Fréttablaðið - 16.11.2010, Síða 32

Fréttablaðið - 16.11.2010, Síða 32
24 16. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR Tónlist ★★★★ Kópacabana Blaz Roca Erpur lætur vaða Kópacabana er fyrsta sólóplata Erps Eyvindarsonar og jafnframt fyrsta plat- an frá honum síðan samstarfsplata Blaz Roca og U-Fresh, Hæsta hendin, kom út í árslok 2004. Stjarna Erps reis hæst í upphafi nýrrar aldar þegar XXX Rottweilerhundar hertóku íslenskt tónlist- arlíf og Johnny National var það ferskasta í sjónvarpinu. Síðan hægðist um og á tímabili hélt maður að hann væri búinn að stimpla sig út. En Erpur hefur verið að koma sterkur inn aftur að undanförnu. Bankahrunið var honum innblástur eins og heyrist í lögunum Landráð, Reykjavík-Belfast og Stórasta land í heimi sem öll eru á nýju plötunni. Blaz átti líka glæsilega innkomu í laginu Viltu dick? á plötunni með Sykri í fyrra. Það er líka á Kópacabana. Og nú er hann kominn með heila plötu. Og enga smá plötu, 21 lag, 75 mínútur. Blaz Roca er ekki einn á ferð á Kópacabana. Tvö laganna eru gerð með XXX Rottweiler, en Dabbi T, Dóri DNA, Friðrik Dór, Emmsjé Gauti, Sesar A og Raggi Bjarna eru á meðal gestaradda, að ógleymdum Ísfirðingunum Ísaksen og Kidda. Taktarnir eru flestir annaðhvort eftir Lúlla eða tvíeykið Redd Lights (Jóhann Bjarkason og Ingi Már Úlfarsson) sem er að gera það gott þessa dagana bæði hér og á plötunni hans Friðriks Dórs. Lögin á Kópacabana eru ekki öll tóm snilld, en mörg þeirra eru frábær og það er greinilegt að Erpur hefur náð fyrri snerpu í textunum. Hann lætur allt vaða og húmor, eitraðir orðaleikir og töffaraskapur bera plötuna uppi. Lögin Það er enginn að hlusta, Blaz Roca er don, Landráð, Reykjavík-Belfast, 112, Hleraðu þetta, Viltu dick? og titillagið Kópacabana eru öll fyrsta flokks. Það síðastnefnda fjallar að sjálfsögðu um Kópavoginn. Skemmtilegur texti sem er glæsilega myndskreyttur með ljósmyndum Jóa Kjartans í plötubæklingn- um. Á heildina litið frábær plata frá Erpi þó hún hefðir orðið enn sterkari ef hann hefði sleppt 3-4 slökustu lögunum. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Erpur Eyvindarson sýnir að hann kann enn að taka stórt upp í sig. Bíó ★★ I‘m Still Here Leikstjóri: Casey Affleck Sýnd á Haustbíódögum Græna ljóssins í Bíó Paradís. Tilgerðarlegur Phoenix Í október árið 2008 tilkynnti Joaquin Phoenix að hann væri hættur að leika og ætlaði að hefja feril sem rappari. Sumir trúðu honum, aðrir ekki. Uppá- tækið reyndist vera gabb og Phoenix eyddi næstu misser- um í að taka upp háðheim- ildarmyndina (e.þ. Mocku- mentary) I‘m Still Here. Myndin er frekar leiðinleg og tilgerðarleg. Joaquin Pho- enix er frábær leikari, en það er kjánalegt að fylgjast með honum þykjast missa vitið þegar maður veit betur. Það koma þó atriði sem skemmtilegt er að fylgjast með, þrátt fyrir að maður viti að flestir vissu að um gabb var að ræða. Atli Fannar Bjarkason Niðurstaða: Frekar leiðinleg mynd sem erfitt er að horfa á vitandi að hann var bara að djóka. VONBRIGÐI Undirritaður bjóst við skemmtilegri mynd. VALDIMAR Hljómsveitin Valdimar er skipuð vel menntuðum tónlistarmönnum. Söngvarinn Valdimar Guðmundsson stendur í miðjunni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Íslenska tónlistarmyndin Back- yard hlaut sérstök dómnefndar- verðlaun á einni stærstu heim- ildarmyndahátíð Evrópu, CPH: DOX, sem lauk í Kaupmanna- höfn á sunnudag. Myndin vann ekki í sínum flokki, Sound & Vision, en fékk engu að síður viðurkenningu fyrir að vera bæði frumleg og nútímaleg. „Þetta var mjög gaman því við vissum ekkert af þessu. Þetta kom algjörlega eins og þruma úr heiðskíru lofti,“ segir leikstjórinn Árni Sveinsson. Backyard fjallar um íslenskar hljómsveitir sem tengjast vin- áttuböndum, þar á meðal Hjalta- lín, múm, FM Belfast og Retro Stefson. „Við vorum þarna á eigin vegum og síðan var allt í einu verið að biðja okkur um að mæta á