Fréttablaðið - 16.11.2010, Page 26
16. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR18
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir
má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
timamot@frettabladid.is
„Vinir Indlands urðu til fyrir tíu árum
þegar lítill hópur fólks, sem átt hafði
persónuleg tengsl við Indland, stofn-
aði félag byggt á hugmyndum húman-
ista í samstarfi við heimamenn í Tamil
Nadu-héraði á Suður-Indlandi,“ segir
Sólveig Jónasdóttir, formaður Vina
Indlands sem í dag heldur upp á tíu
ára afmæli sitt með árvissum styrkt-
artónleikum í Salnum.
„Markmið félagsins er að mennta
fátæk börn og munaðarlaus, og á
hverju ári njóta nokkur hundruð barna
menntunar í gegnum styrki Vina Ind-
lands.”
Nýjasta verkefni félagsins er bygg-
ing heimilis fyrir munaðarlausa
drengi í Thorapadi, en félagið styrkir
einnig stúlknaheimili í Salem.
„Hugmyndin að heimilinu kviknaði
eftir Tsunami-flóðbylgjuna 2004, en
þá fórum við utan og kynntumst börn-
um sem orðið höfðu munaðarlaus. Þau
voru ýmist inni á fátækum ættingjum
eða komin eitthvert á vinnumarkað,
án nokkurs möguleika á skólagöngu
eða mannsæmandi framtíð. Á heim-
ilunum fá börnin gott húsnæði, fæði,
klæði og skólagöngu, en einnig styrkj-
um við fræðslumiðstöðvar í þorpun-
um og vonandi getum við einn dag-
inn keypt tölvur,“ segir Sólveig sæl
með árangurinn, en á munaðarleys-
ingjahælunum búa nú 24 drengir og
27 stúlkur.
„Um hundrað indversk börn eiga nú
íslenska styrktarforeldra en okkur
vantar fleiri til að geta fjölgað drengj-
um inn á heimilið og styrkt nokkra
af þeim sem fyrir eru til náms. Að
vera styrktarforeldri er skemmtilegt
og þakklátt verkefni, sem felur í sér
mikil samskipti. Sum barnanna hafa
áfram verið styrkt til háskólanáms
af íslenskum styrktarforeldrum og
einn þeirra, orðinn tölvunarfræðing-
ur, afhenti fyrstu laun sín sjálfboða-
liðum á Indlandi og tók að sér tvö ind-
versk börn til að hjálpa sjálfur. Þetta
viðhorf er gegnumgangandi: Mér var
hjálpað og þá hjálpa ég öðrum,“ segir
Sólveig.
Í samvinnu við Vini Kenía og Múltí
Kúltí senda Vinir Indlands unga
íslenska sjálfboðaliða utan þar sem
þeir fá að kynnast sjálfboðnu starfi
og ólíkri menningu heimamanna.
„Á Indlandi taka þau að sér almenna
umönnun og kennslu, og stórkostlegt
að sjá þessa krakka koma til baka
því meirihlutinn verður virkur í ein-
hvers konar starfi auk þess sem lífs-
reynslan breytir þeim fyrir lífstíð.
Því er gaman að geta breytt heim-
inum með svo áþreifanlegum hætti
í gegnum þetta frábæra unga fólk,“
segir Sólveig.
Afmælis- og styrktartónleikarn-
ir hefjast klukkan 20 í Salnum. Þjóð-
kunnir listamenn gefa vinnu sína og
allur ágóði rennur óskiptur til barn-
anna á Indlandi. Kópavogsbær greið-
ir fyrir afnot af Salnum.
thordis@frettabladid.is
VINIR INDLANDS: HALDA TÍU ÁRA AFMÆLIS- OG STYRKTARTÓNLEIKA Í KVÖLD
Gaman að breyta heiminum
Elsku litla dóttir okkar, systir
og barnabarn,
Rebekka Ýr
Guðmundardóttir,
lést á Barnaspítala Hringsins fimmtudaginn 4. nóvem-
ber. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Starfsfólki
Barnaspítala Hringsins færum við hugheilar þakkir
fyrir sín einstöku störf og umhyggju, sem og öllum
öðrum er hafa sýnt okkur samhug og stuðning. Við
biðjum þá sem vilja minnast Rebekku Ýrar að láta
Barnaspítala Hringsins njóta þess.
