Fréttablaðið - 23.11.2010, Síða 10
10 23. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Árangur þinn er okkar takmark
BANDARÍKIN „Ef við megum ekki taka nektarmyndir
af fólki, hvers vegna leyfum við þá stjórnvöldum
að gera það?“ spurði bandaríski öldungadeildar-
þingmaðurinn Ron Paul, einn helsti talsmaður
þeirra repúblikana sem hvað ákafast vilja draga úr
umsvifum ríkisins.
Hann vill banna nýjar aðferðir
við öryggisgæslu á flugvöllum,
sem felast í því að farþegar eru
látnir ganga í gegnum nektar-
skanna áður en þeim er hleypt
um borð í flugvél, eða sætta sig
við að öryggisvörður þreifi vand-
lega á kynfærum þeirra ella.
Miklar umræður hafa verið
í Bandaríkjunum síðustu vikur
um þessar nýju reglur. Upphafið
má rekja til þess að John Tyner, ungur maður sem
hugðist fara um borð í flugvél í San Diego, neitaði
fyrr í mánuðinum að gangast undir skoðun með
nektarskanna og hótaði að láta handtaka öryggis-
vörð ef hann snerti á kynfærum sínum.
Tyner fékk ekki að fara um borð í flugvélina,
en málið hefur nú verið tekið upp á þingi. John
Pistole, yfirmaður samgönguöryggismála í Banda-
ríkjunum, var kallaður fyrir þingnefnd þar sem
hann stóð fastur á því að þessar nýju öryggisráð-
stafanir væru nauðsynlegar.
Hann sagði að ef fólk mætti velja um að ferðast
með flugvél sem farþegum hefði verið hleypt inn í
án þess að hafa gengist undir slíka skoðun eða vél
með farþegum sem allir hefðu gengist undir slíkt
myndi yfirgnæfandi meirihluti velja seinni vélina.
- gb
Bandaríkjamenn deila um nektarskanna og líkamsþreifingar á flugvöllum:
Vilja banna nektarskanna
JOHN TYNER
BARACK OBAMA Hópur auðugra Banda-
ríkjamanna vill greiða hærri skatta eftir
áramótin. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
EFNAHAGSMÁL Hópur auðugra
Bandaríkjamanna hefur skrifað
Barack Obama forseta bréf og
farið fram á að skattaafsláttur
efnafólks verði afnuminn um
næstu áramót.
George Bush yngri veitti um síð-
ustu aldamót þeim skattaafslátt
sem hafa eina milljón dala eða
meira í árslaun. Fríðindin renna
út um áramótin. Demókratar vilja
framlengja frestinn. Einn af for-
kólfum hópsins segir í samtali við
bandarísku sjónvarpsfréttastöðina
ABC skattafsláttinn nýtast litlum
en auðugum hópi fólks. - jab
Ríkir vilja ekki skattaafslátt:
Nýtist aðeins
litlum hópi
Íbúar fá frítt í sund
Íbúar Skútustaðahrepps fá frítt í sund.
Vinnumálastofnun á Norðurlandi hafði
óskað eftir því að atvinnulausir fengju
ókeypis afnot af íþróttamannvirkjum
og sundlaugum. Sveitarstjórnin sagði
að þeir sem ynnu fyrir lágmarks-
launum en nytu ekki sömu fríðinda og
þeir atvinnulausu væru ósáttir við slíkt.
MÝVATN
KÍNA Í RÓM Styttur frá Kína getur að
líta þessa dagana innan um róm-
verskar styttar á sýningu í Feneyjahöll-
inni í Róm. NORDICPHOTOS/AFP
NEKTARSKANNI Bandarískur öldungadeildarþingmaður vill
banna nýja aðferðir við öryggisgæslu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP