Fréttablaðið - 11.11.2010, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 11.11.2010, Blaðsíða 74
 11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR58 golfogveidi@frettabladid.is A F B A K K A N U M Laxveiðikeppni bræðra á DVD Hrikalega léleg veiði var í Hörðu- dalsá í sumar. Að því er fram kemur á vef leigutakans, Stanga- veiðifélags Reykjavíkur, nam heildarveiðin í ánni aðeins þrett- án löxum og sex bleikjum. „Fyrir rúmum áratug voru að veiðast yfir 1.000 bleikjur í Hörðudaln- um,“ segir á svfr.is þar sem einnig kemur fram að árið í ár hafi verið lokasumarið af stuttum leigutíma félagsins í Hörðudal. Líklegast verði áin hvíld í náinni framtíð. Veiðin sumarið 2009 var 39 bleikj- ur og 42 laxar en í söluskrá SVFR fyrir sumarið 2010 var tekið fram að vorið 2009 hefði verið sleppt sex þúsund gönguseiðum „sem ættu að skila sér í aukinni laxveiði sumarið 2010“. - gar Ömurleg ördeyða í Hörðudal: Þrettán laxar og sex bleikjur GÓÐAR TÍMAR Í HÖRÐUDALSÁ Þórður Ragnarsson með sex fiska úr Hörðu- dalsá sumarið 2006. Fiskarnir eru jafn margir bleikjunum sem veiddust þar í allt sumar. VEIÐIDEILD, BÍLDSHÖFÐA SÍMI: 585 7239 OPIÐ 7 DAGA VIKUNNAR Faxi í Tungufljóti í Biskupstungum (einnig nefndur Vatnsleysufoss) er magnaður veiðistað- ur. Þarna safnast jafnan mikið af laxi yfir sumar- ið og getur veiðin verið óheyrileg. ■ Undir Faxa heyra reyndar þrír veiðistaðir, Fossstrengur, Eyja og Fossbrot, fæstir gera þó nokkurn greinarmun á þessum stöðum og skrá afla einfaldlega úr Faxa. Fossstrengur sést reynar ekki vel á myndinni, sjá má glitta í stein fyrir ofan hólmann og þar er streng- urinn að deyja út. Strengurinn er veiddur af bakkanum og getur gefið ágætlega, sérstak- lega við steininn. ■ Veiðistaðurinn Eyja er eins og nafnið gefur til kynna við hólmann fyrir miðri mynd. Milli hólmans og bakka er tiltölulega lygn straum- ur og ágætt dýpi, litlar flugur og flotlína gefa vel þarna – oft gefst best að nota einhend- una. Eins má oft finna lax við neðri odda hólmans, ekki er ráðlegt að vaða lengra en svo að þú náir að kasta að hólmanum. Mörgum yfirsést þessi staður sem krefst tvíhendu með sökktaum og þungum túbum – sem alla jafna er staðalbúnaður í fljótinu. ■ Fossbrotið er síðan gjöfulasti veiðistaðurinn í Faxa, oft er talað um efri og neðri stein á brotinu. Efri steinn er fast við land út frá neðri odda hólmans – kastað er í átt að fossinum og látið reka að bakka. Þannig veiðir maður sig niður að neðri steini, sem er um 20-30 metrum neðar, en við hann má oft finna mikið af laxi – ef ekki er búið að styggja hann. Af neðri steini er kastað í átt að fossinum og flugan látin reka að landi og veitt þannig niður á brotið Veiðistaðurinn – Faxi í Tungufljóti „Um leið og maður fær líf byrjar það að vera þrælskemmtilegt,“ segir Þorsteinn Hafþórsson, stórveiðimaður og leið- sögumaður með meiru, um veiðar í gegnum ís. Þorsteinn Hafþórsson er ríkjandi Íslandsmeistari í ísdorgi frá því hann veiddi 27 fiska á þremur klukkutímum á Svínavatni í hitt- eðfyrra. Þorsteinn býr á Blönduósi og gjörþekkir vatnasviðið í Húna- vatnssýslum. Mest segist hann dorga í Langavatni á Skaga, í Hnausatjörn í mynni Vatnsdals, í Svínavatni og nú í seinni tíð einn- ig í Geitakarlsvötnum á Skaga. „Ef ég ætla að fá stóra fiska fer ég á Svínavatnið út frá Auðkúlu og þar sem er dýpi. Fiskarnir eru kannski fáir en þeir eru stórir. En ef maður er bara að leika sér og vill hafa gaman er Hnausatjörn- in skemmtilegust því hún býður upp á langmest af fiski,“ segir Þorsteinn. Í dorginu veiðist langmest af bleikju en urriðinn gefur sig