Morgunn - 01.06.1973, Side 84
82
MORGUNN
hverjum stað verður tekin í samvinnu við staðarmenn og með
hliðsjón af ýmsum aðstæðum. — Er ekki að efa, að þetta starf
Bjargar verður vel metið nú eins og áður, og að það verður
mikil lyftistöng fyrir félögin úti um landsbyggðina.
Þá standa til þess vonir, að Ævar R. Kvaran, ritstjóri Morg-
uns, muni eins og á s.l. sumri heimsækja einhver af félögunum
í sumarfríi sinu og flytja þeim fræðsluerindi um málefnið. Er
slíkt að sjálfsögðu ómetanlegur fengur fyrir starfið í heild, en
um þetta verða höfð nánari samráð við félögin, þegar ljósar
liggur fyrir um hverju Ævari muni kleyft að anna á þeim tíma
sem hann hefur til ráðstöfunar. — Vonandi standa einnig von-
ir til að einhverjir úr stjómarliði SRFf geti heimsótt einhver
félaganna í sumar, annaðhvort einir eða e.t.v. með Ævari, eins
og gert var í fyrra.
_ . „ , Það hefur orðið að ráði vegna vaxandi starf-
, !T semi SRFf, að fastur starfskraftur gegni
S, .„S, T störfum á skrifstofu SRFÍ hluta úr degi, frú
1. jum að telja. Verður sknistoían opm
seinni hluta dags frá mánudegi til föstudags framvegis.
Eins og að framan er getið var í lok janúar s.l. stofnað Sálar-
rannsóknafélag Skagafjarðar. Auk stofnfundar hefur verið
haldinn einn almennur fundur, þar sem Ólafur Tryggvason
frá Akureyri mætti. Félagar eru þegar milli 70 og 80.
Vandinn sem slík félög eiga við að stríða liggur vitanlega
að nokkru í því hve héraðið er stórt. Þannig er fimm manna
stjórn þessa nýja félags nokkuð dreifð. Formaður er bóndi og
situr eðlilega mestan tima að búi sínu, nema hann sé á Al-
þingi. Varaformaður er prestur að Mælifelli, gjaldkeri húsfrú
í Blönduhlið, gjaldkeri er verktaki á Sauðárkróki o.s.frv. Áhugi
félagsmanna mun vafalaust brúa alla byrjunarerfiðleika.
Morgunn óskar Skagfirðingum til hamingju með þetta nýja
myndarlega félag og óskar því gæfu og gengis í framtíðinni.