Fréttablaðið - 16.11.2010, Qupperneq 34
16. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR26
sport@frettabladid.is
KIEL OG HAMBURG eigast við í toppslag þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld. Bæði lið eru með 20 stig
á toppi deildarinnar og því leikurinn afar mikilvægur í titilbaráttunni. Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel og Aron Pálmarsson
leikur með liðinu. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Iceland Express-deild karla
Njarðvík - Fjölnir 73-97 (40-54)
Stig Njarðvíkur: Christopher Smith 20, Guð-
mundur Jónsson 13, Friðrik Stefánsson 13, Páll
Kristinsson 6, Jóhann Árni Ólafsson 5, Hjörtur
Einarsson 3, Kristján Sigurðsson 3, Ólafur Jónss.
3, Egill Jónass. 3, Lárus Jónss. 2, Rúnar Erlingss. 2.
Stig Fjölnis: Ægir Þór Steinarss. 24, Tómas Tóm-
ass. 18, Magni Hafsteinss. 10, Sindri Káras. 9, Jón
Sverriss. 8, Arnþór Guðmundss. 8, Ben Stywall 7,
Hjalti Vilhjálmss. 5, Einar Þórmundss. 3, Trausti
Eiríkss. 2, Sigurður Þórarinss. 2, Leifur Aras. 1.
KFÍ - KR 98-143 (56-68)
Stig KFÍ: Nebojsa Knezevic 20, Craig Schoen
17, Ari Gylfason 10, Hugh Barnett 10, Daði Berg
Grétarsson 10, Darco Milosevic 10, Pance Ilievski
9, Carl Josey 8 Guðni Páll Guðnason 4.
Stig KR: Marcus Walker 28, Pavel Ermolinskij 25,
Brynjar Björnss. 19, Ágúst Angantýss. 15, Hregg-
viður Magnúss. 13, Fannar Ólafss. 13, Finnur
Magnúss. 12, Jón Kristjánss. 8, Matthías Sigurð-
ars. 5, Ólafur Ægiss. 3, Martin Hermannss. 2.
Grindavík - Stjarnan 100-92 (51-41)
Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergss. 20, Ómar
Sævarss. 17, Guðlaugur Eyjólfss. 17, R. Pettinella
13, Þorleifur Ólafss. 13, Jeremy Kelly 12, Ármann
Vilbergss. 3, Björn Brynjólfss. 3, Ólafur Ólafss. 2.
Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 29, Jovan Zdra-
vevski 23, Marvin Valdimarss. 13, Kjartan Kjart-
anss. 9, Daníel Guðmundss. 5, Guðjón Láruss. 5,
Fannar Freyr Helgason 4, Ólafur Ingvason 4.
STAÐAN
Snæfell 7 6 1 684-642 12
Grindavík 7 6 1 642-559 12
KR 7 5 2 702-599 10
Stjarnan 7 4 3 610-594 8
Keflavík 7 4 3 623-610 8
Fjölnir 7 3 4 624-619 6
Haukar 7 3 4 601-634 6
Hamar 6 3 3 507-505 6
KFÍ 6 2 4 573-616 4
Tindastóll 7 2 5 535-601 4
Njarðvík 7 2 5 535-617 4
ÍR 7 1 6 622-662 2
Eimskipsbikarkeppni karla
16-LIÐA ÚRSLIT
Akureyri - Afturelding 30-20 (13-9)
Mörk Akureyrar: Guðmundur Helgason 8, Daníel
Einarss. 4, Heimir Árnas. 4, Oddur Grétarss. 4,
Geir Guðmundss. 3, Hörður Sigþórss. 2, Bjarni
Fritzs. 1, Hlynur Matthíass. 1, Bergvin Gíslas. 1.
Mörk Aftureldingar: Eyþór Vestmann 4, Bjarni
Aron Þórðarson 4, Arnar Theódórsson 4, Aron
Gylfason 3, Haukur Sigurvinsson 2, Daníel Jóns-
son 2, Jón Andri Helgason 1.
