Morgunn - 01.06.1973, Page 71
HINN FUHÐULEGI EDGAR CAYCE
69
koma upp sjúkrahúsi. Að lokum rættist þetta og varð nokkuð af-
skekktur staður, Virginia Beach, fyrir valinu sem aðsetur
sjúkrahússins. Var stofnaður félagsskapur um þetta fyrirtæki
þann 6. maí Í927. Og nú var Edgar Oayce loksins búinn að fá
samastað fyrir starf sitt, eftir að hafá hrakizt árum saman frá
einum stað til annars.
1 nokkur ár gekk nú allt vel. Sjúkrahús var byggt og læknar
ráðnir. Einkaritarar gerðu skýrslur yfir þær þúsundir funda,
sem Cayce hélt og síðan var fylgzt vel með sjúklingunum og
árangur lækninganna færðui' á skýrslumar.
Aðalstefnan í lækningum þeim, sem fyrirskipaðar voru
gegn um Cayce, var ævinlega sú sama: Að lækna orsökina, en
ekki afleiðinguna; að stuðla að heilbrigði alls líkamans, svo
hann gæti sjálfur sigrazt á sjúkdómnum.
Kom þetta til dæmis vel í ljós í sambandi við tilfelli, þar
sem ung stúlka átti. í hlut. Var hún að því komin að leggjast
í rúmið vegna gigtar. Læknamir gáfu henni liin venjulegu
sársaukasefandi lyf, en henni fór hríðversnandi. En eftir að
hún hafði farið eftir þeim fyrirmælum, sem Cayce hafði gefið
henni, sem lá í sérstöku mataræði, nuddi og æfingum, tók
henni að batna og náði skjótt fullum bata.
Kreppan mikla 1929 lamaði fjárhagslega ýmsa helztu styrkt-
armenn sjúkrastofnunar Cayces á Virginia Beach. Hélt sjúkra-
húsið þó velli meðan stætt var, en varð að síðustu að loka, þeg-
ar allt fé var þrotið. Sjúklingamh vom sendir heim.
En árið 1931 var nýjum fólagsskap komið á fót í þessu skyni.
Stóðu einkum að þvi menn, sem heima áttu á Virginia Beach
og í nálægum hémðum. 1 þessu sambandi þurftu Cayce-hjónin
að fara til New York, og þótt ótrúlegt megi virðast, vom þau
tekin þar höndum! Vom þau ákærð fyrir að spá fyrir fólki.
Vom tildrög þess þau, að tvær lögreglukonur, klæddar venju-
legum borgaralegum fötum, höfðu komið til Edgars, þar sem
hann bjó á hóteli og þráðbáðu mn hjálp. Hélt hann fund fyrir
þær.
Var málinu þegar vísað frá dómi af dómara, sem meira hafði
til að bera af almennu velsæmi en ofsækjendur Edgars.