Morgunn - 01.06.1976, Síða 23
SVO SEM MAÐURINN SAIR . . .
21
Hvernig gat þessa einfalda en viturlega kenning brotið í
bág við þann ramma um framþróun mannsins sem endur-
holdgunarkenningin gerði ráð fyrir? Og hvernig gat þessi
kærleikskenning yfirleitt brotið í bág við nokkur hinna miklu
trúarbragða heimsins? „Ekki skaltu aðra særa á þann hátt að
það myndi sjálfan þig særa“, hafði Buddha sagt. „Þetta er
meginkjarni skyldunnar: gerðu öðrum ekkert sem valda
myndi sjálfum þér sársauka, ef það væri við þig gert,“ er
kennt er í ritningu Hindúa. Og hvorki Hindatrú né Buddha-
trú gátu fundið nokkurt ósamræmi milli kærleikslögmálsins
og þess andlega þróunarlögmáls, sem nefnt hefur verið endur-
holdgunarkenning.
Ekki nægði þetta samt til þess að sannfæra Cayce. Þegar
hann var tíu ára hafði honum verið gefið eintak af Biblíunni.
Þessi bók hafði heillað hann. Þá hét hann því að lesa hana
spjaldanna milli ár hvert af ævi sinni. Og þegar hann var
búinn að lesa hana nægilega oft til þess að ná upp árunum
áður en hann varð læs, hélt liann þessu áfram kerfisbundið
einu sinni á ári. 1 þessari elskuðu bók hafði hann aldrei öll
þessi ár rekist á orðið endurholdgun. Hvers vegna minntist
Biblían aldrei á endurholdgun, og það sem meira var um vert,
ekki heldur Kristur sjálfur?
Lammers svaraði því til, að ef til vill hefði Kristur gert það.
Það má aldrei gleyma því, að hann kenndi lærisveinum sín-
um margt, sem hann ekki kenndi fjöldanum. Og enda þótt
hann hefði haldið fram endurholdgunarkenningunni við al-
menning, þá ber þess að minnast, að hinar upphaflegu frá-
sagnir af kenningum hans hafa orðið fyrir margs konar breyt-
ingum gegnum aldirnar, sökum þess skilnings sem lagður var
í orð hans og vegna þýðinga gegn um mörg tungumál. Þess
vegna kunna margar raunverulegra kenninga Krists að vera
glataðar oss. Einn staður í Biblíunni hefur þó varðveist að
minnsta kosti. Það er þar sem Kristur sagði lærisveinum sin-
um að Jóhannes skírari væri Elía endurfæddur (Mattheus
17:12-13). Að visu notaði hann ekki orðið endurholdgaður,
en hann sagði þó: „Eg segi yður, að Elía er nú þegar kom-