Fréttablaðið - 16.11.2010, Qupperneq 4
4 16. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 15.11.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
205,02
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
112,32 112,86
180,60 181,48
152,90 153,76
20,509 20,629
18,72 18,83
16,277 16,373
1,354 1,362
174,84 175,88
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
FRÉTTASKÝRING
Hvað veldur óánægju meðal fram-
bjóðenda til stjórnlagaþings?
Stór hópur frambjóðenda til
stjórnlagaþings er afar ósáttur
við hversu litla kynningu mál-
staður frambjóðenda hefur fengið
í aðdraganda kosninganna. Skor-
að hefur verið á Ríkisútvarpið að
sinna lýðræðislegu hlutverki sínu
og kynna frambjóðendurna fyrir
almenningi.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hefur orðið til vísir að
nokkurs konar hagsmunasamtök-
um frambjóðenda á netinu, þar
sem nærri 200 af 523 frambjóð-
endum hafa skipst á skoðunum
um fyrirkomulag kosninganna á
lokuðum póstlista.
Þar hafa bæði stjórnvöld og fjöl-
miðlar, sérstaklega Ríkisútvarpið,
verið harðlega gagnrýnd fyrir að
sinna ekki kynningu á kosningun-
um og frambjóðendum betur.
Sendingar frá fjölmiðlum til
frambjóðenda þar sem þeim er
boðið að kaupa auglýsingar í miðl-
um sem lítið hafa fjallað um kosn-
ingarnar hafa hleypt illu blóði í
hluta frambjóðenda, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins.
Hópur þeirra hefur þegar skrif-
að undir áskorun til Ríkisútvarps-
ins um að sinna lýðræðishlutverki
sínu og upplýsa kjósendur um
stefnumál frambjóðenda. Ekki
náðist í Pál Magnússon útvarps-
stjóra í gær til að bera þessa
áskorun undir hann.
Frambjóðendur sem rætt hafa
þessi mál á póstlistanum hafa
margir hverjir lýst áhyggjum
sínum af kosningaþátttöku. Vísað
hefur verið til skoðanakönnun-
ar MMR, sem sýndi að aðeins
tæplega 55 prósent voru búin að
ákveða að kjósa.
Til að bregðast við þessu hafa
frambjóðendurnir rætt um að
kaupa sameiginlega auglýsingar
þar sem fólk er hvatt til að nýta
kosningarétt sinn í þessum mikil-
vægu kosningum.
Guðrún Pétursdóttir, formaður
stjórnlaganefndar, segir áhyggju-
efni ef fáir ætli sér að kjósa. Hún
vonast til þess að áhuginn glæðist
þegar kynningarefni stjórnvalda
berst kjósendum.
„Það er mjög brýnt að fólk noti
kosningarétt sinn, þetta er tæki-
færi fólks til að hafa áhrif,“ segir
Guðrún. Hún tekur ekki undir
áhyggjur sumra frambjóðenda
um að kynning á þeirra stefnu-
málum sé ónóg. Hún bendir á að
kosningavefur stjórnvalda, kosn-
ing.is, sé vel upp settur og skýr,
og einkaaðilar hafi tekið sig til og
sett upp kosningavefi.
Byrjað var að dreifa kynning-
arefni stjórnvalda í gær. Hjalti
Zóphóníasson, skrifstofustjóri í
dómsmála- og mannréttindaráðu-
neytinu, segir að sendur verði 96
síðna litprentaður bæklingur á öll
heimili, auk þess sem hver kjós-
andi fær sýnishorn af kjörseðli.
Spurður hvort stjórnvöld hafi
gert nóg til að kynna frambjóð-
endur segir Hjalti að stjórnvöld
hafi sinnt skyldu sinni í þeim
efnum. Það sé svo undir frambjóð-
endunum sjálfum komið að kynna
sig betur.
brjann@frettabladid.is
Frambjóðendur gagnrýna
bæði stjórnvöld og fjölmiðla
Hópur frambjóðenda til stjórnlagaþings er ósáttur við hversu litla kynningu stefnumál þeirra hafa fengið.
Skorar á Ríkisútvarpið að sinna lýðræðishlutverki sínu. Kynningarefni stjórnvalda verður sent út í dag.
KJÖRFUNDUR Fáir hafa nýtt sér möguleika á að kjósa utan kjörfundar enn sem
komið er. Opnað var fyrir utankjörfundaratkvæði síðastliðinn miðvikudag, en um
miðjan dag í gær hafði 121 greitt atkvæði á landinu öllu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefur farið afar rólega af stað fyrir kosn-
ingarnar til stjórnlagaþings. Nokkrir tugir hafa kosið á dag síðan atkvæða-
greiðslan hófst síðastliðinn miðvikudag. Um miðjan dag í gær hafði samtals
121 kosið utan kjörfundar, samkvæmt upplýsingum frá starfsmanni á
kjörstað í Laugardalshöll.
Atkvæðagreiðslan tekur mun lengri tíma fyrir hvern kjósanda sökum þess
að fólk þarf að raða einkennisnúmerum allt að 25 frambjóðenda í rétta röð
á kjörseðil sinn. Samkvæmt upplýsingum frá starfsmanni á kjörstað tekur
það hvern kjósanda oftast á bilinu fimm til fimmtán mínútur að kjósa.
Flestir koma vel undirbúnir með lista yfir þá frambjóðendur sem þeir ætla
að kjósa. Hægt er að skoða upplýsingar um alla frambjóðendur, raða þeim á
lista og prenta út á kosningavef dómsmálaráðuneytisins, kosning.is.
