Fréttablaðið - 11.11.2010, Blaðsíða 64
11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Denzel Washington er
einn af merkilegustu og
fremstu svörtu leikurunum
í sögu Hollywood og verður
eflaust minnst í sömu andrá
og Sidney Poitier, sem ruddi
brautina upp á silfurtjaldið
fyrir þeldökka Bandaríkja-
menn.
Nýjasta kvikmynd Denzel ,
Unstoppable, er dæmigerð amer-
ísk hasarmynd þar sem Tony Scott
er lestarstjóri. Mótleikari Wash-
ington og lærlingur í myndinni er
Chris Pine, stjarnan úr síðustu Star
Trek-mynd.
Unstoppable segir frá tveimur
starfsmönnum járnbrautarfyr-
irtækis sem taka að sér það hlut-
verk að koma í veg fyrir að
stjórnlaus lest, full af eitur-
og sprengiefnum, valdi eyði-
leggingu í nálægum smábæjum.
Myndin er innblásin af sannsögu-
legum atburðum sem áttu sér stað
árið 2001 í Ohio þegar vörulest
keyrði stjórnlaus eftir lestartein-
um með stórhættulegar eiturgufur
innanborðs.
Kvikmyndir eins og Unstoppable
hafa hins vegar ekki gert Denzel
Washington að einum áhrifamesta
blökkumanninum í Hollywood.
Denzel byrjaði eins og flestir leik-
arar í Ameríku, í sjónvarpi. Hann
vakti fyrst athygli í sjónvarpsserí-
unni St. Elsewhere þar sem hann
lék dr. Phillip Chandler. En árið
1987 varð flestum ljóst að ferli
Denzel í sjónvarpi var að ljúka.
Þá lék hann suður-afrísku frelsis-
hetjuna Steven Biko í Cry Freedom
á móti Kevin Kline. Hann fylgdi
þeirri frammistöðu eftir með stór-
leik í Glory en fyrir túlkun sína á
strokuþrælnum Trip fékk Denzel
Óskarsverðlaun fyrir bestan leik í
aukahlutverki. Þar með var ferill
hans næstum gulltryggður, hann
fékk stór hlutverk í rándýrum has-
armyndum á milli þess sem hann
túlkaði sögufræga menn á borð
við blökkumannaleiðtogann Mal-
colm X, Rubin „Hurricane“ Cart-
er og heróín-innflytjandann Frank
Denzel hinn mikli
Lucas í American Gangster.
Denzel þykir mikið kyntákn,
hann ratar yfirleitt hátt á lista yfir
kynþokkafyllstu kvikmyndastjörn-
ur allra tíma. Persónur hans eru
yfirleitt með ríka réttlætiskennd
og leikur hans þykir oft vera nokk-
uð „dramatískur“. Denzel veit yfir-
leitt alltaf best á hvíta tjaldinu og
lætur ekki bjóða sér neitt kjaft-
æði eða vaða yfir sig. Það kemur
því kannski ekkert á óvart að
pabbi leikarans skuli vera þekkt-
ur prestur og mikill predikari í
hvítasunnusöfnuði í New York, sá
bakgrunnur er oft augljós þegar
persónur hans eru skoðaðar. Hins
vegar verður það aldrei tekið af
Denzel að hann var fyrsti svarti
karlleikarinn í 38 ár til að hljóta
Óskarsverðlaun fyrir leik í aðal-
hlutverki, árið 2002 þegar hann
lék spilltu lögguna Alonzo Harris
í Training Day. Sidney Poiter hafði
fengið styttuna góðu fyrir leik
sinn í kvikmyndinni Lilies of the
Field árið 1964. Og slíkur árang-
ur er varðveittur í réttindabaráttu
svartra. freyrgigja@frettabladid.is
NORDIC PHOTOS/GETTY
STÓRLEIKARI Denzel Washington
er skærasta blökkumannastjarnan í
kvikmyndaheiminum. Hann var fyrsti
blökkumaðurinn í 38 ár til að hljóta
Óskarsverðlaun fyrir leik í aðalhlutverki
og hefur um árabil verið í fremstu röð
kvikmyndaleikara í Hollywood.
