Morgunn - 01.06.1976, Page 22
20
MORGUNN
að leiðarljósi í siðferðilegum efnum. Yissulega væru til trú-
flokkar í Austurlöndum og Indlandi, sem kenndu sálnaflakk
úr mannsmynd til dýrs. En þetta væri mistúlkun hinnar
sönnu endurholdgunarkenningar. Jafnvel kristnidómurinn
væri einnig til í afskræmdum og villandi myndum. Það væri
þvi ekki viturlegt að láta lauslega kynningu á þessum afmynd-
unum loka hug sinum fyrir þeim sannleik sem felast kynni
i frumtrúnni.
Lammers gat bætt við þetta ýmsum nánari útskýringum.
Endurholdgun táknar þróun, sagði hann. Þróun mannsand-
ans gegn um mörg líf á jörðinni, hvert á fætur öðru. Ýmist
fæðist vera sem karlmaður eða kvenmaður, fátækur eða rikur,
ýmist tilheyrir hún þessum kyoþættinum eða hinum, þangað
til andinn hefur náð þeirri fullkomnun, sem Kristur sagði oss
að keppa að. Sálin er eins og leikari, sem tekur að sér mis-
munandi hlutverk og klæðist mismunandi búningum frá
kvöldi til kvölds. Eða lík hönd sem íklæðist glófa efnislíkama
um stund og skiftir síðar aftur um hanska, þegar sá fyrri er
slitinn orðinn. Fjöldi gáfaðra manna á Vesturlöndum hafa
fallist á þessa kenningu og skrifað um hana. Þannig trúði
heimspekingurinn Schopenhauer statt og stöðugt á hana. Sama
máli gegndi um Emerson, Walt Whitmann, Göthe, Giordino
Bruno, Plotinus, Pyþagóras og Plató.
En svar Cayces við þessu var, að þetta væri nú svo sem allt
gott og blessað, en hvað um kristnina? Væri hann ekki að af-
neita Kristi og kenningum hans, ef hann féllist á endurholdg-
unarkenninguna?
Lammers kvað það fjarri sanni. Hvað væri í rauninni kjam-
inn i kenningu Krists? Lögfræðingur úr flokki farisea hefði
eitt sinn spurt Krist þessarar spurningar og svar hans var:
„Þú skalt elska drottinn, Guð þinn, af öllu hjarta þínu og af
allri sálu þinni og af öllum huga þínum . . . Þú skalt elska
náunga þinn eins og sjálfan þig. Á þessum tveimur boðorð-
um byggist allt lögmálið og spámennirnir." (Mattheus 22.
37-40).