ÚRSLIT
SUND Það var nóg að gera hjá þeim
Hrafnhildi Lúthersdóttur og Eygló
Ósk Gústafsdóttur í Laugardals-
lauginni um helgina. Hrafnhildur
vann sjö gull og bætti Íslandsmetið
í 400 metra fjórsundi og Eygló Ósk
vann sex gull, setti tvö Íslandsmet
og náði lágmörkum á EM.
Hrafnhildur vann mesta afrek
mótsins (100 metra fjórsund) og
flestar einstaklingsgreinar (6) og
það þrátt fyrir að vera í miðjum
undirbúningi fyrir HM í Dúbaí
sem fer fram í desember.
„Ég er mjög ánægð með þetta
en ég stefndi ekki á að gera vel á
þessu móti því ég er á fullu að und-
irbúa mig fyrir HM. Ég var samt
búinn að æfa vel,“ segir Hrafn-
hildur. Enginn tími var fyrir hana
til að slaka á enda oft stutt á milli
greina hjá henni auk þess sem hún
þurfti reglulega að stökkva upp á
pall og taka á móti gullverðlaun-
unum.
„Ég var orðin mjög þreytt eftir
mótið og var eiginlega alveg búin
á því. Þetta var mjög góð æfing,“
segir Hrafnhildur.
„Ég var ánægðust með 400
metra fjórsund út af Íslandsmet-
inu sem kom mér verulega á óvart
því ég var mest stressuð fyrir það
sund. Þetta er grein sem ég er
nýfarin að leggja einhverja áherslu
á og ég hef ekki mikið verið að
keppa í henni,“ segir Hrafnhild-
ur. „Ég bætti mig líka í 100 metra
fjórsundi sem var líka gott. Ég er
líka ánægð með að hafa klárað
allar þessar greinar. Ég held að
þetta boði bara gott fyrir HM að
ég hafi verið að synda svona vel,“
segir Hrafnhildur. Næsti mánuð-
ur er vel skipulagður hjá henni
því hún útskrifast úr Flensborg,
fer síðan að keppa á HM 15. til 19.
desember og er síðan á leiðinni í
skóla í Bandaríkjunum eftir ára-
mót. „Ég er heima um jólin, held
síðan útskriftarveislu og svo flýg
ég beint út,“ segir Hrafnhildur
sem er á leiðinni í University of
Florida á fullum skólastyrk.
„Ég er mjög spennt fyrir því að
fara í skólann en ég er líka stress-
uð og kvíðin,“ segir Hrafnhildur
sem ætti að fá gott tækifæri til að
bæta sig enn frekar en Kvenna-
sundlið skólans, The Gators, er
besta háskólalið Bandaríkjanna.
Sleppti sjöunda gullinu fyrir met
„Ég er ekkert smá sátt með helg-
ina. Ég var dálítið stressuð fyrir
þetta mót því ég efaðist um það að
ég væri í nógu góðu formi,“ segir
hin fimmtán ára gamla Eygló Ósk
Gústafsdóttir sem sló stúlknamet
um leið og hún sló Íslandsmetin sín
um helgina.
„Markmiðin hjá mér fyrir mótið
var að ná í þessi Íslandsmet og ná
inn á EM. Ég var langánægðust
með baksundin,“ segir Eygló sem
bætti Íslandsmet Önju Ríkeyjar
Jakobsdóttur í 100 metra baksundi
og bætti síðan sitt eigið met í 200
metra baksundi. Eygló vann alls
fjórar einstaklingsgreinar á mót-
inu, auk þess hjálpaði hún Ægi að
vinna tvö boðsund og vann síðan
líka eitt silfur. Eygló hefði getað
unnið sjöunda gullið því hún synti
best í undanrásunum en ákvað að
spara kraftana í úrslitunum.
„Ég ákvað að sleppa úrslita-
sundinu í 400 metra skriðsundi.
Ég hefði verið dauðþreytt eftir það
sund ef ég hefði synt það,“ segir
Eygló en það sund var á undan
200 metra baksundi sem er henn-
ar besta grein. „Ég valdi það að
safna kröftum til að reyna við
metið,“ segir Eygló naut góðs af
„hvíldinni“ og bætti Íslandsmetið
um tvær sekúndur.
