Morgunn - 01.06.1973, Blaðsíða 82
80
MORGUNN
Miðilsstarfsemi.
eða blik manna, en teikningamar af þessu fyrirbæri voru
gerðar af sjáanda eins og hann skynjar þessa útgeislan, sem
svo oft og mikið er talað um, en fáir geta sjálfir séð. — Var
þetta merkilegt og fræðandi efni, sem mikill fengur var að. —
Verður vonandi framhald á þessum fræðslufundum með svip-
uðu sniði næsta vetur.
Björg Ólafsdóttir heftn- starfað fyrir félagið
í allan vetur með reglubundnum fundar-
höldmn tvisvar á dag fimm daga í viku, og hefur hún þannig
haldið á vegum SRFt um það bil þrjú hundruð fundi í vetur,
fyrir um það bil 1500 manns. — Er þetta að sjálfsögðu ómet-
anlegt framlag og félagsstarfinu mikill styrkur, og em henni
vottaðar einlægar þakkir fyrir gott og ánægjulegt samstarf. —
Þá hefur Jónina Magnúsdóttir einnig starfað reglubundið á
vegum SRFt í allan vetur og haldið mikinn fjölda lækninga-
funda fyrir meðlimi með góðum árangri. Eru henni einnig
fluttar þakkir fyrir hennar ómetanlega starf í þágu félagsins
og málefnisins. — Þá var félaginu mikill fengur að því, að í
lok nóvember og byrjun desember kom Einar Jónsson frá Ein-
arsstöðum í heimsókn til félagsins og starfaði á vegum þess um
tveggja vikna skeið með merkilegum árangri. Hann kom svo
aftur í aðra heimsókn nú í apríllok og dvaldi þá sömuleiðis hér
við andlegar lækningar um tveggja vikna skeið. — Er félagið
honum þakklátt fjnir þetta samstarf, sem það metur mikils, og
færir honum þakkir fyrir. — Þá var brezki miðillinn Joan
Reid hér á ferð við andlegar lækningar oftar en einu sinni:
hún dvaldi hér þrisvar sinmnn frá s.l. hausti, um sex vikna
skeið, og er hér nú sem stendur, þegar þetta er ritað, og mun
dvelja hér um svipaðan tíma, en jafnframt heimsækja félags-
deildimar á Suðumesjum og á Selfossi. Er hennar starf hér
orðið bæði þekkt, gifturíkt og ánægjulegt, þannig að þegar um
væntanlegar heimsóknir fréttist, þá fylgir slíku mikil eftir-
vænting almennt, og komast þvi miður færri að hjá frúnni en
þörf væri og æskilegt þykir, en við slíku verðin- því miður af
skiljanlegum ástæðum ekki gert. Vonandi er, að framhald geti
orðið á þessu starfi frú Joan Reid, svo sem flestir geti notfært