Fréttablaðið - 11.11.2010, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 11.11.2010, Blaðsíða 70
 11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR54 sport@frettabladid.is Enska úrvalsdeildin West Ham United-West Bromwich Albion 2-2 0-1 Peter Odemwingie, víti (39.), 1-1 Scott Parker (43.) 2-1 Frédéric Piquionne (50.), 2-2 Pablo Ibáñez (71.) Wigan Athletic-Liverpool 1-1 0-1 Fernando Torres (7.), 1-1 Rodallega (52.) Wolves-Arsenal 0-2 0-1 Marouane Chamakh (1.), 0-2 Marouane Chamakh (90.+3) Aston Villa-Blackpool 3-2 1-0 Stewart Downing (28.), 1-1 Marlon Hare wood (45.), 2-1 Nathan Delfouneso (60.), 2-2 DJ Campbell (86.), 3-2 James Collins (88.) Chelsea-Fulham 1-0 1-0 Mickael Essien (30.) Newcastle United-Blackburn 1-2 0-1 Morten Gamst Pedersen (3.), 1-1 Andrew Carroll (47.), 1-2 Jason Roberts (82.) Everton-Bolton 1-1 0-1 Ivan Klasnic (79.), 1-1 Jermaine Beckford (90.) Manchester City-Manchester United 0-0 STAÐA EFSTU LIÐA: Chelsea 12 9 1 2 28-5 28 Man United 12 6 6 0 24-13 24 Arsenal 12 7 2 3 24-11 23 ManCity 12 6 3 3 15-10 21 Newcastle 12 5 2 5 21-16 17 Bolton 12 3 7 2 18-17 16 Tottenham 12 4 4 4 14-15 16 Sunderland 12 3 7 2 12-13 16 Liverpool 12 4 4 4 13-15 16 ÚRSLITIN Í GÆR BIRGIR LEIFUR HAFÞÓRSSON er í toppbaráttunni á Condado Open mótinu í golfi sem er liður í spænsku Hi5-mótaröðinni. Birgir Leifur hefur leikið tvo fyrstu hringina á þremur höggum undir pari og er í fimmta sæti, þremur höggum á eftir efsta manni fyrir lokahringinn. Birgir Leifur lék fyrsta hringinn á pari og var þá í áttunda sæti. HANDBOLTI Sjötta umferð N1-deild- ar karla í handbolta hefst í kvöld með þremur leikjum. Topplið Akureyrar tekur á móti Selfossi, Haukar heimsækja HK í Digra- nes og Fram tekur á móti Aftur- eldingu. Heimaliðin í kvöld hafa öll verið á miklu skriði, Akureyri hefur unnið alla fimm leiki sína, HK er búið að vinna fjóra leiki í röð og Fram er búið að vinna Val og FH með samtals 22 marka mun í síðustu tveimur leikjum. HK á markahæsta leikmann deildarinnar til þessa en Ólafur Bjarki Ragnarsson hefur átt frá- bæra endurkomu í HK-búning- inn og er búinn að skora 43 mörk í fyrstu fimm leikjunum, 8,6 mörk að meðaltali í leik. Ólafur hefur eins marks forskot á Bjarna Fritz- son hjá Akureyri, sem var marka- kóngur deildarinnar á síðasta tímabili. - óój Markahæstu menn Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK 43 Bjarni Fritzson, Akureyri 42 Ragnar Jóhannsson, Selfossi 41 Ólafur Andrés Guðmundsson, FH 38 Atli Ævar Ingólfsson, HK 37 Einar Rafn Eiðsson, Fram 37 Jóhann Gunnar Einarsson, Fram 37 Bjarki Már Elísson, HK 36 Björgvin Þór Hólmgeirsson, Haukum 36 Bjarni Aron Þórðarson, Aftureldingu 36 Sjötta umferð N1-deildar karla hefst í kvöld: Ólafur skorar mest ÓLAFUR BJARKI RAGNARSSONXpedition II - dömu og herra Verð kr. 29.995 Stærðir: 36 - 47 | Vörunr. 810023/4 Xpedition II - dömu og herra Verð kr. 27.995 Stærðir: 36 - 47 | Vörunr. 810013/4 Offroad - dömu og herra Verð kr. 15.995 Stærðir: 35 - 50 | Vörunr. 69533/4 Tilvalin jólagjöf S M Á R A L I N D K R I N G L A N S í m i 5 5 3 8 0 5 0 S í m i 5 5 1 8 5 1 9 S í m i 5 6 8 9 2 1 2 FÓTBOLTI Theodór Elmar Bjarna- son var valinn besti leikmaður IFK Gautaborgar á tímabilinu af gestum heimasíðunnar Alltid Blå- vitt, sem er aðalstuðningsmanna- síða liðsins. Theodór Elmar fékk 34 prósent atkvæða í kjörinu, tveimur pró- sentum meira en Tobias Hysén sem var valinn bestur í sömu kosningu í fyrra. Ragnar Sigurðs- son fékk átta prósent atkvæða og varð í fjórða sæti. Theodór Elmar lék 22 leiki með IFK á tímabilinu og var með 4 mörk og 4 stoðsendingar í þeim. Hann er mjög vinsæll hjá stuðn- ingsmönnum IFK en hann var kosinn bestur þrátt fyrir að fá sjaldnast að spila sína uppáhalds- stöðu á vellinum. Theodór Elmar var valinn í landsliðshópinn fyrir leikinn á móti Portúgal á dögunum en er ekki í landsliðinu sem mætir Ísrael í næstu viku. - óój Theodór Elmar Bjarnason: Bestur hjá IFK THEODÓR ELMAR Kom að 8 mörkum IFK á tímabilinu. SUND Íslandsmeistaramótið í 25 metra laug hefst í Laugardals- lauginni í kvöld og að venju er byrjað á keppni í langsundunum, 800 metra skriðsundi kvenna og 1.500 metra skriðsundi karla. Búast má við gríðarlega harðri keppni um Íslandsmeistaratitil- inn í mörgum greinum þar sem nokkrir af okkar sterkustu sund- mönnum eru við nám