Fréttablaðið - 15.11.2010, Side 20
„Áhuginn á rennismíði er að auk-
ast, sýningin er vel sótt,“ segir
Karl Helgi Gíslason sýningar-
stjóri en þetta er í fjórða sinn sem
félagið sýnir í Ráðhúsi Reykjavík-
ur. „Við höfum eignast fjóra nýja
félaga eftir að sýningin opnaði
fyrir rúmri viku. Félag trérenni-
smiða er 17 ára gamalt og meðlim-
ir eru um 250 manns um allt land.
Meðalaldurinn er reyndar nokkuð
hár hjá okkur, á sýningunni eru
meðal annars gripir eftir Guð-
mund Sveinsson, 86 ára,“ útskýr-
ir Karl Helgi og segir jafnframt
sýninguna gefa góða mynd af þeim
fjölbreytileika og frumleika sem
býr í íslenskum smiðum.
Rennismíði er ekki vernduð iðn-
grein og er félagið áhugamannafé-
lag. Félagsmenn eiga margir eigið
verkstæði en félagið hefur aðstöðu
á smíðadeildinni í Kennaraháskóla
Íslands. „Á fundum félagsins fer
fram sýnikennsla í rennismíði
og fengnir eru fyrirlesarar með
fróðleik um bæði
trjárækt og með-
ferð viðarins. Það
er varla að neinn
hafi atvinnu af
þessu en menn fá
öðru hvoru verkefni. Hvað mig
varðar finnst mér verkefnin fleiri
núna en áður. Eins eru nokkr-
ir sem renna pílára í handrið og
endastólpa í stiga og fleira,“ segir
Karl Helgi og bætir við að efnivið-
urinn sé nægur.
„Við nýtum okkur garðviðinn
sem kemur inn á Sorpu og ef heyr-
ist í keðjusög einhvers staðar labb-
ar maður þang-
að og athugar
hvað er verið
að fella. Gull-
regn er dásam-
legur viður að
renna, lerki er
mjög gott og
birkið líka. Ilmreynir er
líka mjög skemmtilegur ef
maður fær góðan bol, með
skrautlegum kjarna.“
Sýningin stendur til 21. nóv-
ember. Sjá www.trerennismidi.
is
heida@frettabladid.is
Skáldað í tré
Sýning Félags trérennismiða á Íslandi stendur nú yfir í Tjarnarsal
Ráðhúss Reykjavíkur. Þar sýna fjórtán trérennismiðir muni sína en
yfirskrift sýningarinnar er Skáldað í tré, horft til framtíðar.
Karl Helgi Gíslason, sýningarstjóri Félags
trérennismiða, en félagið sýnir nú í
Ráðhúsi Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hollenski hönnuðurinn Jeroen van Laarhoven of Tjep
hefur hannað skemmtilega stóla. Þá kallar hann LAT sem
stendur fyrir Love.Approach.Together en stólarnir eru festir
saman, tveir og jafnvel þrír.
Hægt er að
losna við
vonda lykt
úr ísskáp
með því að
láta 2 til 3
tsk. af mat-
arsóda standa í opnu
íláti í ísskápnum.
blogs.myspace.
com
Á sýningunni
má sjá
listmuni og
nytjahluti
eftir fjór-
tán renni-
smiði.
Rýmum fyrir
jólavörunum
Lín Design Laugavegi 176
Sími 533 2220 www.lindesign.is
Nýtt Kortatímabil
Patti.is
Landsins mesta úrval af sófasettum
Yfir 80 mismunandi sófagerðir.
Mál og áklæði að eigin vali.
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
Púðar í úrvali Verð frá 2.900 kr
Basel Sófasett 3+1+1 Verð frá 360.900 kr
AFS á Íslandi • Sími 552 5450 • www. afs.is
OPIÐ HÚS
AFS-skiptinemasamtökin á Íslandi verða með
opið hús á morgun, þriðjudag kl. 17-19, í húsakynnum
samtakanna, Ingólfsstræti 3, Reykjavík.
Allir sem vilja forvitnast um skiptinemadvöl,
sjálfboðaliðadvöl eða starfsemi okkar almennt,
eru hvattir til að líta við og kynna sér það sem
við höfum upp á að bjóða.
M eirapró f
U p p lýsin gar o g in n ritun
í s ím a 5670300
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI?
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem
setja „like“ við Vísi á Facebook geta
unnið óvænta vinninga í hverri viku.