Morgunn


Morgunn - 01.06.1973, Page 64

Morgunn - 01.06.1973, Page 64
62 MORGUNN manns þarna í bænum, sem hét A1 Layne, og var áhugamaður um dáleiðslu og biður hann að leggja sér góð ráð. Og í marz- mánuði árið 1901, gerðu þeir í dagstofunni á heimili Cayce óð- alsbónda tilraun, sem reyndist mjög mikilvæg fyrir framtíð Edgars, því það var hún, sem beindi honum inn á þá braut, sem átti eftir að verða lífsstarf hans. 1 rauninni svæfði Edgar sig sjálfur, en Layne og foreldrar hans voru viðstödd, reiðubúin til þess að hjálpa til, ef þess væri kostur. Edgar lét nú aftur augun. Andardráttur hans varð dýpri. Þegar Layne þóttist þess fullviss, að Edgar væri kominn í eins konar dá, fór hann að lýsa vanheilsu hans, sem hafði þjáð hann svo lengi. Þeir Edgar urðu sammála um það, að úr því að Edgar gæti ekki eða vildi ekki taka dásefjunum frá öðr- um, þá kynni hann kannske að geta komið af stað slíkri dásefj- un við sjálfan sig meðan hann væri í leiðslunni. Allt i einu talaði hinn sjúki maður með skýrri og hreinni rödd, eins og aldrei hefði neitt verið að henni. Hann sagði: „Já, við getum séð likamann.“ Hægt og skýrt lýsti hann svo orsökunum til þess að radd- böndin hefðu að nokkru leyti lamazt. Þetta kvað hann hægt væri að lækna með því, að auka blóðrásina til hinna óvirku vöðva og tauga. Á næstu tuttugu og fimm mínútum varð brjóst Edgars og háls eldrautt. Edgar stakk þá upp á því, að Layne skyldi hugsa fast um, að blóðrásin yrði aftur eðlileg, og gerði hann það. Þeg- ar Cayce vaknaði andartaki síðar var rödd hans hrein og skýr. Og þetta var upphaf á starfi, sem stóð i fjörutiu og fimm ár. Þegar fréttin af þessu „kraftaverki" tók að síast út, streymdu beiðnir til Edgars Cayces um að hjálpa öðrum með sama hætti og hann hafði hjálpað sjálfum sér. Edgar, sem var drengur góður, var fús til þess, en þó tregur i aðra röndina, því hann óttaðist að gera einungis vont verra. Hann minntist þess, að hann var með þessu að fást við mannslíf; hann, sem enga lækn- ismenntun hafði, dirfðist að segja læknum fyrir verkum. Auk þess hafði hann í rauninni ekki við annað að styðjast en það,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.