Fréttablaðið - 16.11.2010, Page 12

Fréttablaðið - 16.11.2010, Page 12
 16. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR American Style • Bíldshöfði 14 • Dalshraun 13 • Nýbýlavegur 22 • Skipholt 70 • Tryggvagata 26 www.americanstyle.is þetta gildir um alla hópa sem telja fjóra eða fleiri, eina skilyrðið er að allir panti sér máltíð. Við tökum sérstaklega vel á móti öllum hópum í nóvember og sá yngsti velur sér máltíð alveg ókeypis! SÁ YNGSTI BORÐAR FRÍTT Í NÓVEMBER KLOSSI BORÐAR FRÍTT ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 52 23 6 11 /1 0 20% afsláttur HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS Skíðapakkar ÍRLAND, AP Írsk stjórnvöld ítrekuðu í gær að þau telji sig ekki þurfa neina fjárhagsaðstoð frá Evrópu- sambandinu til að komast í gegn- um kreppuna, að minnsta kosti ekki strax. Nóg fé sé til í ríkissjóði til að endast fram á mitt næsta ár án nýrrar lántöku. Írsk stjórnvöld viðurkenndu hins vegar að hafa undanfarna daga átt í viðræðum við evrópska ráðamenn um vandann, sem írska bankakerf- ið stendur frammi fyrir. Staða Írlands verður rædd á fundi fjármálaráðherra evruland- anna, sem haldinn verður í Brussel í dag. Aðildarríki Evrópusambandsins hafa áhyggjur af því að vandræði írskra banka geti gert fjárhags- vanda annarra Evrópusambands- ríkja enn erfiðari, og er hann þó nógu erfiður fyrir. Fréttastofan Bloomberg hefur eftir Christoph Weil, sérfræð- ingi við þýska bankann Commerz- bank, að fyrr eða síðar hljóti Írar að þurfa utanaðkomandi aðstoð. Vitor Constancio, aðstoðar- b a n k a s t j ó r i s e ð l a b a n k a Evrópu sambandsins, segir að stöðugleikasjóður ESB og Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins, sem stofnaður var þegar Grikkir stóðu frammi fyrir illviðráðanlegum fjárhags- vanda, standi einnig Írum til boða. Fjárfestar óttast að írska ríkið ráði ekki við vandann og írskir bankar fari hreinlega á haus- inn. Þessi ótti veldur því að lán- tökukostnaður annarra Evrópu- sambandsríkja hækkar, en við því mega þau varla vegna eigin skuldavanda. „Við höfum nákvæmlega enga ástæðu til þess að Írland ætti að leita eftir utanaðkomandi aðstoð,“ segir Dick Roche, Evrópumálaráð- herra írsku stjórnarinnar. „Fjár- hagslega er Írland vel stætt.“ Hann hélt því ákveðið fram að ekki stæði til að leita eftir aðstoð úr neyðarsjóði Evrópusambands- ins: „Við vitum ekki hve oft við þurfum að segja þetta, sem ríkis- stjórn, til þess að stöðva allar þess- ar ónákvæmu vangaveltur.“ Markaðsólgan er hins vegar tekin að líkjast því sem gerðist á Grikklandi áður en Evrópusam- bandið og Alþjóðagjaldeyrissjóður- inn hlupu undir bagga þar í vor. gudsteinn@frettabladid.is Írar bera sig mannalega Evrópusambandið segir að Írum standi til boða efnahagsleg aðstoð úr stöðugleikasjóði ESB og AGS, en Írar segjast ekki þurfa á neinni aðstoð að halda. HEIMSENDASTEMNING Írskir fjölmiðlar auglýsa fyrirsagnir um að evrunni verði ekki mikið lengur við bjargandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað- fest gæsluvarðhald manns, sem að tilefnislausu réðst hrottalega á sex- tán ára stúlku á göngustíg í Laug- ardal. Maðurinn hefur játað brot sitt, en hann verður í gæsluvarðhaldi til 10. desember. Hæstiréttur féllst á að maðurinn gangist undir geð- rannsókn. Í úrskurði héraðsdóms kemur fram að maðurinn segist ekki muna mikið eftir atburðarásinni sökum ölvunar. Hann segist hafa verið mjög reiður eftir að hafa verið vísað úr strætisvagni, en engin sérstök ástæða hafi verið fyrir árásinni. Stúlkan var á leið heim úr skóla þegar maðurinn réðst á hana. Hann lamdi hana með þungu áhaldi í höf- uðið svo hún féll við, tók hana síðan kverkataki svo hún missti meðvit- und, en þá hljóp hann burt. - gb Maður sem réðst á stúlku á gangstíg í Laugardal: Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhald

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.