Fréttablaðið - 16.11.2010, Síða 8
8 16. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
ÞJÓÐKIRKJAN Kirkjuþing samþykkti
samhljóða tilnefningar kirkjuráðs
til rannsóknarnefndar á laugar-
dag sem á að rannsaka viðbrögð
og starfshætti Þjóðkirkjunnar í
kjölfar ásakana á hendur Ólafi
Skúlasyni biskupi vegna kynferð-
isbrota.
Rannsóknarnefndin er skipuð
þeim Róbert R. Spanó, prófessor og
forseta lagadeildar Háskóla Íslands
(HÍ), Berglindi Guðmundsdóttur,
sálfræðingi og klínískum dósent
við sálfræðideild HÍ, og Þorgeiri
Inga Njálssyni, dómstjóra Héraðs-
dóms Reykjaness og aðjúnkts við
lagadeild Háskólans í Reykjavík.
Kostnaðarumsögn fjármálasviðs
Biskupsstofu sem lögð var fram á
kirkjuþingi tilgreinir að kostnað-
ur við starf nefndarinnar muni
greiðast úr kirkjumálasjóði og er
áætlaður á bilinu 10 til 12 milljón-
ir króna, miðað við umfang verk-
efnisins.
Róbert R. Spanó, formaður
nefndarinnar, segir kostnað fyrst
og fremst fólginn í vinnuframlagi
nefndarmanna og eftir atvikum
annarra sem munu aðstoða nefnd-
ina við störf hennar. Samkvæmt
tillögunni á nefndin að skila af sér
rökstuddum niðurstöðum eigi síðar
en 1. júní næsta árs og jafnframt
að kynna þær opinberlega.
„Vegna umfangs og eðlis verk-
efnisins tel ég líklegt að nefndin
muni þurfa að nýta þann tíma sem
hún hefur til fulls,“ segir Róbert.
„Niðurstöður nefndarinnar verða
aðeins kunngerðar opinberlega
þegar starfinu er lokið.“
Nefndin á að fá óheftan aðgang
að öllum gögnum kirkjunnar sem
kunna að varpa ljósi á hvort um
mistök, vanrækslu eða vísvitandi
þöggun eða tilraun til þöggunar
hafi verið að ræða af hálfu vígðra
þjóna og starfsmanna kirkjunnar,
eftir að ásakanir um kynferðisbrot
voru komnar fram og hverjir kunni
að bera ábyrgð á því.
Róbert væntir þess að það gangi
eftir og segir hópinn munu hittast
á fundi í vikunni.
„Gera má ráð fyrir að verkefn-
ið verði þríþætt. Gagnaöflun í upp-
hafi, síðan viðtöl við þá sem í hlut
eiga og starfsmenn kirkjunnar,
og loks skýrslugerð og frágang-
ur,“ segir hann. Rannsóknin verð-
ur bundin við viðbrögð kirkjunn-
ar við meintum kynferðisbrotum
Ólafs Skúlasonar biskups.
„Nefndarmenn hafa þegar rætt
saman um verkefnið en fyrsti
formlegi vinnufundurinn fer fram
í þessari viku,“ segir Róbert.
sunna@frettabladid.is
Vegna umfangs og
eðlis verkefnisins tel
ég líklegt að nefndin muni
þurfa að nýta þann tíma sem
hún hefur til fulls.
RÓBERT R. SPANÓ
FORMAÐUR
RANNSÓKNARNEFNDARINNAR
1. Einn milljarð króna 2. Ragnheiður
Ragnarsdóttir og synti á 54,65 sek. 3.
Mona Sahlin
1. Hvað telur Samband sveitar-
félaga raunhæft að spara mikið í
rekstri grunnskólanna?
2. Hver setti Íslandsmet í 100 metra
skriðsundi nú um helgina?
3. Hvað heitir stjórnmálakonan sem
sagði af sér formennsku í sænska Jafn-
aðarmannaflokknum á sunnudag?
SVÖR
Startup Weekend-vinnusmiðjan
verður haldin í fyrsta sinn á
Íslandi í lok alþjóðlegrar athafna-
viku. Um er að ræða vinnusmiðju
með leiðbeinendum frá Bandaríkj-
unum sem munu fræða þátttakend-
ur um stofnun sprotafyrirtækja og
mótun viðskiptahugmynda.
Kristján Freyr Kristjánsson,
starfsmaður hjá Innovit, sér um
viðburðinn og segir hann hóp-
inn sem sækir viðburðinn afar
blandaðan. „Þátttakendur skipt-
ast í raun í þrjá hópa: almenn-
ingur sem vill og hefur áhuga á
nýsköpun, háskólanemar og svo
starfsmenn sprotafyrirtækja sem
vilja þróa sínar eigin hugmyndir.
Frumkvöðlar sem hafa áhuga á því
stofna sín eigin fyrirtæki,“ segir
Kristján.
Startup Weekend er 54 stunda
vinnusmiðja þar sem nýjar við-
skiptahugmyndir eru þróaðar. Á
föstudeginum verða bestu hug-
myndirnar kynntar og þær þróaðar
áfram út helgina. Helgin er partur
af alþjóðlegum viðburði sem hefur
verið haldinn í yfir hundrað borg-
um víðs vegar um heim
Landsbankinn og Innovit standa
saman að framtakinu sem stendur
yfir 19. til 21. nóvember næstkom-
andi. Upplýsingar og skráningu er
að finna á síðunni www.iceland.
startupweekend.org. - sv
KRISTJÁN FREYR KRISTJÁNSSON Umsjón-
armaður Startup Weekend segir hópinn
sem sækir viðburðinn afar blandaðan.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ATHAFNAVIKA: Ráðherra setur alþjóðlega athafnaviku
Startup Weekend-vinnusmiðjan haldin í fyrsta sinn á Íslandi:
Kenna fólki stofnun sprotafyrirtækja
Rannsóknar-
starfið hafið
hjá kirkjunni
Kirkjuþing hefur samþykkt tillögu kirkjuráðs um
rannsóknarnefnd. Kostnaður við störf nefndarinnar
nemur allt að 12 milljónum króna. Umfangsmikið
verkefni, segir formaður nefndarinnar.
0,20% 0,25%
3,45%
S
24
E
R
Í
EI
G
U
B
Y
R
S
Samanburður debetreikninga*
TILBOÐ MÁNAÐARINS
HJARTAMAGNÝL
689 KR.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI?
Stærsti frétta- og afþreyingarvefur landsins.
BISKUPSSTOFA Rannsóknarnefnd mun skoða viðbrögð og starfshætti Þjóðkirkjunnar
í kjölfar ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi vegna kynferðisbrota. Nefndin skal
skila niðurstöðum fyrir 1. júní á næsta ári.
VEISTU SVARIÐ?