> DE NIRO HEIÐRAÐUR
Robert De Niro fær hinn virtu Cecil B.
DeMille verðlaun þegar Golden Globe
verðlaunin verða afhent í jan-
úar næstkomandi. De Niro er
þá kominn í hóp með þeim
Martin Scorsese, Steven
Spielberg og Anthony
Hopkins en Golden
Globe eru verðlaun er-
lendra blaðamanna í
Hollywood.
Kvikmyndin Easy A gæti, miðað
við söguþráðinn, heitið Gróa á
Leiti enda fjallar myndin um
áhrifamátt lyga- og kjaftasagna
í unglingasamfélagi. Hin unga
Olive Penderghast ákveður að
sleppa tjaldferðalagi með bestu
vinkonu sinni til að geta verið
ein heima og lesið skáldsöguna
The Scarlet Letter. Þegar hún er
síðan spurð að því hvað hún hafi
gert þessa helgi lýgur Olive því
að hún hafi átt eldheita nótt með
ungum háskólanema. Þessi saga
breiðist fljótt út meðal strang-
trúaðra skólafélaga Olive, sem
kynnist áður óþekktum vinsæld-
um. Lygarnar verða sífellt fleiri
og flóknari þar til heimur Olive
er að hruni komin.
Easy A hefur fengið afbragðs-
góða dóma, fær meðal annars
7,7 á imdb.com. Hún fær 87 af
hundrað á Rotten Tomatoes en
afar sjaldgæft er að unglinga-
myndir nái slíkum einkunnum.
Aðalstjarna myndarinnar er
Emma Stone; hana ættu marg-
ir að kannast við úr Superbad
og Zombieland og þá ættu ein-
hverjir að kannast við unglinga-
stjörnuna Amöndu Bynes sem
lék meðal annars stórt hlutverk í
endurgerðinni af Hairspray.
Gróa á Leiti á hvíta tjaldinu
FÆR GÓÐA DÓMA Emma Stone og
kvikmyndin Easy A hafa fengið fína
dóma hjá gagnrýnendum, 7,7 hjá imdb.
com og 87 á Rotten Tomatoes.
Neils Arden Oplev,
leikstjóri upprunalegu
myndanna um tölvu-
þrjótinn Lisbeth Sal-
ander sem finna má
í bókum Stiegs Lars-
son, er ósáttur við að
Hollywood skuli vera
að endurgera myndirn-
ar sínar. Og hann seg-
ist vera þrumu lost-
inn yfir því að Noomi Rapace, sem lék Salander í
sænsku myndunum þremur, skuli ekki hafa fengið
hlutverkið í amerísku útgáfunni. „Þetta er hennar
hlutverk, hennar arfleifð,“ segir Oplev í samtali við
kvikmyndasíðuna wordandfilm.com.
Ósáttur Oplev
VILDI SJÁ NOOMI Leikstjóri
Millennium-þríleiksins vildi sjá
Noomi í hlutverki Lisbeth Sal-
ander í amerísku endurgerðinni.
FRUMSÝND
12. NÓV.
VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM. 149 KR/SKEYTIÐ.
MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB.
SENDU SMS SKEYTIÐ
ESL 3DJ Á NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA!
VILTU VINNA
MIÐA?
FULLT AF VINNINGUM:
MIÐAR FYRIR 2 Á JACKASS 3D
TÖLVULEIKIR - DVD MYNDIR - GOS OG FLEIRA!
10. HVERVINNUR!
SJÁÐU JACKASS
EINS OG ÞÚ HEFUR
ALDREI SÉÐ ÁÐUR!
FYNDNARI OG FÁRÁNLEGRI EN
NOKKURN TÍMANN ÁÐUR,
TEKIN Í FLOTTUSTU
ÞRÍVÍDDARTÆKNI SEM VÖL ER Á!
Denzel hefur ver-
ið giftur Paulette
Pearson í 27 ár.
Saman eiga þau fjögur börn
en Denzel er með ba-gráðu í
blaðamennsku.
27