líka. Þorsteinn kveðst byrja í dorg- inu eftir áramót þegar ís sé orð- inn traustur og fiskurinn fari á hreyfingu. Besti veiðitíminn sé frá miðjum febrúar og út mars. Menn þurfi ekki að óttast kulda, séu þeir vel búnir og vindkæling og snjófjúk sé ekki að plaga þá. „Margir sitja og dorga eins og á bryggju en ég ligg bara á ein- angrunardýnu og hef það voða- lega gott og sé allt sem er að ger- ast ofan í,“ segir Þorsteinn. Hann beitir rækju á tvíkrækju og hefur spún um fjörutíu sentímetrum þar fyrir ofan á færinu. „Ég nota spúninn til að vekja athygli. Þegar fiskur kemur hægi ég á og dreg beituna upp. Stundum finnst manni rækjan vera miklu nær en hún er þegar hún fer að nálgast neðri brúnina. Þá kemur kannski kjaftur á móti manni eins og hákarl og maður fær sjokk,“ lýsir Þorsteinn. Ef Þorsteinn verður ekki var við fisk í fyrstu holu borar hann nýja holu fimm metrum þar frá. „Ef það kemur einn fiskur og ég sé úr hvaða átt hann kom en fæ ekki fleiri fiska færi ég mig í átt- ina sem hann kom úr og bora nýja holu. Á endanum finn ég pottinn. Þetta er eins og að finna hylinn sem geymir fiskana í göngu,“ útskýrir hann. Dorg í gegnum ís er vannýtt veiðiaðferð hér að mati Þorsteins. Þó er eitthvað um skipulagða dorg- veiði, til dæmis í Vestur-Húna- vatnssýslu þaðan sem farið er upp á Arnarvatnsheiði. Þorsteinn segir að menn ættu endilega að prófa dorgið, það henti til dæm- isvel fyrir fjölskyldur. Þá sé það skemmtilegra og tæknilegra en menn kannski ímyndi sér. „Maður er að horfa á fiskinn snúa sér, ráð- ast að beitunni og taka. Ef þeir eru margir fer maður að reyna að forða agninu frá þessum litlu og láta þann stærsta taka.“ Hefur það notalegt á ísnum Fyrstu helgina sem rjúpuveiði var leyfð var áberandi á veiðilendum í nágrenni Blöndulóns hversu rjúp- an þar var tvístruð. Reka veiði- menn þetta beint til jarðaskjálfta- hrinu sem þá var undir Blöndulóni. Eftir að skjálftarnir fjöruðu út hefur rjúpan þó verið að hópa sig aftur. Gera menn sér vonir um góða veiði um komandi helgi, enda viðri vel fyrir þá sem gangi til rjúpna á þeim slóðum. - gar Óvenjulegar aðstæður: Skjálftahrina tvístrar rjúpum Veturinn er yfirleitt mikil eyðimerkurganga fyrir stangveiðimenn. Margt getur þó stytt stundirnar. Meðal þess eru veiðimyndir frá liðnum sumrum. Á nýjum DVD-veiðidiski reyna tvíburarnr Ásmundur og Gunnar Helgasynir með sér í keppni á bökkum nokkurra laxveiðiáa. Um er að ræða sex þætti sem teknir voru upp sumarið 2009 og sýndir á Skjá einum í vor. - gar ÞORSTEINN HAFÞÓRSSON Stórveiðimaðurinn Steini Haff veiðir jafnt fugl sem fisk og lætur ekki dagatalið stöðva sig. Hér er Steini á Hnausatjörn í Vatnsdal í mars 2007. MYND/ÚR EINKASAFNI VINIR Á SKAGANUM Þessir kappar voru hér með Bandaríkjaher og féllu fyrir ísdorg- inu. Þeir eru hér í einu vatnanna norður á Skaga í heimsókn hjá Steina Haff árið 2004. MYND/ÚR EINKASAFNI RJÚPA Enn eru eftir fjórar helgar af rjúpnaveiðitímabilinu. GLÆSILEGUR VEIÐISTAÐUR Þrjá gjöfula veiðistaði er að finna við fossinn. MYND/LAX-Á URRIÐAR OG SJÓBIRTINGAR 49 bleikjur og 35 laxar veiddust í Tungufljóti í Skaftárhreppi á nýliðnu veiðitímabili. 282 LAXAR veiddust í Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi í sumar.550 Skotveiðifélag Íslands, sem mótmælt hefur harðlega fyrirhuguðum takmörkunum á veiðum á hreindýr- um, gæsum og rjúpum á helstu veiðisvæðum innan Vatnajökulsþjóðgarðsins, hefur sett á laggirnar land- réttarnefnd til að leggja fram áætlun um hvernig skuli bregðast við stöðunni. Nefnd gegn veiðitakmörkunum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.