Morgunn - 01.06.1976, Blaðsíða 66
64
MORGUNN
Frœdin um skilgreiningu hinnar þreföldu trúar.
Seytjándi kafli Bhagavad Gita fjallar um trúna. — Hér,
eins og í öllum upplýstum trúarbrögðum, kemur fram hið
mikla grundvallaratriði að öli trú er fyrst og fremst tviþætt,
þótt ekki sé lögð á það sérstök áherzla að túlka þetta þannig
í hinu indverska ijóði. — Trú sem er raunhæf er annarsvegar
huglæg og beinist að skilningi mannsins i lífinu með vitræn-
um hætti, og hinsvegar trú í verki, þar sem kærleikseðlið eins
og það er i hverjum manni, birtist með raunhæfum hætti og
opinberar hið innra eðli mannsins eða skaphöfn hans og til-
finningar. — 1 upphafi kaflans spyr Arjuna um eðli trúar-
innar, og hinn Blessaði fræðir hann hér um það, hvernig trú
manna mótist af eðlisþáttunum þrem, Sattwa, Bajas og Tamas,
og verði þannig með þrennskonar móti, og hann skilgreinir
merkilegan hátt hvernig trú manna hefir áhrif á allt þeirra
lif og hátterni. 1 hinu djúpúðga svari kemur fram, að eins og
trúin sé, þannig sé maðurinn sjólfur; trúin sé maðurinn í
raun og sannleika. Hún sé grundvöllurinn að upplagi hans og
móti eðli hans í einu og öllu til orðs og æðis. — Hið bjarta,
hreina og tæra eðli Sattwa kemur fram í gæflyndi, góðleik,
viturleik og dyggðum hins guðhra'dda manns; mannsins sem
er gæddur sannri trúarlotningu, sem skilur grundvallarlög-
mál anda og likama og brýtur þau ekki viljandi. — Eðli Rajas
rikir hinsvegar hjá þeim, sem trúa á heiminn og elska hann,
og þeir auðkennast af sjálfselsku, hégómleik, áfergju, geð-
ofsao og drottningargirni og skefjalausri eftirsókn eftir ver-
aldargæðum. — Tamas-eðlið birtist í andlegri formyrkvun;
skilningsleysi manna á æðri se'm og almennum verðmætum
og markmiðum, er þeir af heimsku sinni misþyrma sínu eigin
eðli og ánetjast óguðlegum lifsháttum, haldandi að í slikri
vitleysu felist leiðin til sælu, sálubótar eða lausnar. — At-
höfnin eða fórnin í lífi manna, gjafir þeirra til mannlífsins,
framferði þeirra, og á sama hátt, fæðan sem þeir leggja sig
eftir, allt þetta grundvallast á trúareðli þeirra og eðlisþátt-
unum þremur. — Fórn Sattwa-eðlis er óeigingjörn, færð Guð-