Fréttablaðið - 15.11.2010, Blaðsíða 2
2 15. nóvember 2010 MÁNUDAGUR
ÞJÓÐKIRKJAN Lagt var til á Kirkjuþingi í gær að
leggja niður fimm prestsembætti í sparnaðarskyni.
Þá á að selja eignir fyrir 120 milljónir. Rekstrar-
áætlun ársins 2011 gerir ráð fyrir um tíu prósent
niðurskurði í almennum rekstri.
Heildartekjur Þjóðkirkjunnar í frumvarpi
til fjárlaga árið 2011 eru áætlaðar 3,5 milljarð-
ar króna. Áætlaðar greiðslur til Þjóðkirkjunnar
lækka um 330 milljónir króna á milli áranna 2010
og 2011 eða um 8,6 prósent ef miðað er við fjárlög
2010.
Búið er að ákveða að leggja niður Holtspresta-
kall og Kálfafellsstaðarprestakall í febrúar og maí
2011, en þau eru bæði í Suðurprófastsdæmi.
Þá er lögð til lækkun launakostnaðar starfs-
manna biskups Íslands og kirkjumálasjóðs sem
samsvarar fækkun um 5,2 stöðugildi og námsleyfi
presta verða þrír mánuðir á árinu 2011 í stað 36
mánaða árið 2009.
Þær eignir sem reynt verður að selja eru aðal-
lega jarðir. Útlit er fyrir að 26 jarðir verði seldar,
flestar í Suðurprófastsdæmi og Kjalarnesprófasts-
dæmi.
Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri Bisk-
upsstofu, sagði í viðtali við RÚV í gær að margar
minni sóknir ættu í fjárhagserfiðleikum, en kirkju-
sóknir á Íslandi eru 273 talsins. - shá
Kirkjuþing fjallar um 330 milljóna króna niðurskurð á næsta ári:
Fækka prestum og selja eignir
HART Í ÁRI Kirkjan þarf að grípa til stórtækra aðgerða til að ná
endum saman.
HEILBRIGÐISMÁL Forvarnarteymið Gróska í
Grafarvogi ætlar að senda frá sér kvörtunar-
bréf til borgaryfirvalda, Sambíóanna og Egils-
hallar vegna nammibars í nýja Egilshallar-
bíóinu.
Sameiginlegur inngangur er fyrir þá sem
ætla í bíó og þá sem stunda íþróttir í höllinni.
Nammibarinn er á fyrstu hæðinni og allir
geta notað hann, hvort sem þeir ætla í bíó eða
ekki. Þetta telur forvarnarteymið ekki vera
við hæfi, enda margir krakkar sem ganga um
þetta svæði og líta nammibarinn girndaraug-
um á leið sinni á og af æfingum.
„Allir sem koma inn í Egilshöll, hvort sem
þeir eru að fara í bíó eða að stunda íþróttir,
ganga beint inn í sælgætisbarinn, popplykt-
ina og allt sem þessu fylgir. Það er algjörlega
fráleitt að setja þetta svona upp,“ segir Hera
Hallbera Björnsdóttir frístundaráðgjafi.
„Þetta er íþróttamannvirki og þarna eru
börn að koma á íþróttaæfingar. Þarna er líka
frístundaheimili fyrir fötluð börn og þess-
ir aðilar þurfa að fara þarna í gegn. Við erum
búin að heyra óánægjuraddir vegna þessa.
Foreldrar eru í vandræðum með að ná börnun-
um sínum þarna í gegn,“ segir hún.
