Fréttablaðið - 23.11.2010, Page 18
18 23. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Fyrirhugað er að flytja þjón-ustu við fatlað fólk og laga-
legar skyldur svæðisskrifstofa
málefna fatlaðra til sveitar félaga
hinn 1. janúar 2011. Í haust héldu
Félags- og tryggingamálaráðu-
neytið, Samband íslenskra sveitar-
félaga, Öryrkjabandalag Íslands,
Þroskahjálp, Stofnun stjórnsýslu-
fræða og stjórnmála og Rann-
sóknarsetur í fötlunarfræðum
við Háskóla Íslands málþing um:
„Málefni fatlaðs fólks á tímamót-
um – horft til framtíðar“.
Í ræðum frummælenda kom
endurtekið fram, að nú væri
tækifæri til að koma á nýrri hug-
myndafræði í málefnum fatlaðs
fólks, tryggja samráð við not-
endur, hagsmunasamtök, fræða-
samfélagið, tryggja samstarf
fagfólks, sviða og stofnana og að
tryggja þyrfti nauðsynlega þekk-
ingu og fræðslu.
Samkvæmt heimasíðu undir-
búnings flutningsins kemur
fram að markmið tilfærslu
þjónustu við fatlaða sé m.a. að:
„Bæta þjónustu og auka mögu-
leika til að laga hana að þörfum
notenda með hliðsjón af ólíkum
aðstæðum“. Í drögum að leiðar-
ljósi Reykjavíkur borgar um þjón-
ustu við fatlað fólk kemur fram að
framtíðarsýn borgarinnar byggi
á samningi Sameinuðu þjóðanna
með réttindi fatlaðs fólks að leið-
arljósi. Þar kemur einnig fram að
margbreytilegum þörfum borgar-
búa verði mætt með sveigjanlegri
og einstaklingsmiðaðri þjónustu
sem veitt verði af virðingu og
fagmennsku.
Gæði þjónustu sveitarfélaga
Hin síðustu ár hefur verið lögð
áhersla á mikilvægi fjölskyld-
unnar í lífi fatlaðra barna og
uppbyggingu færni, þekkingar
og stuðnings við hana til að geta
sinnt þörfum þess sem best.
Nauðsynlegt er á sama hátt
að tryggja gæði þjónustu fyrir
fatlaða einstaklinga með fjöl-
þætta skerðingu, börn, ung-
menni og fullorðna sem treysta
á umsjá og þjónustu sem veitt er
af hinu opinbera. Gæði aðstoðar
og umönnunar hafa óhjákvæmi-
lega áhrif á lífsgæði og jafnvel á
framvindu og alvarleika fötlunar
viðkomandi einstaklings.
Aðilar og stofnanir sem sinna
þjónustu fyrir þessa einstakl-
inga gegna þýðingarmiklu hlut-
verki í lífi fólks með fjölþætta
skerðingu. Það er því mikilvægt
að veita starfsfólki, sem sinnir
formlegri umönnun og aðstoð,
ráðgjöf, þjálfun og stuðning og
tryggja þannig að sú þekking
og færni sem einstaklingur-
inn nýtur í foreldrahúsum verði
áfram til staðar, þó hann komist
á fullorðinsár. Þannig er hægt
að auðvelda aðstoð og umönn-
un, auka velferð og lífsgæði ein-
staklingsins og möguleika á sam-
félagslegri þátttöku.
Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unin bendir á að náið samhengi
sé milli heilsu og færni. Hjá ein-
staklingum með fjölþætta skerð-
ingu, eins og t.d. tiltekin form
heilalömunar (CP), er aukin
hætta á aflögunum í stoðkerfi,
skerðingu í liðferlum, hrygg-
skekkju og mjaðmaliðhlaupi,
sem síðan hafa í för með sér
vandamál við að liggja, sitja,
standa og ganga og hafa áhrif á
svefn og hvíld. Þetta getur vald-
ið verkjum, brota- og sárahættu
ásamt vandamálum við aðstoð og
umönnun. Þetta hefur að sjálf-
sögðu einnig áhrif á möguleik-
ann til samskipta, athafna og til
samfélagslegrar þátttöku. Rann-
sóknir sýna að þessi vandamál
fara vaxandi með aldri.