erlend- is og því er tækifæri fyrir yngri sundmenn að stíga fram og gera atlögu að titlunum. Mótið er einnig mjög mikil- vægt fyrir yngri kynslóð sund- manna því á Íslandsmeistaramót- inu er gerð atlaga að lágmörkum fyrir stórmót erlendis eins og Norðurlandameistaramótið sem fer fram í Kaupmannahöfn og Evrópumótið sem fram fer í Eindhoven í Hollandi. - óój Íslandsmótið í 25 m laug: Hefst í kvöld FÓTBOLTI Chelsea hefur aldrei tapað tveimur leikjum í röð undir stjórn Carlo Ancelotti og það var engin breyting á því í gær. Chelsea er því aftur komið með fjögurra stiga forskot á Manchester United. Mickael Essien kom aftur inn í lið Chelsea eftir meiðsli og skoraði eina markið í 1-0 sigri á Fulham á Brúnni. Markið kom eftir hálftíma leik þegar hann skallaði inn fyrir- gjöf Salomon Kalou. Essien mun þó missa af næsta leik eftir að hann fékk sitt annað gula spjald og var rekinn út af í uppbótartíma. Manchester-slagurinn var langt frá því að standa undir vænting- um. City og United gerðu marka- laust jafntefli í tíðindalitlum leik. Það var lítið um opin færi í leikn- um og hvorugt liðið tók mikla áhættu enda virtust stjórarnir leggja aðaláhersluna á það að fá ekki á sig mark. Manchester Unit- ed vann alla þrjá leiki sína á móti City á síðasta tímabili en sigur- göngunni lauk í gær. Liðið er eftir sem áður eina liðið í ensku úrvals- deildinni sem hefur ekki tapað leik en hefur nú gert jafntefli í helm- ingi leikja sinna á tímabilinu til þessa. Arsenal kom til baka eftir sárt tap á móti Newcastle United um síðustu helgi. Marouane Chamakh skoraði bæði mörk Arsenal í 2-0 útisigri á Úlfunum og komu mörk- in á fyrstu mínútu leiksins og svo í uppbótartíma. Marouane Cham- akh var fljótur að koma Arsenal í 1-0 en hann skallaði inn fyrirgjöf Tomas Rosicky áður en mínúta var liðin. Chamakh innsiglaði síðan sigurinn í uppbótartíma. Eftir þennan sigur er Arsenal í þriðja sæti deildarinnar fimm stigum á eftir toppliði Chelsea. Liverpool náði ekki að fylgja sigrinum á Chelsea eftir því liðið náði aðeins að taka með sér eitt stig frá Wigan eftir 1-1 jafntefli. Liver- pool var fyrir leikinn búið að vinna fjóra leiki í röð í öllum keppnum en er eftir leikinn í 9. sæti. Fernando Torres kom Liverpool í 1-0 eftir sjö mínútur eftir að hafa fengið frábæra sendingu inn fyrir frá Steven Gerrard og það virt- ist stefna í einn sigur til viðbótar. Heimamenn gáfust þó ekki upp og Hugo Rodallega jafnaði á leik- inn á 52. mínútu þegar hann nýtti sér slæm markvarðarmistök Pepe Reina. Wigan er samt áfram í fall- sæti þrátt fyrir jafnteflið. Jermaine Beckford tryggði Everton 1-1 jafntefli á móti Bolt- on á 90. mínútu og aðeins sex mín- útum eftir að Marouane Fella- ini hafði verið rekinn út af. Ivan Klasnic kom Bolton í 1-0 á 79. mínútu en áður hafði Grétar Rafn Steinsson farið meiddur af velli á 50. mínútu. Aston Villa komst þrisvar yfir á móti Blackpool og vann 3-2 sigur. James Collins skoraði sigurmarkið tveimur mínútum fyrir leikslok. Jason Roberts tryggði Black- burn 2-1 útisigur á Newcastle þegar hann skoraði sigurmarkið átta mínútum fyrir leikslok. ooj@frettabladid.is Markaleysi í Manchester Chelsea náði fjögurra stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í gær- kvöldi og naut góðs af markalausu jafntefli í Manchester-slagnum. Marouane Chamakh tryggði Arsenal sigur á Wolves og sigurganga Liverpool endaði. HART BARIST Þessi mynd er táknræn fyrir leikinn í gærkvöldi því leikmenn liðanna börðustu fyrir hverjum bolta. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY HANDBOLTI Valur 2 og ÍBV tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Eim- skips bikar kvenna í gær. Dagný Skúladóttir skoraði 9 mörk þegar b-lið Vals vann átta marka sigur á N1 deildar liði ÍR, 30-22. A-lið Vals sat hjá í sextán liða úrslitum og það verða því tvö Valslið í pottinum þegar dregið verður í átta liða úrslitin. Hornamennirnir Þórsteina Sig- urbjörnsdóttir og Guðbjörg Guð- mannsdóttir skoruðu saman 18 mörk þegar ÍBV vann 36-29 sigur á Haukum í Eyjum og hefndi fyrir deildartapið á dögunum. Þórsteina skoraði 10 mörk í leiknum en Guðbjörg gerði 8 mörk. Ester Óskarsdóttir lék einnig vel með Eyjaliðinu og skoraði 7 mörk. - óój Eimskipsbikar kvenna: Valur á tvö lið í 8 liða úrslitum DAGNÝ SKÚLADÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.