Morgunn - 01.06.1976, Qupperneq 12
10
MORGUNN
engan veginn hæf til þess að sýna oss heiminn eins og hann
er í raun og veru. Radíóbylgjur, útgeislun og kjarnorka, svo
tæpt sé á nokkrum dæmum um fyrirbæri vorra tíma, hafa
sannfært oss um það, svo á því er ekki minnsti vafi, að vér
erum umkringd ósýnilegum bylgjum og ólgandi krafti, og að
hinn allra minnsti efnishluti inniheldur slikan ógnarkraft að
imyndunarafl vort getur ekki gert sér þess fulla grein.
Það hefur því heldur dregið úr oflæti voru, af því að nú
vitum vér að vér reynum að skynja heiminn eins og gegnum
örþrönga rifu. Skynjun vor á öldutíðni ljóssins gerir oss ein-
ungis fært að sjá ofurlítið brot af litrófi þess. Með sama hætti
nær hljóðskynjun vor ekki yfir nema þrönga áttund, ef svo
má að orði komast, af nótnaborði hljóðsins í alheiminum. Til
eru blístrur, kallaðar hundahlístur, sem hægt er að nota til
þess að kalla á hundinn sinn, þótt eigandi hans geti ekkert
heyrt í blístrunni, sökum þess að tiðni hljóðsins sem hún
myndar er fyrir utan ýtrustu heymarmörk mannsins. Til eru
mörg önnur dýr, til dæmis fuglar og skordýr, sem hafa næm-
ari sjón, heyrn og ilman en vér. Niðurstaðan verður þvi sú,
að í alheiminum sé sitt af hverju, sem oss er fyrirmunað að
skynja.
Hugsandi maður tekur nú að furða sig á þessari nýju mynd
af hinni stoltu mannveru, sem stendur að baki skordýrum,
fuglum og eigin uppfinningum í því að skynja tilveruna. Og
hann fer að velta því fyrir sér, hvort sé ekki möguleiki fyrir
hann sjálfan að sjá og skynja þessar ósýnilegu dásemdir.
Hugsum oss til dæmis að vér gætum einhvem veginn þjálfað
skilningaiNÍt vor eða bætt þau á þann hátt að næmi vort á
öldutíðni Ijóss og hljóðs ykist ofurlítið. Myndi það ekki leiða
til þess að vér yrðum vör við sitt af hverju, sem áður var oss
hulið? Eða imyndum oss að nokkrar manneskjum meðal vor
fæddust með dálítið aukna skynvídd. Væri þeim ekki eðlilegt
að sjá og heyra ýmislegt, sem vér hin gætum hvorki séð né
heyrt? Kynnu þær ekki að heyra í fjarlægð, eins og þær
hefðu innbyggt viðtæki, eða sjá í fjarlægð, eins og þær liefðu
innri sjónvarpsskjá?