þessa verðlaunaafhend- ingu,“ segir Árni en forsvars- menn hátíðarinnar héldu fyrst að enginn úr Backyard-hópnum hefði mætt á hátíðina. Hljómsveitin Hjaltalín spil- aði á lokatónleikum hátíðarinn- ar. Henni til halds og trausts voru listakonurn- ar Saga Sig og Hildur Yeoman sem bjuggu til myndbands- verk fyrir tónleikana. - fb Backyard verðlaunuð Hljómsveitin Valdimar sendi frá sér fyrstu plötu sína á dögunum. Meðlimir poppsveitarinnar Valdi- mar, sem eru flestir frá Keflavík, eru allir vel menntaðir tónlistar- menn. Þrír eru útskrifaðir tónsmið- ir frá Listaháskólanum og einn úr tónlistarskóla FÍH í trommuleik. Sveitin gaf fyrir skömmu út sína fyrstu plötu, Undraland, sem hefur fengið góðar viðtökur. „Stefnan er að reyna að mennta sig eins mikið og á eins breiðu sviði og maður getur,“ segir söngv- arinn Valdimar Guðmundsson. Hann lauk tónsmíðanámi sínu við Listaháskólann í vor og er núna í FÍH á djass- og rokkbraut. Hann stefnir einnig á að ljúka námi sínu í djassbásúnuleik þarnæsta vor. „Þetta er gott hljóðfæri í popp- ið, finnst mér,“ segir hinn 25 ára Valdimar um básúnuna sem hann notar óspart í hljómsveitinni. Hún var stofnuð sumarið 2009 eftir að Valdimar og gítarleikarinn Ásgeir Aðalsteinsson höfðu verið að semja lög í smá tíma. Þrír með- limir bættust við sveitina, Guð- laugur Már Guðmundsson, Þor- valdur Halldórsson og Kristinn Evertsson, auk þess sem nokkrir gestaspilarar koma við sögu á tón- leikum. Valdimar segir að hljómsveit- ir á borð við Radiohead, Bítlana og Arcade Fire séu sameiginleg- ir áhrifavaldar hjá bandinu. Hún hlusti samt á fjölbreytta tónlist og áhrifin komi því úr fleiri áttum. Útgáfutónleikar Valdimars vegna nýju plötunnar verða í Fríkirkj- unni 27. nóvember. freyr@frettabladid.is Mennt er máttur - bara lúxus Sími: 553 2075 JACKASS 3D – ÓTEXTUÐ 6 , 8 og 10.15 12 UNSTOPPABLE 8 og 10.15 12 ARTÚR 3: TVEGGJA HEIMA STRÍÐIIÐ 6 -ÍSL TAL 7 STONE 8 og 10.15 16 ÚTI ER ÆVINTÝRI 2 6 -ÍSL TAL L 950 kr. 650 kr. 650 kr. 650 kr. 650 kr. Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar dagsins. LET ME IN BRUCE WILLIS, MORGAN FREEMAN, JOHN MALKOVICH OG HELEN MIRREN ERU STÓRKOSTLEG Í ÞESSARI ÓTRÚLEGA SKEMMTILEGU GRÍNMYND HOLLYWOOD REPORTER  EMPIRE 10 10 10 7 7 16 16 12 12 L L L L 10 10 10 16 12 12 L L L L JACKASS-3D kl. 5:50 - 8 - 10:20 DUE DATE kl. 5:50 - 8 - 10:20 DUE DATE kl. 8 - 10:20 RED kl. 5:50 - 8 - 10:20 ÆVINTÝTÝRI SAMMA-3D M/ ísl. Tali kl. 6 LET ME IN kl.10:30 ÓRÓI kl. 8 - 10:20 THE TOWN kl. 8 THE TOWN kl. 5:30 ALGJÖR SVEPPI kl. 6 GNARR kl. 5:50 - 8 - 10:20 DUE DATE kl. 8 - 10:20 RED kl. 10:20 THE SWITCH kl. 5:50 - 8 KONUNGSRÍKI UGLANNA-3D M/ ísl. Tali kl. 5:50 ÆVINTÝTÝRI SAMMA-3D kl. 6 DUE DATE kl. 8 - 10:10 GNARR kl. 6 - 8 - 10:10 ÆVINTÝTÝRI SAMMA-3D M/ ísl. Tali kl. 3.55 og 6 DUE DATE kl. 3.50 - 5.45 - 8 og 10.20 GNARR kl. 6 - 8 og 10.10 RED kl. 3.45 - 5.50 - 8.10 og 10.30 KONUNGSRÍKI UGLANNA-3D M/ ísl. Tali kl. 3.45 ÓRÓI kl. 8 LET ME IN kl. 10.20 KR 6. 5 0* KR 6. 5 0* KR 6. 5 0*KR 6. 5 0* Gildir ekki í Lúxus 950 SÍMI 564 0000 FULLKOMIN GÆÐI 12 12 L L L 16 L 7 L L SÍMI 462 3500 12 L L JACKASS 3D kl. 8 - 10 EASY A kl. 6 - 8 - 10 ARTHÚR 3 kl. 6 SÍMI 530 1919 L L L L 16 12 UNSTOPPABLE kl. 5.45 - 8 - 10.15 EASY A kl. 5.50 - 8 - 10.10 ARTHÚR 3 kl. 5.50 YOU WILL MEET A TALL DARK STRANGER kl. 8 - 10.15 INHALE kl. 8 - 10 BRIM kl. 6 JACKASS 3D kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 JACKASS 3D LÚXUS kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 UNSTOPPABLE kl. 5.45 - 8 - 10.15 EASY A kl. 5.50 - 8 - 10.10 ARTHÚR 3 kl. 3.40 MACHETE kl. 10.35 ÚTI ER ÆVINTÝRI 2 kl. 3.40 SOCIAL NETWORK kl. 8 EAT PRAY LOVE kl. 5.20 AULINN ÉG 3D kl. 3.40 .com/smarabio ATH: Tilboðin gilda ekki í Borgarbíói NÝTT Í BÍÓ! Sjáðu Jackass eins og þú hefur aldrei séð áður! ÞRIÐJUDAGAR ERU TILBOÐSDAGAR! 700 700 700 700 700 700

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.