Morgunn - 01.06.1976, Qupperneq 68
66
MORGUNN
sjálft innantómt og dautt, hversu glæsilegt sem það kann að
virðast á yfirhorðinu; það verður óhreint og ógöfugt. — Til
að það geti í sannleika verið göfugt verður framkvæmandinn
að leggja það af mörkum af kærleik hugans, heiminum til
góðs, eins og hann væri starffæri Guðdómsins sjálfs. — 1
niðurlagi þessa kafla segir hinn Mikli Drottinn við hinn
hrjáða mann þessi athyglisverðu orð: „Þreföld er leiðin til
vítis og leiðir til andlegs dauða; hún er fýsn, hatur og græðgi.
En maðurinn, sem fetar ekki framar þessa þreföldu leið myrk-
ursins, ávinnur sjálfum sér sælu og fetar hina æðri braut.
Lát þú helgiritin vera þitt úrskurðarvald um hvað rétt er og
hvað rangt, og er þú veizt hvað boðorð helgiritanna mæla
fyrir skaltu haga lífi þínu hér i samræmi við það.“
Almennt nefnist þessi kafli Skilgreining hinnar Þreföldu
Trúar, en eins og í öðrum köflum Bhagavad Gita eru nokkur
frávik í nafngiftinni þótt í aðalatriðum sé ekki um mismun
að ræða, fremur smekksatriði í framsetningu í hinum mis-
munandi þýðingum.
Kenningin um sálubót fyrir sjálfsafneitun.
1 lokakviðu hins mikla helgirits Bhagavad Gita fræðir
Krishna hinn göfuga prins Arjuna um leiðina til lausnar
fyrir Yoga sjálfsafneitunar. 1 samandregnu máli er þetta
kjami málsins: Eðli athafnanna er hinn mikli leyndardómur,
og menn greinir á um leiðir til að losna úr viðjum þeirra.
Enginn getur i rauninni afsa'lað sér athöfnum sinum sökum
eðlis eiginleikanna, lögmálsins, Gunas; og sá sem álítur sálina
gjörandann er bindur. Lausn fæst aðeins fyrir vitsmuni og
þekkingu, sjálfsafneitun og innri stjórn, einlæga guðstrú og
kærleika i verki, en ekki fyrir afsál athafna. Þrennskonar er
eðli vitsmunanna, byggt á eiginleikunum þrem; hin hreina
vizka ólituð af sjálfselskunni; veraldarvit og ástríðufullar
fýsnir heimsdýrkandans er þráir veraldarframa, auð og völd;
og, að síðustu, glámskyggni hins afskræmda og brenglaða