Morgunn - 01.06.1976, Blaðsíða 54
SVEINN ÖLAFSSON:
Lífsbót og sdluhjálp
í spennitreyju vestrænnar streitumenningar:
helgiljóðin miklu
— Hávamál Indíalands —
BHAGAVAD GITA
SEINNI HLUTI
LeiÓ hinnar konunglegu þekkingar.
Níundi kaflinn hefir verið nefndur á ýmsan veg, svo sem
Yoga Dulfræðanna eða Launspekinnar og einnig fræðin um
hinn Konunglega Leyndardóm og hina Konunglegu þekkingu.
— f þessum kafla fræðir hinn Blessaði Krishna Arjuna prins
um leyndardóm hinnar æðri þekkingar og vizku. Hann segir
honum, að þar sem hann sé gæddur óbrigðulli trúarvitund
og sé laus við efa, þá skuli hann opinbera honum hinn dýpsta
leyndardóm: þekkingu á Guði, sem sé honum nær en hann
viti, og verund Hans opin hans innstu sjón, beint og í leiftr-
andi sviphending, fyrir öryggi trúarvissunnar. Þessi þekking
segir Krishna, er allri annari þekkingu æðri veitir vernd gegn
öllu íllu; hún 'hreinsi sál hans og auki honum þrek og þor, og
hrifi hann með sínu frelsandi afli úr hringhvirfing þjáningar-
innar og hinnar takmörkuðu sköpunar.— En þeir, segir hann,
sem ekkert trúarskyn hafa munu ekki finna mig, og þeir
munu snúa til baka til hins hverfula og dauðlega. — Þá lýsir
Krishna fyrir Arjuna hvernig Vasudeva, sem er allt í öllu
og hin andlega undirstaða alls hins skapaða, kemur fram bæði
sem hið Eina og sem hið Margfalda með dularfullum hætti.
Og hann segir: „Ég er faðir tilverunnar, móðir, ættfaðir henn-
ar og skapari. Ég er vegurinn, meistarinn, sem skoðar í þögn,