Morgunn


Morgunn - 01.06.1976, Side 29

Morgunn - 01.06.1976, Side 29
SVO SEM MAÐURINN SÁIR . . . 27 og stað. Þá gat hann lýst kringumstæðum þeirra og leynd- ustu skaphafnareinkennum, talið upp kosti þeirra og galla og rakið þá til sennilegra atvika í fyrri lífum, þar sem þeir hefðu byrjað að myndast. Ef nákvæm lýsing á skaphöfn bláókunnugs manns hefði einungis komið fram einu sinni, mætti heimfæra það undir tilviljun. En þegar minnst er óteljandi mismunandi eðliskosta manna og takmarkalausra gjörólíkra kringumstæðna i mann- lífinu, þá verður tilviljunin allfurðuleg. Þegar slikar réttar lýsingar koma margoft fram fer að verða erfitt að útskýra þetta allt saman sem tilviljanir. Enn var eitt annað sem Cayce varð var við í sambandi við hve líflestrarnir voru réttir gegnum árin, en það var live . óskeikulir þeir reyndust í lýsingum á skaphöfn bama og starfshæfileikum. Líflestur sem gerður var fyrir barn eitt í Norfolk á fæðingardegi þess, fullyrti að barnið væri þrálynd, einþykk og þrjósk vera, sem erfitt yrði að hafa stjórn á. Þegar barnið óx komu þessi skaphafnareinkenni i ljós með þeim hætti að ekki varð um villst, og er sennilega óhætt að full- yrða, að ekki hafi foreldrarnir átt neinn þátt í þvi að vekja viljandi slík einkenni. Ennþá eftirtektarverðara dæmi var um drenginn, sem fékk líflestur þrem vikum eftir fæðingu, þar sem fullyrt var að hann gæti orðið frábær læknir. Allir þeir gallar sem líflestur- inn hafði gefið til kynna að væru í skaphöfn hans komu snemma í ljós, en jafnframt áberandi áhugi á læknisfræði. Átta ára gamall fór hann að skera upp dauð dýr til þess að komast að þvi hvernig þau væru gerð; og áður en hann náði unglingsaldri var hann farinn að gleypa í sig bækur um lækn- isfræði. Tólf ára gamall lýsti hann því yfir við föður sinn, að hann hefði í hyggju að stunda læknisfræði við John Hop- kins-háskólann. Faðir drengsins var kaupsýslumaður í New York, en móðir hans leikkona. Leist þeim í fyrstu báðum illa á það að hann færi í læknisfræðinám og reyndu að telja honum hughvarf. En einbeitni hans vann bug á öllum hindr- unum, og þegar þetta er skrifað er hann við læknisfræðinám
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.