Fréttablaðið - 11.11.2010, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 11.11.2010, Blaðsíða 6
6 11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR Ræðumenn kvöldsins eru Luis E. Arreaga, nýskip aður sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi og Jón Baldvin Hannibalsson, fv. Fulbrightþegi og sendiherra Íslands í Washington. Fjölbreytt skemmtiatriði og tónlistarflutningur í boði. Allur ágóði verður lagður í sjóð til auka við fjölda íslenskra nemenda sem hljóta árlega Fulbright styrki til náms í Bandaríkjunum. Aðgangur er öllum opinn. Miðapantanir eru teknar með því að senda netpóst á alumni@fulbright.is eða hringja í Fulbright stofnunina í síma 552 0830. Miðar greiðast við pöntun með því að leggja upphæð inn á reikning 0301-26-10084, kt. 560169- 2569. Einstaklingar geta valið um þrennar fjárhæðir; 10.000 kr., 20.000 kr. og 50.000 kr. Maki eða gestur greiðir 6.500 kr. Félags Fulbright styrkþega á Íslandi verður haldin á Hótel Nordica laugardaginn 13. nóvember kl. 19.00. Boðið verður upp á glæsilegt þriggja rétta Þakkargjörðarhlaðborð. FJÁRÖFLUNARGLEÐI Veislustjóri er Þóra Arnórsdóttir, fréttamaður. Samstarfsaðilar Fulbright Alumni við skipulagningu hátíðarinnar eru Fulbright á Íslandi, bandaríska sendi- ráðið og The Icelandic American Business Forum (IABF). Fjölbreytt og gott veganesti fyrir lífið Kjarngóð næring Ósaltað Ósykrað Engin aukaefni www.barnamatur.is Lífrænn barnamatu r STJÓRNSÝSLA Aðeins 13% forstöðu- manna ríkisstofnana segjast telja að lög og reglur um ríkisstarfs- menn stuðli að skilvirkum ríkis- rekstri. 65% forstöðumannanna telja ekki að lagaumhverfið stuðli að skilvirkni en 21% hópsins er hlutlaust gagnvart spurningunni. 43% forstöðumanna telja sig ekki geta sagt upp starfsmönnum vegna þess að starfsöryggi sé svo stór þáttur í starfskjörum ríkis- starfsmanna. 39% forstöðumanna ríkisins telja sig geta bætt þjónustu sinnar stofnunar ef hluta starfs- manna yrði sagt upp og nýir ráðn- ir í staðinn. Þetta kemur fram í könnun, sem Ríkisendurskoðun gerði í sumar á viðhorfi forstöðumanna til starfsmannamála og kynnt var á morgunverðarfundi Ríkisendur- skoðunar, Félags forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnunar stjórn- sýslufræða og stjórnmála í gær. Um 80 prósent af 206 forstöðu- mönnum ríkisstofnana svöruðu spurningum Ríkisendurskoðunar. Ingunn Ólafsdóttir, sérfræðing- ur hjá Ríkisendurskoðun, segir að könnunin sé þáttur í heildar- úttekt á mannauðsmálum ríkis- ins sem Ríkisendurskoðun vinnur að og áætlar að skila viðamikilli skýrslu um mannauðsmál ríkisins í lok þessa mánaðar. „Í skýrslunni munum við koma með ábendingar sem við beinum til fjármálaráðu- neytisins um hvernig á að bregðast við þessu,“ segir Ingunn. Hún nefnir að helstu ástæður þess að þessir forstöðumenn segja ekki upp starfsmönnum þótt það geti bætt þjónustuna tengist því að Telja uppsagnir geta bætt þjónustuna 39% forstöðumanna ríkisins telja sig geta bætt þjónustu með því að segja upp hluta starfsmanna og ráða nýja í staðinn, samkvæmt könnun Ríkisendurskoð- unar. Aðeins 13% telja að lagaumhverfi um ríkisstarfsmenn stuðli að skilvirkni. RÍKISENDURSKOÐUN Viðamikil úttekt á starfsmannamálum ríkisins stendur nú yfir. Könnun meðal forstöðumanna leiðir í ljós að 61% þeirra hefur aldrei veitt starfsmanni skriflega áminningu og 79% hafa aldrei sagt upp starfsmanni í kjölfar áminningar. lagaumhverfið um málefni starfs- manna ríkisins sé flókið, viðhorfið til áminninga og uppsagna innan opinbera geirans sé neikvætt og starfsöryggi ríkisstarfsmanna sé álitið mikilvægt. Aðeins um helm- ingur forstöðumanna láti fara fram reglulegt og formlegt mat á frammistöðu starfsmanna. Í því sambandi geti skipt máli að for- stöðumenn séu iðulega ráðnir sem sérfræðingar á fagsviði stofnunar fremur en sérfræðingar í stjórn- un. Um 24.000 starfsmenn eru í þjónustu ríkisins og segir Ingunn að launakostnaður ríkisins hafi numið um 120 milljörðum