Forvarnarteymið vill helst að nammibarinn
verði fluttur upp á aðra hæð, þar sem bíóið er,
rétt eins og raunin er í Smárabíói. „Við erum
hins vegar mjög ánægð með bíóið. Það er bara
fyrirkomulagið á sjoppunni sem við erum
ósátt við,“ segir Hera. - fb
Forvarnarteymið Gróska í Grafarvogi kvartar yfir nýju bíói í Egilshöll:
Nammibar freistar barna á leið á æfingar
NAMMIBARINN Forvarnarteymið Gróska í Grafarvogi er
óánægt með staðsetningu nammibarsins í Egilshöll.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SAMGÖNGUR „Það var rok og viður-
styggilegur kuldi. Við þurftum að
labba illa klæddir og kvefaðir út í
HR því miðstöðin í bílnum er svo
léleg að hún hefur viðhaldið kvef-
inu í okkur síðustu daga,“ segir
borgarstjórinn Jón Gnarr, sem
hefur ekið um á indverskum raf-
magnsbíl af gerðinni Reva í starfi
sínu síðustu mánuði. Jón segist
endanlega hafa gefist upp á bílnum
á föstudagskvöld þegar sprakk á
honum þar sem hann, ásamt Birni
Blöndal aðstoðarmanni sínum, var
á leiðinni í Háskóla Reykjavíkur til
að vígja þar nýja skólabyggingu.
„Auk þess er ekki nægilegur
kraftur í bílnum til að drífa upp
brekku ef stoppað er í henni, þá
þarf maður að bakka niður og taka
tilhlaup. Ég sé þetta ekki ganga
upp í vetur,“ segir Jón.
Hann segist hafa verið ákveðinn
í að kynna vistvæna samgöngu-
möguleika þegar hann tók við
stöðu borgarstjóra í júní síðastliðn-
um og ferðaðist því um á vetnisbíl
sem borgin fékk að láni fyrstu tvo
mánuðina í embætti, eða þar til sá
bíll bilaði. „Þá fengum við þennan
rafmagnsbíl sem Orkuveitan á en
var ekkert að nota. Það var voða-
lega fyndið fyrst, þangað til fór að
kólna,“ segir Jón. Hann býst við að
keyptur verði metanbíll sem hafð-
ur verði til almennra nota fyrir
ráðhúsið. „Þá get ég notað hann
líka þegar ég þarf á bíl að halda,
sem er reyndar ekkert mjög oft.
Þessi gamli háttur, að borgarstjór-
inn hafi embættisbíl og bílstjóra,
er dauður.“
Sighvatur Lárusson, fram-
kvæmdastjóri Northern Lights
Energy sem flytur inn Reva-raf-
magnsbíla, segist hafa hlegið
þegar hann heyrði af umkvörtun-
um borgarstjórans. Þessi ákveðna
gerð hafi verið flutt inn til landsins
af öðrum aðilum í gegnum norska
umboðsaðila, en það hefði aldrei
átt að gerast.
„Það voru flutt inn um fimm
stykki af þessari ákveðnu gerð,
sem byggir á margra ára gamalli
tækni og hefur ekki sömu gerð af
rafhlöðum og eru í öllum nýjustu
rafmagnsbílunum. Reva hefur hins
vegar hannað mjög góða bíla sem
ætlunin er að markaðssetja á þessu
ári. Mér þykir dálítið kjánalegt af
borgarstjóra sem vill vera grænn
að nýta sér svo gamla tækni, að
vera á gamalli dollu sem hann
kvartar svo undan,“ segir Sighvat-
ur. kjartan@frettabladid.is
Rafbíllinn fyndinn
þar til fór að kólna
Borgarstjórinn Jón Gnarr segist hafa gefist upp á indverskum rafbíl og vill
nú að keyptur verði metanbíll til almennra nota fyrir ráðhúsið. Innflytjandi
rafmagnsbíla gagnrýnir Jón fyrir að nýta sér ekki nýjustu tækni í slíkum bílum.
RAFMAGNSBÍLL Jón Gnarr borgarstjóri segir vel koma til greina að draga rafmagnsbíl-
inn aftur fram í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Auk þess er ekki
nægilegur kraftur
í bílnum til að drífa upp
brekku ef stoppað er í henni,
þá þarf maður að bakka
niður og taka tilhlaup.
