Morgunn - 01.06.1976, Blaðsíða 100
98
MORGUNN
Síðan skaltu loka augunum, slaka aftur á og spyrja sjálfan
þig aftur spurningarinnar, Hver er ég? í þetta skipti skaltu
leita svarsins í formi myndar (eða mynda), sem þú munt sjá
fyrir hugskotssjónum þínum. Ekki hugsa um svarið, leitaðu
bara að myndum í huga þér. Skrifaðu lýsingu á því, sem þú
kannt að sjá, hvað svo sem það nú kann að vera. Skrifaðu
einnig niður þær tilfinningar sem hjá þér vöknuðu í sam-
bandi við myndina og lýstu þýðingu myndarinnar fyrir þig.
Þessi aðferð leiðir til aukinnar sjálfsþekkingar og því meiri
árangur fæst, þeim mun oftar sem æfingunni er beitt.
Geymdu og skoða þau í tímaröð öðru hvoru. Því oftar sem
þú spyrð þig þessarar spumingar, Hver er ég, því fleiri hlið-
um kynnist þú á sjálfum þér. Þannig kemstu smátt og smátt
nær kjarna sjálfs þín.
Oft leiða slíkar æfingar til þess að fólk færir niðurstöð-
urnar inn i Sálrœna dagbók, þar sem einnig má skrifa
niður ýmsar upplýsingar, hugmyndir eða lífsreynslu, sem
efla þekkingu þína á sjálfum þér eða vekja hjá þér spuming-
ar, sem þig langar til að svara. Einnig geturðu í sálrænu dag-
bókinni rætt við sjálfa(n) þig um drauma, dagdrauma, lang-
anir, hugmyndir, imyndanir, sérstæð áhrif, lífsreynslu, til-
finningar, vandamál, gleði og hugrenningar í sambandi við
sjálfa(n) þig, lífið, annað fólk og tilveruna. Það auðveldar oft
framsetningu og eflir skilning þinn að tjá þig lika með teikn-
ingum, rissmyndum, iitum eða táknmyndum, eftir því sem
við á.