Fréttablaðið - 15.11.2010, Blaðsíða 40
15. nóvember 2010 MÁNUDAGUR28
sport@frettabladid.is
SIGFÚS SIGURÐSSON skoraði eitt mark með sínu nýja liði, Emsdetten, er það
vann óvæntan sigur á toppliði Minden í þýsku B-deildinni í handbolta. Sigfús gekk í
raðir félagsins í síðustu viku enda á þjálfari liðsins, Patrekur Jóhannesson, í miklum
vandræðum vegna meiðsla leikmanna..
Ég stefni á að verða
einn af fimm bestu
markvörðum heims.
Þarna fæ ég að spila með
bestu mönnum heims.
BJÖRGVIN PÁLL GÚSTAVSSON
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0030 · www.burstagerdin.is
- Í öll anddyri
- Hvaða stærð sem er
- Afgreidd á 2 dögum
• •B
UR
S TAGERÐ I N
ÍS
L
E N SKUR I Ð N
AÐ
U
R
HANDBOLTI Landsliðsmarkvörð-
urinn Björgvin Páll Gústavsson
mun í dag skrifa undir tveggja ára
samning við þýska úrvalsdeildar-
félagið Magdeburg. Björgvin Páll
mun ganga í raðir félagsins næsta
sumar og mun því klára tímabil-
ið með svissneska liðinu Kadetten
Schaffhausen.
„Ég var í viðræðum við tvö frá-
bær úrvalsdeildarlið. Hitt liðið
vildi fá mig 2012 en Madgeburg
vill fá mig næsta sumar. Ég tel mig
vera tilbúinn til að fara í úrvals-
deildina núna og var ekki til í að
bíða í eitt ár í viðbót. Þannig að
ég mun semja við Magdeburg og
er mjög ánægður með það,“ sagði
Björgvin Páll við Fréttablaðið í
gær.
Magdeburg er fornfrægt félag
og með sterkar tengingar til
Íslands. Alfreð Gíslason þjálfaði
liðið á sínum tíma og gerði það
að Evrópumeisturum er Ólafur
Stefánsson lék með liðinu. Sigfús
Sigurðsson var einnig á mála hjá
félaginu sem og Arnór Atlason.
Félagið var í miklum fjárhags-
vandræðum en hefur unnið sig úr
þeim og leiðin liggur upp á við.
Fjárhagsstaðan er aftur orðin
góð og félagið er smám saman að
byggja upp sterkt lið á nýjan leik.
Magdeburg er í áttunda sæti í
þýsku úrvalsdeildinni sem stend-
ur.
„Ég vildi fara í lið þar sem ég
fæ að spila mikið. Þetta er félag á
uppleið og ég mun fá að spila mikið
þarna. Það er hollenskur mark-
vörður til staðar og við munum
skipta tímanum á milli okkar.
Ég tel að þetta sé hárrétt skref
fyrir mig á þessum tímapunkti.
Ég hef viljað taka rétt skref fram
á við á mínum ferli en þau mega
ekki vera of stór. Ég þarf að spila
og vaxa sem markvörður. Þetta
er lið í efri hluta deildarinnar og
mun bara styrkjast á næstu árum,“
sagði Björgvin Páll sem orðinn er
25 ára gamall.
Björgvin Páll á sér háleita
drauma og hefur verið óhræddur
við að gefa út markmið sín.
„Ég ætla að verða einn af bestu
markvörðum heims. Þarna fæ ég
að spila gegn bestu mönnum heims
og stefnan er að festa sig í sessi
sem markvörður í þýsku úrvals-
deildinni.
Allt frá því ég var 14 ára gamall
hef ég sett stefnuna á að verða einn
af fimm bestu í heimi. Með því að
gefa út markmið mín kemur meiri
pressa og ég vil hafa það þannig.
Ég er berjast fyrir þessu mark-
miði á hverri einustu æfingu,“
sagði Björgvin Páll.
„Ég tel mig vera á réttri leið.
Það eru mjög fáir markverður á
mínum aldri sem eru komnir þetta
langt og með þá reynslu sem ég
hef. Menn eru venjulega að toppa
eftir þrítugt og ég á enn mörg ár
í það.“
Björgvin segist hækka lítillega
í launum við það að fara til Þýska-
lands en hann er með góðan samn-
ing hjá Kadetten.
„Ég er ekki að horfa bara á
samningana heldur framtíð mína.
Ég hefði verið áfram hér næstu tíu
árin ef ég væri bara að hugsa um
peninga og að hafa það huggulegt.“
Björgvin til Magdeburg
Björgvin Páll Gústavsson hefur ákveðið að skrifa undir samning við þýska
úrvalsdeildarfélagið Magdeburg þar sem Íslendingar hafa gert garðinn frægan.