JÓN GNARR
BORGARSTJÓRI
LÖGREGLUMÁL Maður um fertugt
réðst inn í verslun Krónunnar
við Reykjavíkurveg í Hafnar-
firði á laugardag vopnaður hnífi.
Ræninginn heimtaði peninga af
afgreiðslufólki og ógnaði fólki í
versluninni með hnífnum.
Maðurinn hafði dálítinn ráns-
feng upp úr krafsinu og stökk á
flótta. Starfsmaður verslunar-
innar vildi ekki láta hann kom-
ast upp með brotið, hljóp á eftir
honum út og sneri hann niður.
Hann fékk aðstoð frá viðskipta-
vini við að rífa hnífinn úr hönd-
um ræningjans. Lögregla kom á
staðinn háltíma síðar. Starfsmað-
urinn og viðskiptavinurinn gættu
ræningjans þangað til. - sh
Vopnaður maður yfirbugaður:
Hrifsuðu hníf
af ræningja
Friðrik, eru Norðmennirnir
með hreina samvisku?
„Ef svo er ekki þá ættu þeir að
minnsta kosti að geta þvegið hana.“
Friðrik Weisshappel segir augljóst að
hugmyndinni að Café Laundromat-stað í
Ósló hafi verið stolið frá sér, en Friðrik er
eigandi tveggja slíkra staða í Kaup-
mannahöfn og annars sem senn opnar
í Reykjavík.
ÚTIVERA Um fjögur þúsund manns
sóttu Bláfjöll í gær og nutu góð-
viðrisins á skíðum.
Prýðilegt færi var í fjallinu í
gær, heiðskírt og logn. Þetta var
fyrsta opnunarhelgin í Bláfjöllum
það sem af er vetri, en nokkrum
tíðindum sætir að skíðasvæðið
opni svo snemma.
Í stjórnstöð skíðasvæðanna var
góður andi í gær og sagði starfs-
fólk í fjallinu að um algjöran
draumadag væri að ræða.
Gott skíðafæri um helgina:
Þúsundir sóttu
Bláfjöllin
BLÁFJÖLL Prýðilegt skíðafæri var í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SVÍÞJÓÐ Mona Sahlin, leiðtogi
sænskra jafnaðarmanna, sagði
af sér sem formaður flokksins í
gær. Sahlin segir að með afsögn-
inni vilji hún axla ábyrgð á lélegu
gengi í þingkosningunum fyrir
tveimur mánuðum.
Bandalag jafnaðarmanna og
vinstri flokka beið nauman ósig-
ur í kosningunum fyrir bandalagi
mið- og hægrimanna, en jafn-
aðarmenn hlutu þar sína verstu
útreið frá árinu 1914.
Leit að nýjum formanni hefst á
morgun. Nafn Margot Wallström,
sem starfar hjá Sameinuðu þjóð-
unum í New York, hefur verið
nefnt, eins og nöfn nokkurra
fyrrverandi ráðherra jafnaðar-
manna. - sh
Leitað að nýjum leiðtoga:
Mona Sahlin
segir af sér
MONA SAHLIN Axlar ábyrgð á lélegu
gengi flokksins í kosningum.
NORDICPHOTOS / AFP
LÖGREGLUMÁL Allt tiltækt lið
slökkviliðsins á höfuðborgar-
svæðinu var sent að íbúð við
Laugaveg 40 á tíunda tímanum í
gærkvöldi. Mikinn reyk lagði þá
frá húsinu.
Orsök reyksins var glóð við
rafmagnstengil í risíbúð, en
umbætur standa þar yfir. Íbúð-
in var mannlaus þegar að var
komið.
Slökkvilið var enn við störf
þegar blaðið fór í prentun. - shá
Allsherjar útkall slökkviliðs:
Mikinn reyk
lagði frá risíbúð
SPURNING DAGSINS
Fjölbreytt og gott
veganesti fyrir lífið
Kjarngóð næring
Ósaltað
Ósykrað
Engin aukaefni
www.barnamatur.is
Lífrænn
barnamatu
r