Auður Sif Sigurðardóttir Guðmundur Már Þorsteinsson
Rakel Emma Guðmundardóttir
Ólöf Ólafsdóttir Grétar Karlsson
Áslaug Björt Guðmundardóttir Þorvaldur Daníelsson
Sigurður Einar Steinsson Soffía Gunnlaugsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför föður míns, sonar
okkar, bróður og mágs,
Jóns Sigurgeirs
Sigurþórssonar
véltæknifræðings,
Álftamýri 8, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeildar og
líknardeildar Landspítalans, stjórnar og starfsfólks N1.
Sigurþór Jónsson
Sigurþór Jónsson Sigurborg V. Jónsdóttir
Garðar Sigurþórsson
Sigrún Sigurþórsdóttir Reynir Guðmundsson
Sigurþór Sigurþórsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Hannes Flosason,
fv. tónlistarskólastjóri og
tréskurðarmeistari,
Fannafold 187, Reykjavík,
sem lést þann 6. nóvember sl., verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju, þriðjudaginn 16. nóvember, kl. 13.00.
Kristjana Pálsdóttir
Páll Hannesson Sarah Buckley
Haukur F. Hannesson Jörgen Boman
Elín Hannesdóttir
Ingibjörg Hannesdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
Gíslínu Þórarinsdóttur,
Eyrarvegi 37, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins í Víðihlíð og heima-
hlynningu á Akureyri fyrir góða umönnun.
Helgi Helgason
og fjölskyldur.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Lára Charlotta
Sigvardsdóttir Hammer,
f. 29.11.1909,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 6. nóv-
ember. Að ósk hinnar látnu fór útförin fram í kyrrþey
föstudaginn 12. nóvember. Öllum þeim sem sýndu
henni virðingu og hlýhug er þakkað af alhug.
Starfsfólki deilda B-2 á Eir færum við hugheilar þakkir
fyrir sín einstöku störf og umhyggju í hennar garð
síðastliðin ár. Guð blessi ykkur öll.
Steina Guðrún Guðmundsdóttir
Elín Jóhanna Guðmundsdóttir Gylfi Jónsson
Sigrid Esther Guðmundsdóttir Haukur Örn Björnsson
Dóra Guðleifsdóttir
Rósmary Sigurðardóttir
og fjölskyldur.
Móðir mín, amma okkar og langamma,
Björg Kristjánsdóttir
frá Hafnarnesi, Fáskrúðsfirði,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði mánudaginn 8. nóvember
2010. Útför hennar fer fram frá Þjóðkirkjunni í
Hafnarfirði miðvikudaginn 17. nóvember kl. 15.00.
Kristján Gunnlaugsson
börn og barnabörn.
FRAMTÍÐIN BJÖRT Sólveig í hópi munaðarlausra drengja við framtíðarheimili þeirra í
Thorapadi, stuttu áður en heimilið var tekið í notkun í janúar. MYND/KJARTAN JÓNSSON
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför móður okkar, ömmu, systur
og mágkonu,
Kristbjargar Oddnýjar
Ingunnar Sigvaldadóttur.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynningar,
heimahjúkrunar, félagsþjónustunnar og öldrunar-
deildar Landspítalans í Fossvogi og líknardeildar á
Landakoti fyrir alúð við umönnun hennar.
Sigvaldi Ásgeirsson
Halldór Ásgeirsson
Margrét Ásgeirsdóttir
Sigurður Gunnar Ásgeirsson
Ingunn Rut Sigurðardóttir
Rakel Rut Sigurðardóttir
Hrefna Sigvaldadóttir
Sigrún Sigvaldadóttir Kristján Torfason
Aðalheiður Sigvaldadóttir Gunnar Guðjónsson
Merkisatburðir
1624 Dómkirkjan á Hólum í Hjaltadal fýkur í norðanveðri og
brotnar eftir að hafa staðið í 230 ár.
1907 Standmynd af Jónasi Hallgrímssyni afhjúpuð í tilefni aldar-
afmælis skáldsins.
1917 Reykjavíkurhöfn formlega tekin í notkun.
1957 Nonnahús á Akureyri opnað sem minjasafn.
1959 Söngleikurinn Söngvaseiður er frumsýndur á Broadway.
1938 Minnisvarði eftir Ríkharð Jónsson afhjúpaður á leiði
óþekkta sjómannsins í Fossvogskirkjugarði.
1987 Leikkonan Lisa Bonet giftist tónlistarmanninum Lenny
Kravitz.
1988 Robin Givens ákærir Mike Tyson vegna ærumeiðinga.