Fréttablaðið - 08.11.2010, Page 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Mánudagur
skoðun 12
FASTEIGNIR.IS8. NÓVEMBER 201045. TBL.
Fasteignamarkaðurinn hefur til sölu einbýlishús á tveimur hæðum í Hrauntungu.
H úsið er nokkuð endurnýjað og 198,6 fm á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr.
Komið er inn í húsið á efri hæð í flísalagða forstofu með fataskáp-um. Inn af forstofu er gestasalerni og einnig parketlagt herbergi með fataskápum. Hol er parketlagt og rúmgott. Svefngangur er parket-lagður og með skápum. Tvö barna-herbergi. Hjónaherbergi er með skápum á heilum vegg og með út-gangi á stórar flísalagðar svalir til suðurs þaðan sem stigi er niður á lóð. Baðherbergið sem er nýlega endurnýjað með glugga og er flísa-lagt í gólf og veggi. Gólfsturta og handklæðaofn eru í baðherbergi. Úr holi er gengið tvö þrep upp í samliggjandi bjartar og rúmgóðar parketlagðar stofur með fallegu út-sýni til suðurs og útgangi á stórar flísalagðar svalir. Fallegur arinn er í stofum.
Eldhúsið er stórt, dúklagt og með bæsuðum eikarinnréttingum með flísum á milli skápa. Nýleg tæki eru í eldhúsi.
Á neðri hæð hússins sem bæði er innangengt í um steyptan stiga og með sérinngangi af neðri hæð er komið á gang.Þvottaherbergi er með glugga, flísalagt og með sturtu. Inn af þvottaherbergi er flísalagt salerni. Stórt herbergi með eldhús-krók inn af. Innangengt er í bíl-
skúr sem er flísalagður og með raf-magni, hita og rennandi vatni. Inn af bílskúr er ca. 50 fermetra óinnréttað rými með hita og raf-magni. Mögulegt er að innrétta það en er ekki innifalið í stærð hússins.
Húsið er nýlega klætt að utan með múrklæðningu og málað. Nýleg vatnsbretti eru undir glugg-um. Þak er nýlega málað og í góðu lagi.
Í suðurhlíðum Kópavogs
Húsið er nýlega klætt að utan með múrklæðningu.
heimili@heimili.is
Sími 530 6500
Ertu í söluhugleiðingum eða viltu kaupa?
Ég legg mig fram um að veita bestu
mögulega þjónustu.
Framúrskarandi árangur
Edwin Árnason
Sölufulltrúi
edwin@remax.is
Sími: 893 2121
Þórarinn
Jónsson hdl.
lögg. Fasteignasali
Hringdu núna
893 2121
Lind
Ég bíð uppá verðmat þér að kostnaðarlausu
innan höfuðborgarsvæðisins.
híbýli og viðhald
MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2010
8. nóvember 2010 MÁNUDAGUR
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
HUB er bresk vefsíða sem selur eingöngu handgerða heimilismuni á fremur viðráð-
anlegu verði. Þar má meðal annars finna þennan skemmtileg lampa, svokallaðan Sparrow Lamp. Sjá www.hubinteriordesigns.co.uk/.
Kristín Nikulásdóttir húsfreyja á fagra hluti sem minna hana á föður hennar Nikulás Árna Halldórsson.
Fyrir bústaðinn og heimilið
3 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Híbýli og viðhald
Fasteignir
veðrið í dag
8. nóvember 2010
262. tölublað 10. árgangur
Kristján Jóhannsson óperusöngvari leggur
spilin á borðið í áhrifamikilli ævisögu
Ötull, dáður, umdeildur
Ekkert verður bannað
Hlín Einars ritstýrir nýjum
kvennavef.
fólk 26
HARMÓNIKKUBALL Í VÍKINNI Félagar í Harmónikkufélagi Reykjavíkur léku fyrir dansi á balli sem fram fór í Betri stofu Sjóminjasafns-
ins í gærdag, í annað skiptið í haust. Hægt verður að dansa undir harmónikkuleik fyrsta sunnudag í mánuði í allan vetur í Víkinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFAN
DREGUR ÚR VINDI þegar líður á
daginn. Rigning eða slydda norð-
austan- og austanlands en slydduél
norðvestan til. Bjart eða nokkuð
bjart sunnan- og vestanlands.