króna á árinu 2009. peturg@frettabladid.is Mjög ósammála Frekar ósammála Hvorki né Frekar sammála Mjög sammálaStofnunin gæti bætt þjónustu ef hluta starfsmanna yrði sagt upp og nýir ráðnir í þeirra stað Lögin stuðla að skilvirkum ríkisrekstri 0% 20 40 60 80 100 Viðhorf forstöðumanna ríkisstofnana Heimild: Könnun Ríkisendurskoðunar FÓLK „Ég læt þessa menn ekki kúga mig. Ég gef þeim að éta sem ég vil – bæði fólki og kött- um,“ segir Elísabet Brynjólfsdóttir, 77 ára íbúi á Hrafnistu í Hafnarfirði, sem viðurkennir ekki bann stofnunarinnar við því að íbúar fóðri villi- ketti. Elísabet segir tvær læður sækja að íbúð hennar á jarðhæð Hrafnistu. Hún gefi þeim að éta svo lengi sem hún eigi mat. „Þessir háu herrar verða að athuga að ég vil ekki mýs hérna. Ég hef fengið mús og konan við hliðina á mér flýði til mín undan músum. Er ekki betra að hafa kisurnar í hrauninu held- ur en mýs eða rottur?“ spyr Elísabet ósátt við aðgerðir gegn útigangsköttunum. „Þeir enduðu jólin í fyrra á að ná í síðasta kettlinginn þegar þeir voru búnir að drepa móð- urina og systkinin,“ segir Elísabet sem skorar á stjórnendur Hrafnistu að sýna í hvaða skjóli þeir telji sig geta bannað íbúum að fóðra dýrin. „Þeir sögðu að þetta væri stranglega bann- að en ég bað þá að koma með þann lagabókstaf sem segir að ég megi ekki gefa þessum dýrum. Ég ætla hvorki að spyrja þá lægstu né hæstu á Hrafnistu hvað ég geri á meðan ég borga fyrir veru mína 130 til 140 þúsund á mánuði. Þeir verða þá bara að reka mig út.“ - gar Kona sem býr á Hrafnistu í Hafnarfirði neitar að hlýða banni við að fóðra útigangsketti við stofnunina: Gefur köttum að éta á meðan hún á mat ELÍSABET BRYNJÓLFSDÓTTIR Hvað er svona brotlegt við það að gefa tveimur læðum dálítinn fisk og mjólkur- dreitil, spyr Elísabet sem reglulega fóðrar útigangsketti sem sækja að garðhurðinni hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ORKUMÁL Landsvirkjun kynnti í gær drög að framtíðarsýn fyrir- tækisins næstu ár og áratugi. Stefnt er að því að auka arðsemi fyrirtækisins, fjölga viðskipta- vinum til muna og auka áhersla á markaðs- og viðskiptaþróun, rannsóknir og nýsköpun. Nái fyr- irætlanir fyrirtækisins um aukna raforkusölu fram að ganga opnast möguleikinn á miklum arðgreiðsl- um til eigenda. Landsvirkjun hefur sett sér það markmið að fjölga viðskipta- vinum sínum um tíu til tuttugu á næstu tíu árum og skulu þeir við- skiptavinir vera úr iðngreinum sem greiða um 50 prósent hærra verð en áliðnaðurinn. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkj- unar, segir þetta krefjandi en raunhæft markmið miðað við markaðsaðstæður í Evrópu. „Verð hefur hækkað og verið sveiflu- kenndara en áður þannig að við teljum að við getum höfðað til stærri hóps en áður,“ segir Hörð- ur. Hann bætir við að Landsvirkj- un muni nú beina sjónum sínum að viðskiptavinum sem geti verið annars eðlis en álverin. „Álver- in eru traustir greiðendur með jafna notkun sem eru tilbúnir til að gera langa samninga. Nú erum við líka að líta til aðila sem eru með breytilega notkun og kannski ekki tilbúnir til að gera langtíma- samninga. Það er gott að blanda þessu saman.“ Til að ná markmiðum sínum hyggst Landsvirkjun auka til muna áherslu á markaðsstarf erlendis og verður því beint að stórum en afmörkuðum hópum svo sem rekstraraðilum gagna- vera. - mþl Landsvirkjun hyggst leggja minni áherslu á framkvæmdir og meiri á arðsemi: Stefnt að fimmfaldri arðsemi 2030 HÖRÐUR ARNARSON Mikil stefnumótunarvinna hefur farið fram hjá Landsvirkjun frá því að Hörður tók við forstjórastöðunni fyrir um ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Telur þú eðlilegt að sendiráð starfræki eftirlitshópa líkt og bandaríska sendiráðið gerir? JÁ 35,3% NEI 64,7% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ert þú sátt(ur) við niðurstöður sérfræðingahóps um skuldir heimilanna? Segðu þína skoðun á visir.is KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.