Fréttablaðið - 16.11.2010, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 16.11.2010, Blaðsíða 22
 16. NÓVEMBER 2010 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● tíska og lífstíll Kírópraktstofa Íslands var opnuð í byrjun þessa mánaðar í Sporthús- inu í Kópavogi. Þar ræður Magni Bernhardsson kírópraktor húsum en hann er eini kírópraktorinn á landinu sem notar digital-röntgen- tæki. Öll greiningarvinna með nýju tækjunum fer fram á tölvuskjá fyrir framan viðskiptavininn sem fær strax greiningu á sínum vanda eftir um það bil klukkustund. Í fyrsta tímanum er tekið ítarlegt viðtal, hreyfi-og stöðugreining er gerð, mynd tekin og hnykkt í lokin ef þess er þörf. Fólk fær líka góð ráð til að geta hjálpað sér sjálft. Magni starfaði í tólf ár sem einkaþjálfari áður en hann flutti til Bandaríkjanna til að nema kíró- praktík og er nú kominn með dokt- orsgráðu eftir sex ára háskólanám. Hann er sérhæfður í íþróttameiðsl- um, þar á meðal golfmeiðslum. - gun Ný kírópraktstofa Magni er fyrsti og eini kírópraktorinn á landinu sem notar digital-röntgentæki. Nýjasta lína Ninu Ricci, eftir hönnuðinn Peter Copping, gaf til kynna stelpulegt og frísklegt sumar á næsta ári. Frískur og léttur kvenleiki var í hávegum hafður með fallegum blúndum, satíni og siffoni í fallegum bláum, bleikum og gulum lit sem minntu um margt á málverk eftir Monet. Copping blandaði saman hinu praktíska og því skemmtilega í hönnun sinni og setti upp mynd af hinni vinnandi konu sem ávallt er tilbúin í hvað sem er, hvort sem það er viðskiptafundur eða að ganga úti á fallegum sumardegi. Nýjasta lína Ninu Ricci er eitthvað til að hlakka til fyrir næsta sumar. Fallegir og frískir litir Sumarið 2011 er prakt- ískt en skemmtilegt hjá Ninu Ricci. ● EMMA WATSON MEÐ NÝJA TÍSKULÍNU Leik- konan Emma Watson, sem þekktust er úr Harry Potter myndunum, lætur ekki deigan síga, þó Potterævintýrið sé á enda. Hún sækir nám við Brown-háskóla og setti á mark- að síðastliðið vor tískulínu undir merkjum People Tree. Hún stefnir nú á aðra tískulínu þar sem fötin verða öll búin til úr umhverfisvænum efnum og á umhverfisvæn- an máta. Félagi hennar að þessu sinni er engin önnur en ítalska tískudrottningin Alberta Ferretti. Þær sækja innblástur frá leikkonunni og söngkonunni Jane Birkin. Nafn tískulínunnar hefur ekki verið gert opinbert. Línan mun verða í klassískum stíl en fyrstu flíkurnar verða kynntar til leiks skömmu eftir jólin. Árleg tískusýning undirfatafyr- irtækisins Victoria‘s Secret var haldin með pompi og prakt á dögunum. Mikið var lagt í sýn- inguna, þrátt fyrir að þemað hafi verið „minna er meira“. Margar af þekktustu fyrirsætum heims tóku þátt í sýningunni, þar á meðal Adriana Lima sem skartaði hvorki meira né minna en 2 milljóna dollara brjóstahaldara, gerðum úr 60 karata demöntum og 82 karata safírum og tópassteinum. Það er spurning hvort „minna er meira“ hafi átt við í þessu tilfelli og getur hver dæmt fyrir sig, en sýningin verður sýnd á sjónvarpstöðinni CBS í lok þessa mánaðar. Minna er meira? Það er ekki á allra færi aðvera í brjóstahaldara eins og þessum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.