Fréttablaðið - 11.11.2010, Blaðsíða 30
11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR30
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
timamot@frettabladid.is
Í dag verður þess minnst með dagskrá
í Kvosinni, sal Menntaskólans á Akur-
eyri í nýju byggingunni Hólum, að á
þessu ári eru 80 ár liðin síðan skólinn
varð menntaskóli með full réttindi til
að brautskrá stúdenta. Raunar er tví-
heilagt vegna þess að þess er einnig
minnst að 130 ár eru liðin síðan norð-
lenskur skóli var endurreistur á Möðru-
völlum í Hörgárdal.
„Það hafði náttúrulega verið skóli
á Hólum í Hjaltadal alveg frá 1106 og
fram undir 1800,“ segir Sverrir Páll
Erlendsson, íslenskukennari við MA.
„Norðlenskt fræðasetur var síðan end-
urvakið á Möðruvöllum í Hörgárdal
1880 og sá skóli var rekinn sem gagn-
fræðaskóli, eins og það hét á þeim
tíma, til 1902 þegar skólahúsið brann.
Þá flutti skólinn hingað til Akureyrar
og var í bráðabirgðahúsnæði í gamla
barnaskólanum þangað til hann flutti
inn í gamla skólahúsið okkar, sem allir
þekkja að minnsta kosti á mynd, sem
byggt var 1904. Í fyrstu hét hann Gagn-
fræðaskólinn á Akureyri og það er ekki
fyrr en 1930, eftir margra ára baráttu
á Alþingi, sem skólinn fær leyfi til að
útskrifa stúdenta og kalla sig mennta-
skóla,“ segir Sverrir Páll. „Það hafði
reyndar verið heimilt í nokkur ár þar
á undan að kenna nemendum til stúd-
entsprófs en þeir þurftu að fara suður
í MR til að taka prófið.“
Afmælisdagskráin í tali, tónum, texta
og myndum er öll í höndum nemenda.
Hún er í umsjón stjórnar Hugins, skóla-
félags MA, með þátttöku nokkurra af
þeim undirfélögum sem virkust eru í
skólalífinu. „Nemendur munu safnast
saman í Kvosinni í löngu frímínútunum
um hálf tíu leytið og þar verður byrjað
á því að borða köku og drekka kakó,“
segir Sverrir Páll. „Síðan hefst dagskrá
sem er alveg í höndum nemenda. Þar
munu nokkur félög sem eru undir regn-
hlíf skólafélagsins flytja atriði. PRIMA
verður með danssýningu, leikfélag skól-
ans, LMA, flytur sýnishorn úr nokkr-
um leikverkum sem flutt hafa verið
á löngum ferli þess, skólablaðið Mun-
inn ætlar að gefa út smáblöðung með
ýmsum upplýsingum um sögu skólans,
FÁLMA, sem er félag áhugaljósmynd-
ara í skólanum, verður með myndasýn-
ingu, myndbandafélagið, sem er kallað
MÝMA verður þarna með myndband
sem gert er sérstaklega af þessu tilefni
og fleira og fleira,“ segir Sverrir Páll.
En hvers vegna var ákveðið að fagna
afmælinu 11. nóvember? „Vegna þess að
11. nóvember er gamall dagur úr sögu
skólans. Þannig var að þegar heimilt
var í skólum að hafa mánaðarfrí, eins
og þau voru kölluð, var nóvemberfríið
gjarnan sett á 11. nóvember vegna þess
að það var fæðingardagur Matthíasar
Jochumssonar, sem kom mjög við sögu
skólans og orti til dæmis skólasöngva
sem voru mikið sungnir hér í eina tíð,“
segir Sverrir Páll Erlendsson.
fridrikab@frettabladid.is
MENNTASKÓLINN Á AKUREYRI 8O ÁRA: SKEMMTIDAGSKRÁ Í KVOSINNI Í DAG
Tvíheilagt á afmælisdegi Matthíasar
DAGSKRÁ Í HÖNDUM NEMENDA Sverrir Páll Erlendsson, íslenskukennari við MA, og Óli Dagur Valtýsson, formaður skólafélagsins Hugins, sem
hefur veg og vanda af skemmtidagskránni. MYND/HEIDA.IS
Þennan dag árið 1503 var Giuliano della Rovere
kjörinn páfi og tók sér nafnið Júlíus II.
Giuliano, sem var fæddur árið 1443, var páfi í
tíu ár eða til dauðadags 1513. Hann var umsvifa-
mikill á páfastóli og hlaut viðurnefnin „Skelfilegi
páfinn“, Il Papa Terribile, og „Stríðspáfinn“, Il
Papa Guerriero. Páfadómur hans einkenndist af
miklum stríðsrekstri, metnaðarfullum byggingar-
verkefnum og stuðningi við listamenn.