Þessir einstaklingar hafa
flóknar þarfir bæði hvað varðar
heilbrigðisþjónustu og félagsleg
úrræði, sem krefjast samþætting-
ar margra stofnana og samvinnu
allra sem að þjónustunni koma.
Margt af framansögðu á einnig
við um fötlun af völdum annarra
orsaka eins og t.d. vegna vöðva-
og taugahrörnunarsjúkdóma, MS,
heilaskaða o.fl.
Heilsustefna stjórnvalda
Í heilsustefnu íslenska heilbrigðis-
ráðuneytisins kemur fram að öfl-
ugt samfélag byggir á góðu heilsu-
fari og góðri líðan þeirra sem það
byggja. Þar er einnig hnykkt á
mikilvægi forvarna og þess að
stefnan nái til allra landsmanna,
bæði einstaklinga og hópa (Heil-
brigðisráðuneytið 2008). Í stefnu
félagsmálaráðuneytisins: „Mótum
framtíð. Þjónusta við fötluð börn
og fullorðna 2007-2016“ er tekið
fram að huga þurfi sérstaklega að
forvörnum og heilsueflingu í allri
þjónustu við fatlað fólk (Félags-
málaráðuneytið, 2006). Í skýrslu
Félagsmálaráðuneytisins frá 2006
kemur fram krafa um að þjónusta
við fötluð börn og fullorðna full-
nægi skilyrðum gæðastarfs í hví-
vetna líkt og best gerist annars
staðar og að árið 2012 verði að
minnsta kosti 50% starfsmanna
í málaflokknum með einhvers
konar fagmenntun, sem varðar
viðfangsefni hans.
Ég vona að þeir sem nú taka
við umsjá þjónustu við fatlað
fólk standi við markmið um upp-
byggingu á gæðaþjónustu. Nauð-
synlegt er að huga að mikilvægi
færni, heilsu og forvarna í mark-
miðum um sjálfstætt líf og sam-
félagslega þátttöku. Því er nauð-
synlegt er að tryggja grunn- og
símenntun þess starfsfólks sem
ræðst í störf með fötluðu fólki til
aðstoðar í daglegu lífi. Markviss
uppbygging þekkingar og færni
stuðlar auk þess að betri nýtingu
fjármuna, auðveldar störf þeirra
sem vinna við aðstoð til fatl-
aðs fólks og minnkar kostnað til
lengri tíma.
Flutningur málefna fatlaðra til sveitarfélaga
Málefni fatlaðra
Guðný
Jónsdóttir
yfirsjúkraþjálfari og
framkvæmdastjóri
Ég vona að þeir sem nú taka við umsjá
þjónustu við fatlað fólk standi við mark-
mið um uppbyggingu á gæðaþjónustu.
AF NETINU
Ekki of flókna stjórnarskrá
Stjórnarskrá á
ekki að vera of
flókin. Hún á ekki
að vera nýtt til að
stýra þjóðfélags-
gerð. Þjóðfélagið
er breytilegt og breytist með
tímanum. Góð og vel ígrunduð
stjórnarskrá getur staðist tímans
tönn og mögulegar breytingar á
þjóðfélaginu. Hér skiptir einfald-
leikinn meira máli heldur en að
nota stjórnarskrána til að byggja
upp einhverja félagslega lagskipt-
ingu sem úreldist með tímanum.
Hefjum stjórnarskrána okkar á
“Ísland er lýðveldi. Allir borgarar
lýðveldisins Ísland eiga rétt á
mannlegri reisn og er hún frið-
helg.”
Vísir.is Jónas Pétur Hreinsson
Miðjumoð stundum best
Miðjumoð kunna
einhverjir að segja.
Það kann vel að
vera, en stundum
er það affarasæl-
ast. Það á enginn
að mæta til stjórnlagaþings í þeirri
von - og blekkingu - að stjórnar-
skráin verði nákvæmlega eins og
hann hefði samið hana sjálfur ef
hann einn fengi að ráða. Virðing
fyrir skoðunum og rökum annarra,
sveigjanleiki, góð hlustunarskilyrði
og sáttfýsi er lykillinn að góðri
niðurstöðu. Ef hún næst ekki er
stjórnlagaþing til einskis og kjörnir
fulltrúar að bregðast ábyrgð sinni
og skyldu og þar með þjóðinni og
því trausti sem hún sýndi þeim. Þá
er verr af stað farið en heima setið.
Vísir.is Þórhildur Þorleifsdóttir