Hægt er að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá sýslumönnum um land
allt. Í Reykjavík er kosið í Laugardalshöll. Þá er hægt að greiða atkvæði í
sendiráðum Íslands erlendis. Kjördagur er laugardagurinn 27. nóvember.
Fáir greitt atkvæði utan kjörfundar
Læknastö›in, Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is
Ókeypis
heyrnarmæling
úrvals
heyrnartæki
og afbragðs þjónusta!
DÓMSMÁL Söluturnum Aktu taktu
hefur verið meinað að bjóða upp
á rétt með nafninu Twister, sam-
kvæmt dómi héraðsdóms.
Veitingahúsakeðjan Kentucky
Fried Chicken krafðist þess að
Aktu taktu hætti notkun á vöru-
merkinu, enda hefði KFC átt
einkarétt á Twister-merkinu frá
árinu 2000. Aktu taktu hóf að
nota nafnið Taco Twister árið
2004.
FoodCo, sem rekur Aktu taktu,
er gert að afmá vörumerkið
Twister af matseðlum sínum og
kynningarefni innan 30 daga að
viðlögðum 50 þúsund króna dag-
sektum til KFC. - sh
KFC vinnur dómsmál:
Enginn Twister
á Aktu taktu
HEILBRIGÐISMÁL Settar verða regl-
ur til að takmarka notkun öflugra
leysibenda vegna vaxandi fjölda
dæma um misnotkun.
Guðbjartur Hannesson heil-
brigðisráðherra hefur boðað
reglugerðarbreytingu sem gerir
notkun öflugra leysigeisla leyfis-
skylda og innflutning þeirra til-
kynningaskyldan.
Dæmi eru um að slíkum leysi-
geislum sé beint að flugstjórnar-
klefum flugvéla og að bílstjór-
um við akstur. Alvarleg slys geta
hlotist af slíkri misnotkun. - bj
Takmarka notkun leysibenda:
Þarf leyfi frá
Geislavörnum
SAMFÉLAGSMÁL Þeim félagsmönn-
um Sjálfsbjargar sem eru í skulda-
vanda vegna íbúðakaupa verður
nú boðið upp á fjármálaráðgjöf og
aðstoð í samskiptum við lánastofn-
anir. Ekki er um fjárhagsaðstoð
að ræða, heldur markviss viðtöl
þar sem leitað verður mögulegra
lausna.
„Við erum að bregðast við þeim
aðstæðum sem eru í gangi hjá
okkar fólki og byrjum á því að
taka þá sem eru í vandræðum út
af húsnæðismálum í kjölfar hruns-
ins,“ segir Kolbrún Stefánsdóttir,
framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar.
- sv
Sjálfsbjörg býður þjónustu:
Bregðast við
skuldavanda
MENNTAMÁL Íslensk málnefnd
hefur áhyggjur af stöðu íslensk-
unnar í háskólasamfélaginu og vill
að íslenska verði gerð að opinberu
tungumáli í Háskóla Íslands. Þetta
kemur fram í ályktun nefndarinn-
ar sem samþykkt var um mánaða-
mót.
Fram kemur í ályktuninni að
samkvæmt rannsóknum séu
um og yfir níutíu prósent af öllu
námsefni á háskólastigi hérlend-
is á ensku. Þá hafi um 80 prósent
af doktorsritgerðum við Háskóla
Íslands árin 2000 til 2009 verið á
ensku.
„Ef þessi þróun heldur áfram
næstu áratugi og námskeiðum
og heilum námsbrautum á ensku
fjölgar blasir við að verulega
mun þá þrengt að íslenskri tungu
í háskólasamfélaginu á Íslandi.
Svo gæti farið að íslenska yrði
ekki lengur gjaldgeng í íslensk-
um háskólum og yrði að víkja þar
fyrir ensku,“ segir í ályktuninni.
Íslensk málnefnd telur mikil-
vægt að spyrna fótum við þessari
þróun, þótt óraunhæft og óskyn-
samlegt væri að ryðja ensku eða
öðrum erlendum tungumálum úr
háskólasamfélaginu. - sh
Íslensk málnefnd áhyggjufull yfir stöðu íslenskunnar í háskólasamfélaginu:
Óttast enskuna í háskólum
HÁSKÓLI ÍSLANDS Níutíu prósent af
námsefni á háskólastigi hérlendis eru á
ensku. FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
7°
8°
7°
9°
4°
8°
8°
22°
10°
20°
15°
28°
-1°
10°
19°
2°
Á MORGUN
Vaxandi NA-átt NV-til.
FIMMTUDAGUR
Allhvöss NA-átt NV-til
annars mun hægari.
0
0
0
2
-4
-2
-4
4
5
6
6
6
4
6
6
9
10
7
7
8
7
02
6
8
0
1
3
0
6
4
8
HLÝNANDI VEÐUR
Hlýnar í dag með
nokkuð stífri aust-
anátt, rigning eða
slydda sunnan og
austan til en styttir
smám saman upp
suðvestanlands. Á
morgun verður hit-
inn víðast á bilinu
0-8 stig og úrkoma
á austurhelmingi
landsins.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Aðstandendur málþingsins Hvernig
getur ADHD barnið náð stjórn og
einbeitingu án lyfja heita Sigríður
Jónsdóttir og Gréta Jónsdóttir en nöfn
þeirra misfórust í laugardagsblaði
Fréttablaðsins. Beðist er velvirðingar
á því.
LEIÐRÉTT