Fréttablaðið - 15.11.2010, Síða 19
15. nóvember 2010 MÁNUDAGUR1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Japanska hönnunarstúdíóið Daisuke Motogi kynnti skemmti-
legan hægindastól á hönnunarsýningunni DesignTide Tokyo
2010. Stóllinn er hannaður þannig að hægt er að stinga alls
kyns hlutum inn á milli laga. Það má geyma bækur í hliðum
hans, eða skreyta stólinn með blómum og skrauti.
É
g hef yfirleitt reynt að
takmarka umhverfis-
sóðaskap og halda sóun í
lágmarki. Hef til dæmis
ýmist gengið eða hjólað í skóla
og vinnu þann aldarfjórðung
sem ég hef haft bílpróf,“ segir
Páll Gestsson verkfræðingur.
Hann er meðvitaðri um mengun
í heiminum en gengur og gerist,
sem meðal annars birtist í því
að hann notar aldrei einnota glös
eða bolla og segir það geta vakið
furðu fólks í veislum þegar hann
biður um almennilegan bolla
undir kaffið. „Þetta leiðir oft til
umræðu um umhverfismál sem
er af hinu góða og sumir hrista
hausinn yfir þessari sérvisku
sem er líka skemmtilegt,“ segir
hann brosandi.
Páli er sérdeilis illa við sóun á
plasti síðan hann las um plast-
mengun úthafanna. „Vegna stað-
bundinna hafstrauma þá safnast
rusl, aðallega plast, saman í risa-
vaxna flekki. Stærðin á þeim er
ógnvænleg. Stærsti flekkurinn
er í Kyrrahafi og hann er áætl-
aður tíu sinnum stærri en Ísland.
Aðrir flekkir eru að safnast upp
í Atlantshafi og Indlandshafi,“
lýsir hann og nefnir ofnotkun
á plastflöskum sem eina hlið á
þessum peningi. Plastburðarpok-
ar eru líka komnir á bannlist-
ann hjá honum og hann kveðst
hafa þurft að nota útsjónarsemi
í matvörubúð þegar hann upp-
götvaði of seint að hann var ekki
með poka með sér. „Ég hélt á öllu
í fanginu, stakk í vasana og setti
bananaknippi í hettuna. Auðvit-
að leit ég afskaplega heimsku-
lega út en það er bara gaman að
því. Prinsipp eru prinsipp.“
Páll býst ekki við að plast-
glasaþvermóðska hans hafi stór-
kostleg áhrif en telur ekki veita
af að vekja athygli á umhverf-
ismálum. „Á Íslandi eru allar
forsendur til að vera til fyrir-
myndar í því að takmarka áhrif
á umhverfið,“ segir hann. „Með
hreint vatn og orku drjúpandi af
hverju strái.“
gun@frettabladid.is
Íslendingar eru með afbrigðum neysluglöð þjóð en Páll Gestsson verkfræðingur sker sig úr fjöldanum.
„Það getur vakið furðu fólks í veislum þegar ég bið um almennilegan bolla undir kaffið,“ segir Páll. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nota aldrei
einnota glös
Listh
Sofðu vel um jólin
IQ-Care heilsudýnur.
Verð Queen 153x203 cm á
íslenskum botni: 179.900 kr.
Íslenskur höfuðgafl 84.900 kr.
(Sé keypt rúm fæst 20%
afsláttur af höfuðgafli.)
Úrval af stillanlegum
rúmum.
2x80x200 cm með
okkar bestu IQ-care
heilsudýnu.
Verð frá 339.900 kr.
BOAS
Leður hægindastóll.
Verð 79.900
Leður hægindasófi 3 sæta
Verð frá 169.900
Svefnsófi verð frá 169.900