar, alls staðar væri verið að leita að altaristöflunni, en hvergi fyndist hún. „Jú, hún kemur“, sagði hann. „Ekki kemur altaristaflan enn. Þú verður nú að segja mér afdráttarlaust, hvar hún er niður komin.“ Skúli segir: „Hún er í Statens Museum for Kunst og rís upp í homi í ruslaklefa, vafin upp á skaft og snæri bundið utan um. I þessum klefa er ýmislegt msl, bæði gagnlegt og ónýtt.“ Ég segi þá: „Hann svili þinn starfar þama við listasafnið. Veit hann ekki um þennan klefa?“ „Hann er nú farinn þaðan,“ segir Skúli, en um það vissi ég ekki. Þá segi ég: „Það verður líklega bezt fyrir mig að skrifa Gunnari frænda í sendiráðinu í Kaupmannahöfn“. „Já, það skaltu gera, Gunnar finnur töfluna,“ segir Skúli þá. Skömmu síðar skrifaði ég Gunnari Bjömssyni sendiráðsrit- ara í Kaupmannahöfn, sagði honum alla sólarsöguna um altar- istöfluna, og hvaða fréttir ég hefði nú fengið um það, hvar hún væri niður komin. Var ég alveg sannfærður um, að taflan mundi finnast þar sem Skúli vísaði á hana. Þess vegna bað ég Gunnar að ná í töfluna, koma henni í skrifstofu Flugfélags ís- lands og merkja hana Jóhannesi Snorrasyui flugstjóra, hann mundi áreiðanlega koma henni til skila. Aðeins nokkmm dögum eftir að Gunnar hafði fengið bréf mitt, fæ ég svolátandi skeyti frá honum: „Taflan fundin, allt stóð heima, meira í bréfi. — Gunnar.“ Já, allt stóð heima. Jóhannes Snorrason tók við töflunni og kom henni til skila.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.