„Ég var bara ákveðin í að ná
þessu meti þótt ég hafi verið orðin
þreytt,“ sagði Eygló.
„Ég og þjálfarinn minn voru
búin að setja það markmið að kom-
ast á EM og nú er bara komið nýtt
markmið og það er að komast inn á
Ólympíuleikana 2012. Ég þarf bara
að æfa mig betur,“ segir Eygló sem
fékk fær ekki mikinn tíma til að
jafna sig eftir átök helgarinnar því
í gær var hún mætt upp í Borgar-
leikhús strax eftir skóla til að æfa
sig fyrir Skrekk. Eygló segist hafa
tíma fyrir félagslífið þrátt fyrir
margar sundæfingar. „Ég er samt
mjög upptekin manneskja,“ viður-
kennir hún þó að lokum.
ooj@frettabladid.is
Gullstelpurnar á ÍM25
Hrafnhildur Lúthersdóttir úr SH og Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi unnu sam-
an þrettán gull og settu saman þrjú Íslandsmet á Íslandsmeistaramótinu í 25
metra laug sem fór fram í Laugardalslauginni um helgina.
ÞRETTÁN GULL Hrafnhildur Lúthersdóttir og Eygló Ósk Gústafsdóttir stóðu sig frábær-
lega á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hlaðnar gullverðlaunum
Sjö gull Hrafnhildar
100 m fjórsund 200 m bringusund
400 m fjórsund* 100 m bringusund
200 m fjórsund 50 m bringusund
4x100 metra fjórsund (með SH)
Sex gull Eyglóar
800 m skriðsund 100 m baksund*
200 m skriðsund 200 m baksund*
4x50 m skriðsund (með Ægi)
4x100 m skriðsund (með Ægi)
*Íslandsmet
Hádegisfundur ÍSÍ
Sjá nánar á www.isi.is
Föstudagur 19. nóv. kl. 12.00-13.00 í D-sal Íþr.-
miðstöðv. í Laugardal. Jón Sigfússon frá Rannsóknum
og Greiningu mun fara yfir rannóknina The Nordic Youth
Research. Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Uppl. í 460-1467 og á vidar@isi.is
FÓTBOLTI Eyjamenn gengu í gær
frá þriggja ára samningi við
Ólafsvíkinginn Brynjar Gauta
Guðjónsson sem er átján ára
varnarmaður.
Þrátt fyrir ungan aldur á hann
að baki 61 leik í deild og bikar
með Víkingi Ólafsvík þar sem
hann lék sinn fyrsta meistara-
flokksleik aðeins fimmtán ára
gamall.
Brynjar Gauti er fyrirliði U-
19 ára landsliðs Íslands og hann
var lykilmaður í liði Víkings sem
vann alla sína leiki í 2. deildinni í
sumar og komst alla leið í undan-
úrslit VISA-bikars karla. - esá
Leikmannamál ÍBV:
Brynjar Gauti
valdi ÍBV
KOMINN Í HVÍTT Brynjar Gauti Guðjóns-
son samdi við ÍBV í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Enski vefmiðillinn Talk-
sport greindi frá því í gær að
Manchester United hefði áhuga
á landsliðsmanninum Gylfa Þór
Sigurðssyni,
leikmanni Hoff-
enheim í Þýska-
landi.
Gylfi hefur
verið orðað-
ur við nokkur
stórlið í Evrópu
undanfarnar
vikur en hann
hefur slegið í
gegn með Hoff-
enheim þar sem
hann hefur þegar skorað fjögur
mörk. Útsendarar United munu
einnig hafa fylgst með leik U-21
liðs Íslands gegn Skotum ytra
þar sem Gylfi skoraði bæði mörk-
in í 2-1 sigri og tryggði um leið
Íslandi sæti í úrslitakeppni EM.
Hoffenheim keypti Gylfa frá
Reading í Englandi fyrir fimm
milljónir evra í haust. - esá
Gylfi Þór Sigurðsson:
Orðaður við
Man. United
GYLFI ÞÓR
SIGURÐSSON
KÖRFUBOLTI Svo gæti farið að
Magnús Þór Gunnarsson spili
aftur hér á landi áður en langt
um líður en hann kom hingað til
lands í gær.