Þótt stríðsrekstur og pólitík Júlíusar II. myndi
nægja til að veita honum sess á meðal mikilfeng-
legustu páfa sögunnar, er hans þó helst minnst
fyrir stuðning hans við myndlist og bókmenntir
síns tíma. Auk þess átti hann stóran þátt í því að
auka mikilvægi og fegurð Rómar. Árið 1506 lagði
hann hornstein að nýju Péturskirkjunni og hann
var náinn vinur listamanna á borð við Raphael
og Michelangelo, en sá síðarnefndi málaði loft
Sixtínsku kapellunnar að beiðni Júlíusar.
Rex Harrison túlkaði Júlíus II. með eftirminni-
legum hætti í kvikmyndinni The Agony and the
Ecstasy, sem byggir á bók Irvings Stone.
ÞETTA GERÐIST: 11. NÓVEMBER ÁRIÐ 1503
Júlíus II. kjörinn páfi
MATTHÍAS JOCHUMSSON, skáld, fæddist þennan dag árið 1835
„Gefið gaum og þegið,
grátið ei né hljóðið.“
1725 Ópera Georgs F. Händel, Tamerlano, frumsýnd í London.
1918 Lokum seinni heimsstyrjaldarinnar fagnað víða um lönd.
Í Reykjavík blakta fánar þó í hálfa stöng vegna spænsku
veikinnar sem er í algleymingi.
1942 745 franskir gyðingar fluttir til Auschwitz.
1943 Pétur Hoffmann Salómonsson berst, að eigin sögn, einn
við bandaríska hermenn í Selsvör í Reykjavík og hefur
betur.
1962 Leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson frumsýnt hjá
Leikfélagi Reykjavíkur. Það nýtur meiri vinsælda en dæmi
eru um og er sýnt 205 sinnum fyrir fullu húsi.
1969 Jim Morrison handtekinn af FBI fyrir drykkjuskap í flugvél.
1994 Guðmundur Árni Stefánsson félagsmálaráðherra segir af
sér vegna ásakana um mistök í embætti.
Merkisatburðir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Hekla Árnadóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn
1. nóvember. Útförin fer fram frá Áskirkju
föstudaginn 12. nóvember kl. 13.00.
Geir Guðmundsson
Margrét Geirsdóttir Gestur Jónsson
Árni Jón Geirsson Sigríður Þ. Valtýsdóttir
Guðrún Geirsdóttir Jón Friðrik Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur einstakan hlýhug og
virðingu við andlát og útför bróður
okkar,
Ólafs Kristófers
Bjarnasonar
frá Þorkelsgerði í Selvogi,
Reykjabraut 21, Þorlákshöfn,
er lést 17. október síðastliðinn á Landspítalanum í
Fossvogi. Útförin fór fram í Strandakirkju í Selvogi þann
27. október síðastliðinn, í kyrrþey, að ósk hins látna.
Guð blessi ykkur öll.
Þóra Lilja, Valgerður, Eydís og Marta Bára Bjarnadætur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Hannes Flosason
fv. tónlistarskólastjóri og
tréskurðarmeistari, Fannafold 187,
Reykjavík,
lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi þann
6. nóvember s.l.
Kristjana Pálsdóttir
Páll Hannesson Sarah Buckley
Haukur F. Hannesson Jörgen Boman
Elín Hannesdóttir
Ingibjörg Hannesdóttir
og barnabörn
Innilegar þakkir færum við öllum
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Benedikts Bjarnasonar
fv. kaupmanns og útgerðarmanns,
í Bolungarvík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðis-
stofnunar Bolungarvíkur fyrir frábæra umönnun.
Hildur Einarsdóttir
Einar Benediktsson María Guðmundsdóttir
Halldóra Benediktsdóttir Sören Pedersen
Bjarni Benediktsson
Ómar Benediktsson Guðrún Þorvaldsdóttir
afabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Odds Geirssonar
pípulagningameistara, Sléttuvegi 19,
Rvk, (áður Holtagerði 64, Kópavogi).
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á Hjartadeild E-G LSH,
Heimaþjónustu og Heimahlynningu fyrir einstaka
umönnun. Guð blessi ykkur öll.
Margrét Einarsdóttir
Einar Oddsson Eva Österby
Sigríður Sesselja Oddsdóttir
Erna Oddsdóttir
Sigrún Oddsdóttir Vilmundur Gíslason
Geir Oddsson Ragna Björg
Guðbrandsdóttir