Morgunn - 01.06.1973, Síða 79
BÆKUR
77
Einar á prent en góðu hófi gegnir. Þá er hitt einnig leiðinlegt,
hversu dauft það ljós er, sem bókin bregður á Einar sjálfan.
Lesandi, sem ekki þekkir hann persónulega, veit satt að segja
ákaflega lítið um hann að lestri loknum; ekki einu sinni hvar
og hvenær hann er fæddur!
Þrátt fyrir þetta ber að fagna þessari litlu bók, því efni henn-
ar er gott, svo langt sem það nær. Höfundur hennar er lands-
kunnur útvarpsmaður og fjölhæfur. Hann hefur bæði stjómað
og samið þætti fyrir útvarpið og ekki ósjaldan kryddað þá með
frumsamdri músík. Ef dæma má eftir þessari fyrstu bók hans
er hann rithöfundarefni. Margt er gott um stíl hans að segja.
þótt hann eigi vafalaust eftir að þroskast með æfingu. Setning-
ar eru oft stuttar og stílhreinar. Það sem á einna ríkastan þátt
i þvi er það, hve hann forðast hina hvimleiðu ofnotkun greinis,
sem lýtir mjög málfar í samtímabókmenntum.
Með nýjum skilningi og vaxandi á þeim mikilvæga sannleik
að látnir lifa, virðast möguleikar hafa aukizt til þess að látnir
læknar geti rétt sjúkum hjálparhönd yfir landamæri tveggja
heima. Sökum ótrúlegs árangurs af starfi lækningamiðla er
ekki lengur hægt fyrir nokluirn fordómalausan og heiðarlegan
mann að skella skollaeyrum við starfi þeirra. Bróðurlegt sam-
starf með læknum og miðlum fer nú mjög í vöxt viða um heim.
Á Englandi er það til dæmis mjög gott. Enskum læknum er
það ljóst, að það samræmist illa Hippokratesareiði þeirra að
amast við því, að sjúkhngar sem þeir geta ekki læknað, fái bót
meina sinna fyrir milligöngu miðla.
Lækningamiðlar hafna því gjörsamlega, að þeir lækni sjálfir
þá sjúku. Þeir lýsa því allir yfir, að þeir séu einungis nauðsyn-
legur farvegur fyrir lækningamáttinn. En sendendur hans eru
venjulega látnir læknar, eins og Þórður Pálsson, sá er stjómar
lækningasambandi Einars á EinarSstöðum. En hjá honum taka
samtals tólf læknar þátt í lækningum, sérfræðingar í ýmsum
mismunandi greinum læknisfræðinnar.
Eins og eðlilegt er þurfa miðlar vafalaust að búa yfir sérstök-
um eiginleikum til þess að geta orðið góðir lækningamiðlar,
enda stendur þjálfun þeirra oft yfir í mörg ár. Eitt af því sem