Magnús Þór hefur gert það gott
með Aabyhöj í dönsku úrvals-
deildinni í haust en í gær var
greint frá því að hann væri nú
aftur á leið til Njarðvíkur þar
sem hann spilaði síðast.
„Það er ekkert ákveðið enn,“
sagði Magnús við Fréttablaðið.
„Það er langt í næsta leik í Dan-
mörku en ég vona að þessi mál
verði komin á hreint fyrir viku-
lok.“ - esá
Magnús Þór Gunnarsson:
Mögulega á
heimleið
HANDBOLTI Þrír leikir fóru fram
í 16-liða úrslitum Eimskipsbik-
arkeppni karla í gær. Hæst bar
slagur Akureyrar og Aftureld-
ingar sem fyrrnefnda liðið vann,
30-20.
Guðmundur Hólmar Helgason
fór mikinn og skoraði átta mörk
fyrir Akureyri sem hafði átta
marka forystu í hálfleik, 13-9.
Þá er ÍR einnig komið áfram
eftir sigur á Stjörnunni, 29-25,
eftir að hafa verið með þriggja
marka forystu í hálfleik, 14-11.
Víkingur er einnig komið
áfram eftir sigur á Haukum 2,
36-27. - esá
Eimskipsbikarkeppnin:
Akureyri áfram
SKORAÐI FJÖGUR Oddur Grétarsson,
leikmaður Akureyrar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI Þrír leikir fóru fram í
Iceland Express-deild karla í gær
og er Grindavík aftur komið á sig-
urbraut eftir að hafa tapað fyrir
Snæfelli í síðustu umferð. Liðið
vann átta stiga sigur á Stjörnunni
á heimavelli í gær, 100-92.
„Sigur er alltaf sigur,“ sagði
Helgi Jónas Guðfinsson, þjálfari
Grindavíkur, eftir leikinn í kvöld.
„Við vorum komnir í ansi þægilega
stöðu sem við hentum frá okkur í
þriðja leikhluta. Stjarnan er með
hörkulið og við vorum minntir á í
kvöld að það þýðir ekki að leggja
árar í bát þó svo að vel gangi.
menn mega ekki hætta,“ sagði
Helgi Jónas.
Grindavík spilaði með nýjan
Bandaríkjamann þar sem að sá
fyrri þurfti frá að hverfa af per-
sónulegum ástæðum. Sá heitir Jer-
emy Kelly.
„Hann byrjaði á því að
setja niður átta stig eins
og að drekka vatn en svo
bara ekki söguna meir,“
sagði þjálfarinn. „Hann er
í engu formi og hefur lík-
lega sýnt um tíu prósent
af því sem hann getur.
En þetta er hörkuleik-
maður og ég er viss
um að við höfum
fengið betri leik-
mann en þann
sem við
vorum
með.“
KR
gerði góða ferð til Ísafjarð-
ar þar sem liðið skoraði hvorki
fleiri né færri en 143 stig gegn
98 frá KFÍ. Marcus Walker skor-
aði 28 stig en Pavel Eromlinskij
náði glæsilegri þrefaldri tvennu –
25 stigum, átján fráköstum og tólf
stoðsendingum.
Allir leikmenn KR sem voru á
skýrslu skoruðu í leiknum en KR
skoraði aldrei minna en 31 stig í
leikhluta og mest 41 stig.
Ófarir Njarðvíkur halda áfram
en liðið er í fallsæti eftir tap fyrir
Fjölni á heimavelli í gær, 97-73.
Ægir Þór Steinarsson átti
góðan leik í liði gestanna
og skoraði 24 stig og gaf
átta stoðsendingar.
Njarðvík hefur
unnið tvo leiki af
sjö í deildinni, rétt
eins og Tindastóll
og KFÍ en aðeins botn-
lið ÍR er með færri stig.
Snæfell og Grindavík eru
á toppnum með sex sigra
í sjö leikjum. - esá
Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla í gærkvöldi:
Grindavík aftur á sigurbraut
PAVEL ERMOLINSKIJ
Fór á kostum á Ísafirði í gær.