Fréttablaðið - 16.11.2010, Side 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Þriðjudagur
skoðun 14
16. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Aðalheiður Rósa Harðardóttir sópaði til sín verðlaunum á karatemótinu Stockholms Open.
Thorvaldsenskonur hafa styrkt göngudeild
Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans um
hálfa milljón króna til að innrétta og útbúa leikmeðferðarherbergi BUGL.
Gef ekkert eftir
Þ etta kom mér virkilega á óvart, ég er bara enn þá í sæluvímu,“ segir Aðalheiður Rósa Harðardóttir, sautj-án ára stúlka af Akranesi, sem vann á dögunum til fernra verðlauna á Stockholms Open í karate.Alls tóku 650 keppendur frá tólf löndum þátt í mótinu og átti Ísland 35 fulltrúa. Aðalheiður vann gull fyrir einstaklingskata og hópkata í yngri flokki og silfur í hópkata og brons í ein-staklingskata í fullorðinsflokki. Hún segir þennan góða árangur hafa komið sér í opna skjöldu.„Mér hefur áður gengið vel á mótum en aldrei náð svona langt,“ viðurkennir Aðal-heiður, sem hefur æft með Karatefélagi Akra-ness í átta ár, og vill þakka þjálfara sínum Einari Hagen, Ásmundi Ísaki Jónssyni lands-liðsþjálfara og Helga Jóhannessyni, þjálfara Breiðabliks, fyrir veittan stuðning.Árangurinn í Svíþjóð segir Aðalheiður vera sér hvatning til að leggja enn harðar að sér. „Ég held bara áfram og gef ekkert eftir,“ segir hún ákveðin en á döfinni eru meðal annars annað mót í Svíþjóð og Norðurlandameistaramótið íTampere í Finnlandi í apríl Spen dur að sjá hv i
Opið: má-fö. 12:30 -18:00, Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum Kóp 201
S: 517 7727 nora.is faceb k
3ja daga afmælishátiðFull búð af nýjum vörum20% afsláttur – allar vörur16. 17. og 18. nóvemberFyrir bústaðinn og heimilið
tíska og lífsstíllÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 20102 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Tíska og lífsstíll
veðrið í dag
16. nóvember 2010
269. tölublað 10. árgangur
Vinir Indlands í tíu ár
Markmiðið er að
mennta fátæk börn og
munaðarlaus.
tímamót 18
Kynngimögnuð
PBB / FT
FB / FBL
Kynnið ykkur úrvalið
af sælkerakörfum
á ms.is
Íslensk gjöf
fyrir sælkera
ms.is
Ostakörfur frá MS
Heilsa • Slökun • Vellíðan
5
4
0 -4
2
HLÝNANDI Í dag verða víðast
austan 5-13 m/s. Rigning eða slydda
S- og A-til en annars úrkomulítið.
Hiti 0-7 stig, en vægt frost N-lands.
VEÐUR 4
STJÓRNMÁL Fjárlaganefnd Alþingis
hefur falið Byggðastofnun að meta
samfélagslegar afleiðingar niður-
skurðar opinberrar þjónustu í kjöl-
far efnahagshrunsins.
Skoða á hvaða áhrif fjárlög áranna
2009 til 2011 hafa haft. Í þeim birt-
ist efnahagsstefna stjórnvalda.
Oddný G. Harðardóttir, formað-
ur fjárlaganefndar, segir þetta til
marks um ný og vönduð vinnu-
brögð. „Það þarf að meta þessi
samfélagslegu áhrif og niðurstöð-
urnar verða hafðar til hliðsjón-
ar við gerð fjárlagafrumvarpsins
2012.“
Oddný segir þetta ekki til
marks um að fjárlaganefnd telji
að niðurskurðurinn hafi til þessa
verið handahófskenndur og fram-
kvæmdur án þess að áhrif hans
hafi legið ljós fyrir. „Það er ekki
hægt að meta þetta fyrr en komin
er reynsla.“
Alþjóðlega viðurkenndar mæli-
stikur við kostnaðar- og nytja-
greiningu verða notaðar. Liggja
kostnaður, tekjur, mannauður,
atvinna, menntun, samgöngur og
fleira til grundvallar. Jafnframt er
tekið tillit til byggða- og kynjasjón-
armiða svo og stofnanaþróunar.
