Fréttablaðið - 16.11.2010, Síða 28
20 16. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
BAKÞANKAR
sr. Sigurðar
Árna
Þórðarsonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. vanþóknun, 6. samþykki, 8. tré,
9. írafár, 11. í röð, 12. frækorns, 14.
sýna elliglöp, 16. í röð, 17. skjön, 18.
til viðbótar, 20. grískur bókstafur, 21.
sníkjur.
LÓÐRÉTT
1. þus, 3. tveir eins, 4. gufuskip, 5.
starf, 7. áleitinn, 10. svelgur, 13.
angan, 15. heimsálfu, 16. húðpoki,
19. átt.
LAUSN
Ég vil skilja – sem fyrst“ hljómar í síman-um. „Hvenær fæ ég tíma?“ Svo kemur
parið á prestsskrifstofuna til að ræða sam-
skipti og sáttahorfur. Ef ágreiningur er
mikill og bæði vilja skilja er talað um hags-
muni barna parsins, umgengni, samskipta-
hætti, eignaskipti og fjölda atriða til að allt
verði skýrt. Þegar skilnaðarasi er mikill og
andúð kyndir undir fer oftar en ekki illa.
Skemmtilegir skilnaðir eru fátíðir. Oftast
eru þeir dapurlegir og í einstaka tilvikum
hræðilegir. En áfall og kreppu má nýta til
góðs. Skilnaðir geta bætt líf heimilismanna
þegar mál eru unnin með hagsmuni allra að
leiðarljósi. Þetta eru gæðaskilnaðir.
„ÉG vil skilja ríki og kirkju – strax.“ Setn-
ingin var á bloggsíðu og sést og hljómar
víða. Of margir telja að hægt sé að efna til
skyndiskilnaðar ríkis og kirkju og nánast
eftir næstu helgi. Ef gæðaskilnaðir ein-
staklinga eru vandaverk eru slit ríkis
og kirkju sem næst „hið ómögulega“
svo vitnað sé í Ögmund Jónasson
„trúmálaráðherra“.
SKILNAÐUR og aðgreining eru sitt
hvað og í samhengi ríkis og kirkju
skyldi ekki rugla eða grauta þessu
tvennu saman. Skilnaður ríkis og
kirkju varðar fyrst og fremst 62.
grein stjórnarskrárinnar. Þá aðeins
verður lögformlegur skilnaður þess-
ara aðila ef stjórnarskrárákvæðið verður
fellt úr gildi. Allt annað mál er aðgreining
ríkis og kirkju. Þjóðkirkjan hefur viljað
og ríkið hefur veitt kirkjunni mikið frelsi.
Aðgreiningarferli hefur staðið í áratugi.
Þjóðkirkjan íslenska er ekki ríkiskirkja
eins og sú danska. Þjóðkirkjan íslenska
nýtur að lögum sjálfstæðis til jafns við hina
sænsku, sem þó er aðskilin frá ríkinu.
ÞJÓÐKIRKJAN er ekki ríkisrekið apparat.
Kirkjan afhenti ríkinu gífurleg verðmæti
til eignar. Ríkið greiðir aðeins vexti af þeim
höfuðstól. Laun presta eru slík greiðsla en
alls ekki framlag ríkisins. Skilja strax? Ja,
þá verður ríkið jafnvel dæmt til að skila
öllu eignasafninu, sem í eru nokkur helstu
dýrmæti Íslands, t.d. Þingvellir, allt land
Garðabæjar (land Garðakirkju), Borgarnes
(land Borgar). Ríkissjóður Íslands hefur
jafnvel ekki burði til að skila eða bæta.
ÞJÓÐKIRKJAN óskar, að ríkið skipti sér
sem minnst af málum hennar. Hún vill góð
samskipti því það er þjóðin, sem kirkjan
þjónar, og það er sama þjóð, sem ríkið á að
þjóna. Höldum áfram aðgreiningarferli.
Skiljum ekki fyrr en allt er fullrætt og allir
sáttir. Gætum að því að börn þjóðarinnar
klemmist ekki í átökum um trú og trúfélög.
Aðeins gott aðgreiningarferli getur leitt til
gæðaskilnaðar. Skilja strax – nei, kannski
seinna.
Skilja strax?
LÁRÉTT: 2. svei, 6. já, 8. við, 9. asi,
11. mn, 12. sæðis, 14. kalka, 16. hi,
17. mis, 18. enn, 20. pí, 21. snap.
LÓÐRÉTT: 1. fjas, 3. vv, 4. eimskip, 5.
iðn, 7. ásækinn, 10. iða, 13. ilm, 15.
asíu, 16. hes, 19. na.
Jahérna! Það
var þá eitthvað
vit í þessum
hárkúr!
Heldur
betur!
Ég ætla
að
hringja í
þú-veist-
hvern!
HVER ER
FLOTTASTUR
NÚNA?
Er ekki Jói
bara ánægð-
ur með að
hafa selt þér
skallalyf sem
virkar?
Jói? Ég var
að tala við
Gunnar
Kvaran
sellóleik-
ara!
Rólegur! Þekkjum við ekki
einhvern sköllótt-
an? Ómar Ragnars-
son! Hann hlýtur
að vera í skránni!
Óm...Óm...
Mamma, ég er að spá í
að bjóða fólki hingað á
föstudaginn.
Ekkert stórt, kannski við
horfum á bíómynd eða
spilum póker.
En gaman!
Get ég
eitthvað
hjálpað
þér?
Jahá!
En það kemur
ekki til greina
að yfirgefa
svæðið.
Nú,
jæja.
Nei þá.
Farið á
haus-
inn
Lóa er voða sæt
en hún segir
ekki mikið.
Við ættum
að kenna
henni að
tala!
Frábær
hugmynd!
Ókei.
HEY!Hermdu eftir
mér: „Bróðir
minn er vitlaus.“
En fyrst hún er bara smá-
barn ættum við að hafa
þetta einfalt.
Hausa-
talningar
ehf.
Meiri Vísir.
Úrval afþreyingar, frétta og myndskeiða í margfalt
betri upplausn en áður og með góðu aðgengi fyrir
allar tölvur og farsíma. Horfðu, hlustaðu og fylgstu
með öllu því sem gerist, hvar og hvenær sem er á Vísi.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upp-
lýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri
virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á nýjum Vísi.
Má bjóða ykkur meiri Vísi?
FÁÐU FÍNA
OG FRÆGA
FÓLKIÐ Í
HEIMSÓKN
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja „like“
við Vísi á Facebook geta unnið óvænta
vinninga í hverri viku.