Morgunn - 01.06.1976, Blaðsíða 82
Rannsóknir
dulrænna
hæfileika.
Það hefur ekki þótt sérstaklega hagkvæmt
framan af þessari öld fyrir mann sem vill
halda áliti og virðingu á sviði vísinda, að láta
hafa of mikið eftir sér opinberlega um svo-
kölluð dulræn fyrirbæri, nema þá annaðhvort að henda gys
að þeim eða telja þau hugaróra eina. En reynslan hefur þó
kennt ýmsum, að maður fær höfuðverk af því að lemja höfð-
inu við steininn of lengi. Og þareð dulræn fyrirbæri hafa
gerst frá upphafi vega og halda áfram að gerast, hvort sem
mönnum likar betur eða ver, þá hafa gáfaðir vísindamenn
séð, að vísindin geta ekki endalaust skotið sér undan því að
rannsaka fyrirbæri, þótt þau falli ekki sem best inní þá mynd
sem efnishyggjan hefur gert sér af tilverunni. Nú er svo
komið, að ekki er lengur efast um framangreind fyrirbæri
og smám saman tekið að rannsaka þau á vísindalegan hátt
eftir því sem mögulegt er. En róðurinn er þungur, því flest
það sem vísindin rannsaka í tilraunastofum sínum þarf að
vera hægt að endurtaka ótal sinnum, svo hægt sé að kom-
ast að vísindalegum niðurstöðum. En þetta er afarmiklum
erfiðleikum bundið, sökum þess hve sálrænt fólk hefur lít-
ið vald á yfirskilvitlegum hæfileikum sínum. Þó fyrirfinn-
ast einstaklingar, sem hafa merkilega stjórn á þessum eigin-
leikum og eru þvi mjög eftirsóttir til vísindalegra rannsókna.
Einn af þeim er fslendingurirm Hafsteinn Björnsson miðill,
sem hefur farið til rannsókna hjá dulsálarfræðingum Amer-
íska sálarannsóknarfélagsins í New York og er nú enn á för-