Byggðastofnun hefur áður tekið
að sér að skoða áhrif væntanlegs
niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu
á einstök landsvæði. - bþs
Fjárlaganefnd hefur falið Byggðastofnun að gera útttekt á áhrifum hrunsins:
Samfélagsáhrif niðurskurðar metin
Jólabókafjölskyldan
Tengjast á marga vegu.
fólk 30
TÉKKLAND, AP Jarðneskar leifar
danska stjörnufræðingsins
Tycho Brahe voru grafnar upp í
gær, svo ganga megi úr skugga
um hvort hann hafi verið myrtur.
Tycho Brahe
lést í Prag árið
1601, aðeins 54
ára að aldri.
Jarðneskar
leifar hans
hafa einu sinni
áður verið
grafnar upp.
Það var árið
1901.
Sýnishorn af
hári hans, sem
þá voru tekin, voru rannsökuð
árið 1996 og fannst í þeim óvenju
mikið af kvikasilfri, sem vakti
grun um að eitrað hafi verið
fyrir honum.
Lengi var talið að hann hafi
látist af völdum sýkingar í þvag-
blöðru eða vegna nýrnasjúk-
dóms. - gb
Tycho Brahe grafinn upp:
Banamein til
rannsóknar
STJÓRNMÁL Drög að nýju samkomu-
lagi um Icesave liggja fyrir.
Í því er meðal annars horft til
þess að eigur gamla Landsbankans
dugi fyrir höfuðstól skuldar Íslend-
inga við Breta og Hollendinga.
Þjóðirnar eiga fulltrúa í óform-
legu kröfuhafaráði og fylgjast
grannt með þróun búsins. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
hafa horfur á góðum heimtum liðk-
að fyrir viðræðum.
Fram kom á Stöð 2 í gærkvöldi að
40 til 60 milljarðar króna muni falla
á íslenska ríkið, samist hafi um níu
mánaða vaxtahlé og að vextir verði
um þrjú prósent. Í eldri samningi
voru vextirnir 5,5 prósent.
Í frétt Stöðvar 2 var einnig sagt
að fjármálaráðuneytið hefði kynnt
stjórnarandstöðu og aðilum vinnu-
markaðarins samkomulagið.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins, kannast ekki við það. „Ég hef
heyrt þessar sögur en það hefur
ekki verið fundað í hópi formanna
flokkanna í nokkra mánuði og ég
hef ekki hitt Lárus Blöndal [full-
trúa stjórnarandstöðu í samninga-
nefnd Íslands] í nokkrar vikur.“
„Þetta hefur ekki verið kynnt
stjórnarandstöðunni,“ segir Þór
Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.
Ekki náðist í Bjarna Benediktsson,
formann Sjálfstæðisflokksins.
„Seinustu upplýsingar sem við
höfum eru frá fundi með samninga-
nefndinni fyrir einum og hálfum til
tveimur mánuðum, og þá voru þeir
hvergi nærri því að vera með sam-
komulag sem við getum sætt okkur
við.“
Vilmundur Jósefsson, formað-
ur Samtaka atvinnulífsins, þekk-
ir hins vegar málið. „Það var núna
fyrir stuttu sem drög að nýju sam-
komulagi voru borin undir okkur,
en um leið tekið fram að það væri
ekkert endanlegt. Ef þetta er raun-
in þá erum við óneitanlega í miklu
betri stöðu en áður. Okkur sýnist að
þetta sé í mjög góðum farvegi.“
- bþs, gb
Stjórnarandstaðan kannast
ekki við nýja Icesave-lausn
Í drögum að nýju samkomulagi um Icesave er gert ráð fyrir að 40 til 60 milljarðar króna falli á íslenska
ríkið og að vextir verði um þrjú prósent. Eigur Landsbankans eru taldar duga fyrir höfuðstól skuldarinnar.
Það var núna fyrir
stuttu sem drög að
nýju samkomulagi voru borin
undir okkur.
VILMUNDUR JÓSEFSSON
FORMAÐUR SAMTAKA ATVINNULÍFSINS
SIGURLIÐ SELJASKÓLA FAGNAR Mikil fagnaðarlæti brutust út í troðfullum sal Borgarleik-
hússins þegar Jón Gnarr borgarstjóri tilkynnti að Seljaskóli hefði unnið Skrekk, hæfileikakeppni grunnskólanema í
Reykjavík í ár. Í öðru sæti varð Breiðholtsskóli en í því þriðja Laugalækjarskóli, sem var í fyrsta sæti í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
TYCHO BRAHE
Gulldrottningar
Hrafnhildur Lúthersdóttir
og Eygló Ósk Gústafsdóttir
fóru mikinn um helgina.
sport 26