Björgvin ætlar sér að verða einn af fimm bestu markvörðum heims.
Á RÉTTRI LEIÐ Landsliðsmarkvörðurinn magnaði mun spila í þýsku úrvalsdeildinni
næsta vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/DIENER
BADMINTON Ragna Ingólfsdóttir
gerði sér lítið fyrir og vann tvö-
falt á Iceland International-mót-
inu um helgina. Hún vann ein-
liðaleikinn og tvíliðaleikinn með
Katrínu Atladóttur.
Ragna mætti Anitu Raj Kaur
frá Malasíu í úrslitum í einliða-
leik og vann í tveim lotum, 21-17
og 21-18.
Ragna og Katrín lögðu Tinnu
Helgadóttur og Erlu Björg Haf-
steinsdóttur í úrslitum tvíliða-
leiksins í tveim lotum, 21-14 og
21-13.
Daninn Kim Bruun vann ein-
liðaleik karla en hann lagði landa
sinn, Jacob Damsgaard Eriksen, í
úrslitaleiknum. - hbg
Iceland International:
Tvöfalt hjá
Rögnu
SIGURSÆL Ragna er hér með Katrínu
Atladóttur en þær unnu tvíliðaleikinn
saman. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
HANDBOLTI Eftir ellefu leiki í röð
án taps kom að því að Rhein-
Neckar Löwen tapaði leik undir
stjórn Guðmundar Guðmundsson.
Flensburg lagði Löwen, 32-31,
í fyrsta leik sínum undir stjórn
Svíans Ljubomir Vranjes.
Leikurinn var æsispennandi
allt til enda en leikmenn Löwen
héldu ekki út.
Ólafur Stefánsson skoraði eitt
mark fyrir Löwen og Róbert
Gunnarsson var á bekknum eins
og vanalega.
Lærisveinar Dags Sigurðsson-
ar í Fuchse Berlin unnu góðan
sigur á Friesenheim, 36-32, þar
sem Alexander Petersson skoraði
sex mörk fyrir Berlin.
Löwen og Berlin hafa bæði 19
stig í þriðja og fjórða sæti deild-
arinnar. - hbg
Löwen tapaði fyrir Flensburg:
Fyrsta tap
Guðmundar
RÓLEGUR Ólafur lét sér nægja að skora
eitt mark í gær. NORDIC PHOTOS/BONGARTS
FÓTBOLTI Garðar Jóhannsson og
félagar í Strömsgodset urðu í
gær bikarmeistarar er þeir lögðu
Follo, 2-0, í úrslitaleik.
Garðar byrjaði á bekknum en
fékk að leika síðustu fjórar mín-
útur leiksins.
Follo er B-deildarlið og Ösku-
buskuævintýri þeirra í bikarnum
fékk ekki hinn fullkomna endi.
Liðið gerði sér lítið fyrir og lagði
Noregsmeistara Rosenborg á leið
sinni í úrslitaleikinn. - hbg
Norski boltinn:
Garðar bikar-
meistari
BIKARMEISTARI Garðar fagnar hér í
landsleik en hann fagnaði með Ströms-
godset í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FORMÚLA 1 Hinn 23 ára gamli Þjóð-
verji, Sebastian Vettel, varð í gær
yngsti heimsmeistarinn í Formúlu
1 frá upphafi. Hann vann þá loka-
mótið í Abu Dhabi og sigurinn
þar dugði honum til þess að verða
heimsmeistari.
Mikil spenna var í mótinu en
alls áttu fjórir ökumenn möguleika
á heimsmeistaratitlinum en það
hefur aldrei gerst áður fyrir loka-
mót. Fernando Alonso stóð best að
vígi fyrir mótið en hann varð að
sætta sig við sjöunda sætið í gær.
Hann varð því annar í keppni
ökumanna. Mark Webber varð
þriðji en hann náði aðeins áttunda
sætinu í Abu Dhabi. Lewis Ham-
ilton varð annar í gær og endaði í
fjórða sæti í keppni ökumanna.
Vettel grét af gleði í bíl sínum
þegar ljóst var að hann hefði unnið
titilinn. „Þetta hefur verið ótrúlegt
ár. Við misstum aldrei trúna á liðið
og bílinn okkar. Ég hafði svo alltaf
trú á sjálfum mér. Ég er orðlaus.
Bíllinn var frábær í dag,“ sagði
Vettel. - hbg
Þjóðverjinn ungi, Sebastian Vettel, ók best allra í spennuþrungnu lokamóti:
Yngsti heimsmeistari sögunnar
MEISTARINN Vettel lyftir hér bikarnum í Abu Dhabi í gær. NORDIC PHOTOS/AFP