VEÐUR 4
2
3
3
2
3
MENNTAMÁL „Ég hef áhyggjur af
því hvort menntun lögfræðinga
sé í öllum tilvikum nógu góð,“
segir Brynjar Níelsson, hæsta-
réttarlögmaður og formaður
Lögmannafélags Íslands.
„Útskrifaðir lögfræðingar sem
við erum að fá í lögmannapróf til
að öðlast lögmannsréttindi, eru að
falla í stórum stíl, sem er ekki nógu
gott,“ segir Brynjar sem telur nauð-
synlegt að gerð verði úttekt á laga-
námi hér á landi. Athuga þurfi hvort
námið fullnægi eðlilegum kröfum
sem gera eigi til slíks náms.
„Þá þurfa þeir sem vinna mikil
ábyrgðarstörf hjá dómstólum og
í stjórnsýslunni ekki að taka lög-
mannspróf,“ bætir Brynjar við.
Í formannspistli í síðasta Lög-
mannablaði bendir Brynjar meðal
annars á að sé menntun lögfræð-
inga ófullnægjandi og kunnátt-
an lítil muni þeir sem sinna lög-
fræðistörfum ekki njóta trausts og
trúverðugleika. Það geti haft alvar-
legar afleiðingar.
Fjórir íslenskir háskólar kenna
nú grunnnám og meistaranám í lög-
fræði. Þeir eru Háskólinn á Akur-
eyri, Háskólinn á Bifröst, Háskóli
Íslands og Háskólinn í Reykjavík.
„Þessir skólar hafa haft nokkuð
frítt spil,“ útskýrir Brynjar. „Þeir
ráða hvaða fög þeir kenna, hver
lágmarkseinkunnin er og svo fram-
vegis. Það sem ég hef áhyggjur af
er að við erum að fá hér hópa af
lögfræðingum, sem hafa fengið litla
eða enga kennslu í grunnfögum lög-
fræðinnar. Menn segja svo að mark-
aðurinn vinsi bara úr, en hann mun
aldrei stjórna þessu fullkomlega.“
Í Fréttablaðinu í mars kom fram
að stór hluti þeirra sem þreyttu
próf til lögmannsréttinda á árunum
2005-2009 stóðst ekki prófið.
Brynjar segir að í sum störf sé
lögfræðimenntun skilyrði. Gera
þurfi ráð fyrir því að í lögfræði-
prófinu felist að menn geti leyst úr
úrlausnarefnum sem varði oft mikla
hagsmuni einstaklinga og félaga.
Engin fullvissa sé fyrir því að
einstaklingar uppfylli þessi skil-
yrði þegar nám og kröfur fari eftir
geðþótta skólastjórnenda.
„Því segi ég að það þurfi að gera
nokkuð samræmdar kröfur um
grunnnám í lögfræði sem allir skól-
ar verða að hlíta. Svigrúm skólanna
mætti síðan vera meira í meistara-
námi,“ segir Brynjar Níelsson. - jss
Útskrifa lögfræðinga
án grunnþekkingar
Formaður Lögmannafélags Íslands hefur áhyggjur af mismunandi kröfum til
grunnmenntunar í lögfræði í háskólunum. Hann segir útskrifaða lögfræðinga
falla í stórum stíl á lögmannaprófi og að brautskráð sé án grunnþekkingar.
Skóli Skráðir Náðu Hlutfall
HÍ 193 137 71%
HR 45 16 36%
Bifröst 19 5 26%
HA 4 0 0%
Heimild: Prófnefnd Lögmannafélags Íslands,
úr prófum til réttinda héraðsdómslögmanna
árin 2005-2009
Héraðsdómslögmenn
Skipulagsfræðingafélag
Íslands 25 ára
Veita verðlaun á Alþjóðlega
skipulagsdeginum.
tímamót 14
Grétar Rafn sá um Bale
Grétar Rafn Steinsson
var á skotskónum gegn
Totttenham um helgina.
sport 22
VÍSINDI Neanderdalsmenn voru
lauslátari en nútímafólk. Þessu
halda vísindamenn við háskól-
ana í Liverpool og Oxford fram,
og styðjast þar við steingerv-
inga af fingurbeinum þessara
forfeðra okkar.
Kenningin er sú að hormón-
ar hafi bæði áhrif á fingurlengd
og lauslæti. Neanderdalsmenn
voru yfirleitt með lengri baug-
fingur en vísifingur, og það
telja þessir vísindamenn benda
ótvírætt til lauslætis þeirra.
- gb
Mannfræðingar spá í genin:
Neanderdals-
menn lauslátir