Fréttablaðið - 11.11.2010, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 11.11.2010, Blaðsíða 36
 11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR Opið virka daga kl. 10-18 Opið laugardaga, í Bæjarlind kl. 10-16 í Eddufelli kl. 10-14. Bæjarlind 6, Eddufelli 2, S. 554 7030 S. 557 1730 25% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM KJÓLUM Fimmtudag, föstudag og laugardag NÝTT KORTATÍMABIL Kíkið á heimasíðuna okkar www.rita.is FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Opið mán.-fös. 10-18. Lau. 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Vertu vinur TVEIR ALVEG HRIKALEGA FLOTTIR teg. FALLON - push up í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 7.680,- buxur í stíl á kr. 2.990,- teg. FALLON - push up í A,B,C,D skálum á kr. 7.680,- buxur í stíl á kr. 2.990,- Barnafatnaður frá Ej sikke lej , Mini A Ture, Bifrost og Danefae. Sokkabuxur frá Melton og íslensku merkin Rendur og Sunbird . 20% afsláttur á öllum vörum frá Ej sikke lej, Mini A Ture og Bifrost. Laugavegi 61 - 101 Reykjavík - S: 552 7722 „Þetta var algjör draumur og ynd- isleg upplifun,“ segir Katrín Ósk Guðlaugsdóttir, meistaranemi í hárgreiðslu, en hún vann til silfur- verðlauna í lokakeppni Wella Trend Vision-keppninnar sem fram fór í París nú um helgina. Katrín keppti við hárgreiðslufólk frá 46 þjóðlönd- um. „Þetta þykir mikill heiður. Ég geri mér kannski ekki grein fyrir því enn þá hvaða áhrif þetta mun hafa. Keppnin sjálf var svo miklu stærri en ég átti von á og allt mjög vel skipulagt.“ Katrín sótti innblástur í íslenska náttúru í útfærslu sinni. Litur- inn og greiðslan á hári módels- ins, Evu Katrínar Baldursdóttur, minnti á logandi hraun og kjóll- inn á hvítar snjóbreiður. „Ég var með Eyjafjallajökul og Vatnajökul í huga. Kjóllinn er gamall brúðar- kjóll sem ég keypti í vintage-versl- un í Reykjavík. Ég sá einnig sjálf um förðun Evu sem var óvenjulegt en nánast allir keppendurnir voru með förðunarfræðing með sér,“ segir Katrín en þær stöllur vöktu óskipta athygli. „Við fengum nánast engan frið. Allir vildu taka myndir og urðu hissa að heyra að við værum frá Íslandi, bjuggust kannski ekki við að við værum mjög „trendy“ hér,“ segir Katrín hlæjandi en hún fékk oft að heyra að útfærsla hennar ætti heima á forsíðum fagtímarita eins og Vogue. „Við vorum kallað- ar „Wonderland“ eða Undralandið, hárið þótti svo nýtískulegt.“ „Árangri Katrínar má líkja við silfurverðlaun íslenska hand- boltalandsliðsins á Ólympíuleikun- um, þetta er það stór og mikilvæg keppni,“ útskýrir Ásgeir Sveinsson, framkvæmdastjóri Halldórs Jóns- sonar sem fer með umboð Wella á Íslandi. „Keppnin hefur meðal ann- ars verið valin „Event of the year“ af virtum tískublöðum eins og Vogue og það blað kennir sig ekki við allt. Katrín vann faglega og stóð sig svo frábærlega vel að það kom mörgum á óvart að hún skyldi ekki ná fyrsta sætinu.“ Dómarar í keppninni voru Eug- ene Souleiman, listrænn stjórn- andi hjá Wella Professionals, Cyr- ill Brune, aðalstílisti hjá Wella Professionals, Olivier van Doorne, forseti dómnefndar og listrænn stjórnandi, og Rita Balestriero frá ritstjórn Vogue. Eins giltu atkvæði áhorfenda 20 prósent. Þrátt fyrir að hafa náð einum glæsilegasta árangri íslenskra þátttakenda í hárgreiðslukeppni af þessari stærðargráðu er Katr- ín með báða fætur á jörðinni. „Já já, ég fer ekkert á flug, held bara áfram að veita mínum viðskiptavin- um persónulega og góða þjónustu. Ég er bara rosalega ánægð með að hafa náð þessum árangri.“ Á slóðinni http://live.event.wella. com/ má horfa á myndskeið frá keppninni. heida@frettabladid.is Á heima á síðum Vogue Katrín Ósk Guðlaugsdóttir, meistaranemi í hárgreiðslu, vann til silfurverðlauna í Wella Trend Vision- keppninni í París en keppnina hafa virtustu tískublöð valið „Event of the year“ síðustu tvö ár í röð. Katrín Ósk Guðlaugsdóttir, meistaranemi í hárgreiðslu, sótti innblástur í Eyjafjalla- og Vatnajökul og lenti í öðru sæti Wella Trend Vision-keppninnar. Eva Katrín Baldursdóttir var módel Katrínar í keppninni. MYND/WELLA „Þetta þykir mikill heiður,“ segir Katrín sem hér er við verðlaunaafhendinguna í París. Mesta fatabylting síðari hluta fimmta áratugar- ins varð þegar Christi- an Dior kynnti nýju fatalínuna sína, New Look, árið 1947. Hún sló rækilega í gegn nánast á einni nóttu. Aðskorinn jakki úr hvítu silki og svart ökkla sítt og plíserað ullarpils var og er táknrænt fyrir þennan nýja stíl. Tíska aldanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.